Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1977, Síða 16
Kristján Aðalsteinsson, (orseti
1961—1963.
3. Að vinna að bættu öryggi á sjó.
4. Að gefið sé út tímarit til kynn-
ingar og fróðleiks.
5. Að stofna samtryggingu meðal
stéttarinnar.
6. Að stuðla að því að komið
verði á verklegum námskeið-
um fyrir sjómenn.
Sum þessara atriða eru enn
þann dag í dag orð í tíma töluð.
Við frekari yfirveganir og at-
huganir á þessu sambandsstofn-
unarmáli var talið æskilegt að ná
samstöðu við Vélstjórafélag ís-
Ambjöm Gunnarsson, Bergsvelnn Bergsveinsson, Garðar Þorsteinsson, Héðlnn
Sigurðsson og Ásgeir Sölvason. örn Steinsson, forseti 1963—1965."
lands um stofnun sambandsins.
Vélstjórafélagið var þá eins og
jafnan síðan eitt þróttmesta stétt-
arfélag sjómanna. Varð það síðan
að ráði að senda öllum far-
mannafélögunum umrætt nefnd-
arálit til umsagnar.
Við nefndarálitinu bárust já-
kvæð svör frá skipstjóra og stýri-
mannafélögunum við Faxaflóa
svo og Skipstjóra og stýrimanna-
félaginu Ægi á Siglufirði. Hins-
vegar mætti það nokkurri mót-
stöðu í Vélstjórafélagi íslands í
fyrstu, að félagið gerðist aðili að
samtökunum. Meðmæltir aðild
Vélstjórafélagsins voru samt
meðal annars þeir vélstjórarnir
Hallgrímur Jónsson, Júlíus Ólafs-
son og Þorsteinn Árnason og unnu
þeir málinu fylgi. Fór svo að Vél-
stjórafélagið varð með í stofnun
sambandsins.
Þann 8. desember 1936 var svo
kosin undirbúningsstjórn aðíyrsta
þingi FFSÍ, er haldið skyldi áður
en sumarsíldveiðar hæfust vorið
1937. í þessa stjórn voru kosnir
Hallgrímur Jónsson vélstjóri, sem
jafnframt var kosinn formaður,
Konráð Gíslason stýrimaður,
Guðbjartur Ólafsson hafnsögu-
maður, Sigurjón Einarsson skip-
Guðmundur Jensson, framkvæmda
stjóri F.F.S.f. 1945—1961.
Júlíus Ólafsson, fulltrúi vélstjóra í
stjórn F.F.S.f. um langt skeið, og sterk
stoð Sjómannablaðsins Víkings.
400
VÍKINGUR