Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1977, Síða 17
Guðbjartur Ólafsson.
stjóri og Þorgrímur Sveinsson
skipstjóri.
Undirbúningsstjórnin hélt alls
níu fundi. Á þriðja fundi hennar
19. febrúar 1937 var frumvarp að
lögum fyrir sambandið samþykkt
með áorðnum breytingum frá
fyrra frumvarpi, sem Skipstjóra-
félag íslands hafði lagt fram, en
það hafði endanlega ákveðið er
hér var komið að vera aðili að
stofnun sambandsins. Á þessum
Henry Hálfdánsson
VÍKINGUR
sama fundi var einnig samþykkt
að sambandið skyldi heita FAR-
MANNA OG FISKIMANNA-
SAMBAND ÍSLANDS, og hefur
verið skammstafað FFSÍ. Á ní-
unda og síðasta fundi undirbún-
ingsstjórnarinnar var svo sam-
þykkt að boða til 1. þings Far-
manna- og fiskimannasambands
íslands þann 2. júní 1937 í Odd-
fellowhúsinu í Reykjavík.
Þessi sjö félög voru stofnendur
sambandsins og kusu fulltrúa til
fyrsta þings þess:
SKIPSTJÓRAFÉLAGIÐ ALD-
AN, Reykjavík. Fulltrúar þess
voru Hafsteinn Bergþórsson skip-
stjóri og Tryggvi Ófeigsson skip-
stjóri.
SKIPSTJÓRA OG STÝRI-
MANNAFÉLAG REYKJAVÍK-
UR. Fulltrúar þess voru Guð-
mundur H. Oddsson stýrimaður
og Sæmundur Ólafsson stýrimað-
ur.
SKIPSTJÓRA OG STÝRI-
MANNAFÉLAGIÐ ÆGIR,
Reykjavík. Fulltrúar þess voru
Steindór Árnason stýrimaður og
Sigurður Sigurðsson skipstjóri.
SKIPSTJÓRA OG STÝRI-
MANNAFÉLAGIÐ KÁRI,
Hafnarfirði. Fulltrúar þess voru
Þorgrímur Sveinsson skipstjóri og
Ólafur Þórðarson skipstjóri.
SKIPSTJÓRA OG STÝRI-
MANNAFÉLAGIÐ ÆGIR,
Siglufirði. Fulltrúi þess var Sveinn
Þorsteinsson skipstjóri.
SKIPSTJÓRAFÉLAG ÍS-
LANDS, Reykjavík. Fulltrúi þess
var Ásgeir Sigurðsson skipstjóri.
VÉLSTJÓRAFÉLAG ÍS-
LANDS, Reykjavík. Fulltrúar
þess voru vélstjórarnir Guðjón
Benediktsson, Friðjón Gunn-
laugsson, Marteinn Kristjánsson,
Magnús Guðbjartsson, Þorsteinn
Árnason og Tyrfingur Þórðarson.
Auk þess mætti undirbúnings-
stjórnin að sjálfsögðu á þinginu.
Á fyrsta þinginu voru, auk
frumvarps til sambandslaga, er
Guðmundur Kjærnested, skipherra.
samþykkt var með litlum breyt-
ingum, rædd meðal annars eftir-
talin mál:
Öryggismál sjómanna. Skóla-
mál og hin brýna þörf fyrir nýjan
Sjómannaskóla. Laun yfirmanna
á fiskiflotanum. Endurbætur á
Síldarverksmiðjum ríkisins. Við-
hald skipa og viðgerð á þeim hér-
lendis. Tolla- og skattamál, að því
er varðar sjómenn og útveginn.
Mörg þessara mála eru enn í
brennidepli hjá sambandinu og
hljóta að verða það um alla fram-
tíð, eins og t.d. öryggis og kjara-
málin.
Þingið fór fram undir forsæti
Þorgríms Sveinssonar og var það
mál manna að það hefði farið vel
fram og mál verið vel búin undir
afgreiðslu. Áhugi var hjá þing-
fulltrúum að ná öllum skipstjórn-
armönnum á landinu inn í sam-
bandið.
Eftirtaldir menn voru kosnir í
stjórn FFSÍ á fyrsta þingi sam-
bandsins:
Forseti: Ásgeir Sigurðsson
skipstjóri. Varaforseti: Þorsteinn
401
/