Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1977, Side 4
Georg William Manby. Eftir steinprenti, frá árinu 1832.
til þess að gera tilraunir með línu-
skot og eftir ýmsar endurbætur á
tækjunum, hélt hann sýningu fyrir
nokkra meðlimi í félaginu Suff-
olk, Human Society árið 1807, og
þeir urðu mjög hrifnir.
Nokkrum mánuðum síðar, eða
12. febrúar 1808, þegar tvímastr-
aða skútan Elizabeth strandaði,
voru þessi tæki reynd í fyrsta
skiptið og tveimur árum síðar
voru þessi björgunartæki skoðuð
af nefnd neðri málstofu breska
þingsíns, sem birti opinbera
skýrslu sína í marsmánuði 1810.
Tækin urðu svo vinsæl að Manby
skrifaði leiðbeiningarbækling um
notkun þeirra, sem fylgdi hverju
tæki. „Ritgerð um björgun skip-
brotsmanna, með upplýsingum á
tækjunum og notkun þeirra.“
Þegar hér var komið, var mikill og
almennur áhugi fyrir málinu og
stærstu fréttablöð þeirra tíma,
hrósuðu tækjunum í hvert reipi og
bentu þráfaldlega á, að þau hefðu
bjargað tvöhundruð og fimmtíu
mannslífum. Neðrideild þingsins
mælti með að uppfinningamann-
inum Manby yrði greidd 6 þúsund
sterlingspund í verðlaun. Þetta var
talsverð upphæð, þegar haft er í
huga, að peningar voru gull-
tryggðir.
Bráðlega var línu-byssu komið
fyrir í Yarmouth.
Árið 1824 hafði 45 slíkum
línu-byssum verið komið fyrir á
ströndum Englands. Á þessu ári
var sett á laggirnar stofnun, sem
útvegaði þessi tæki til ýmissa
staða víðsvegar við strendurnar.
Langdrægni byssanna var frá 250
til 320 faðmar. Eftir að línu hafði
verið skotið til hins nauðstadda
skips, var björgunar-kassi dreginn
fram og til baka (fyrirrennari hins
ágæta björgunarstóls, sem notað-
ur er í dag) milli skips og lands og
lífi skipbrotsmanna bjargað.
Manby var alls staðar vel tekið á
fyrirlestraferðum sínum. Honum
voru veitt heiðursmerki og aðrar
viðurkenningar, sumar erlendis
frá. Árið 1831 varð hann meðlim-
ur í Fellow of the Royal Society.
20 árum áður hafði Manby
kynnt flotastjórninni nýja gerð
björgunarbáta, ekki frábrugðna
hinni eldri, að öðru leyti en því,
að þeir voru útbúnir ýmsum nýj-
ungum i sambandi við línubyssur
og slökkvitæki.
Fyrri kona Manbys lést 1814, en
síðar giftist hann Sophiu, dóttur
Sir Thomas Gooch frá Benacre
Hall, Suffolk og varð það ham-
ingjusamt hjónaband.
Jafnvel fram í andlátið, var
Manby alltaf að koma fram með
eitthvað nýtt. Heimili hans var
fullt af ófullgerðum uppfinning-
um þegar hann lést 18. nóvember
1854, vitandi að hann hafði lagt
sinn skerf til líknarstarfa, og átt
þátt í að minnka hinn háa toll,
sem sjórinn tók af mannslífum.
ÚTGERÐARMENN!
Vér erum umboðsmenn fyrir
þýzku Dieselverksmiðjuna
KLÖCWNER-HUMBOLT-
DEUTZ,
stærstu Dieselverksmiðju í
heimi, hin elzta og reyndasta
í sinni grein.
Margra ára reynsla hér i landL
HAMAR HP.
Sim&r: 22128 — 22126
388
VÍKINGUR