Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1977, Page 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1977, Page 18
Á myndinni má þekkja Helga Hallvarðsson, Ingólf Falsson, Guðmund Wium, Ingólf Ingólfsson, Björn Þorfinnsson og Guðmund H. Oddsson. Árnason vélstjóri. Ritari: Konráð Gíslason stýrimaður. Gjaldkeri: Magnús Guðbjartsson vélstjóri. Meðstjórnendur: Guðbjartur Ólafsson hafnsögumaður og Sig- urjón Einarsson skipstjóri. Síðar gerðust þessi félög aðilar að sambandinu: Félag ísl. loftskeytamanna, Reykjavík Skipstjórafélag Norðlendinga, Akureyri Skipstjórafélagið Bylgjan, ísafirði Skipstjóra og stýrimannafélagið Hafþór, Akranesi Skipstjóra og stýrimannafélagið Verðandi, Vestmannaeyjum Mótorvélstjórafélag íslands, Reykjavík Skipstjóra og stýrimannafélagið Vísir, Keflavík Félag bryta, Reykjavík. Dröfn Fáskrúðsfirði, Þjálfi Norðfirði og Grótta Reykjavík voru um tíma í sambandinu, en hafa fyrir löngu verið lögð niður. Ennfremur sameinaðist Skip- stjóra og stýrimannafélag Reykja- víkur Skipstjórafélaginu Öldunni og var þá nafni félagsins breytt í Ingólfur Stefánsson: Skipstjóra og stýrimannafélagið Aldan. Mótorvélstjórafélag ís- lands, hefir sameinast Vélstjóra- félagi íslands. Stýrimannafélag íslands kom í sambandið sumarið 1944 eftir að FFSÍ og ASÍ höfðu gert með sér samning, þar sem þau viðurkenndu hvort annað jafna aðila í launa og kjaramálum og ákváðu nokkru nánar um verka- skiptingu. Vélstjórafélag Vest- mannaeyja var svo samþykktur aðili að sambandinu á þinginu 1975. Sambandsfélögin eru því í dag 15 talsins. Upphaflega var sambandið til húsa í Ingólfshvoli og hafði skrif- stofu í félagi við Vélstjórafélag ís- lands. Síðan var það um tíma að Bárugötu 2 og þar eftir í Fiskhöll- inni við Tryggvagötu í 10 eða 12 ár, eða þar til að sambandið ásamt aðildarfélögunum keyptu hús- eignina að Bárugötu 11 og fluttu þangað inn 1. okt. 1959. Eins og áður sagði var eitt af málum fyrsta þings FFSÍ útgáfa blaðs eða tímarits fyrir sjómenn. Þessu máli var hrundið í fram- kvæmd árið 1939, þegar sam- bandsstjórn samþykkti á fundi 19. júní að hefja blaðaútgáfu, og skyldi blaðið fjalla um málefni sambandsins og flytti auk þess ýmsan fróðleik, sér í lagi varðandi sjó og sjómennsku. Blaðið hlaut nafnið Víkingurinn, en var síðar breytt í Sjómannablaðið Víking- ur. Er það vissulega sambandinu til sóma að hafa getað haldið úti blaði óslitið allan þennan tíma. Ritstjórar Víkingsins hafa verið þessir: Bárður Jakobsson frá 1.6. 1939 til Guðmundur Pétursson, vélstjóri. 402 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.