Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1977, Síða 14
Guðmundur H. Oddsson. Heiðraður
á 28. þinginu.
Andrés Guðjónsson, skólastjóri, Sveinn Þorbergsson vélstjóri, Ingólfur
Stefánsson framkvæmdastjóri, Guðmundur Bj. Baldursson og Logi Snædal
Jónsson.
1930, en um það leyti mun Skip-
stjórafélagið Aldan hafa verið í
nokkurri lægð og ekki haldið vöku
sinni að mati manna t.d. varðandi
lögin um atvinnu við siglingar,
sem þá var verið að breyta. Því er
það á haustdögum 1934 fara skip-
stjórar og stýrimenn af svokölluð-
um línuveiðurum að hugsa um
stofnun nýs félags. Þetta félag
varð ' svo að raunveruleika um
veturinn og hlaut nafnið Skip-
stjóra og stýrimannafélag Reykja-
víkur. Fyrsti formaður þess félags
var Egill Jóhannsson, en lengst
gengdi þar formennsku Konráð
Gíslason af alkunnum áhuga og
dugnaði.
Mörg voru viðfangsefnin hjá
hinu nýstofnaða félagi til að byrja
með, en hæst bar þar umræður um
lögin um atvinnu við siglingar á
íslenzkum skipum, svo og hvernig
bezt mætti sameina skipstjóra og
stýrimenn til að knýja fram ýms
hagsmunamál sín. Kemur þarna
aftur fram hugmynd svipuð þeirri,
sem umræður urðu um í Vél-
stjórafélaginu 12 árum fyrr.
Eftir síldveiðar haustið 1935 var
svo á félagsfundi í Skipstjóra og
VÍKINGUR
öðrum föllnum stéttarbræðrum,
með því að rísa úr sætum.
Takk fyrir.
Á tímamótum stöldrum við
gjarna við og lítum til baka,
spyrjum hvernig til hafi tekist um
leið og við lítum til framtíðarinn-
ar. Er Farmanna- og fiskimanna-
samband Islands stendur á fer-
tugu þykir hlíða að rifja upp í
stuttu máli aðdragandann að
stofnun þess, en það var formlega
stofnað á fyrsta þingi sambands-
ins, sem haldið var í Oddfellow-
húsinu hér í Reykjavík 2. júní
1937 og dagana þar á eftir.
Fyrsta hugmyndin að stofnun
sambands allra sjómanna mun
hafa fæðst í Vélstjórafélagi ís-
lands og kom þar fram á fundi
árið 1922 tillaga um að stofna
Farmannaráð, sem í væru 12
menn. Skyldi það ræða öll sam-
eiginleg hagsmunamál og
öryggismál sjómannastéttarinnar.
Þetta varð lítið meira en umtalið,
sem þó hélzt fram eftir næsta ári.
Þó virðist nokkur áhugi hafa verið
á málinu.
Síðan skeður ekkert fram yfir
Konráð Gíslason.
Hallgrímur Jónsson, formaður undir-
búningsnefndar að fyrsta þingi F.F.S.f.
398