Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1977, Síða 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1977, Síða 19
31.12. 1939, Guðmundur H. Oddsson frá 1.1. 1940 til 30.6. 1942, Halldór Jónsson frá 1.7. 1942 til 31.12. 1944, Gissur Er- lingssonfrá 1.1. 1945 til 31.7. 1945, Gils Guðmundsson frá 1.8. 1945 til 31.7. 1954, Magnús Jensson frá 1.8. 1954 til 31.12. 1956, Halldór Jónsson aftur frá 1957 til 31.7. 1962 og Guðmundur Jensson frá 1. ág. 1962 og er enn. Með honum hafa ritstýrt blaðinu á þessum tíma þeir Örn Steinsson frá 1. ág. 1962 til 31. des. 1973 og Jónas Guðmundsson frá 1. jan. 1974 og er enn. Guðmundur Jensson var einnig áður en hann varð aðalritstjóri búinn að vera meðritstjóri nokk- urn tíma. Guðmundur-'hóf störf sem framkvæmdastjóri FFSÍ 1. ágúst 1945 og hefur því lengst allra starfað fyrir sambandið og blaðið, eða alls rösk 32 ár. Hefir hann unnið mjög giftudrjúgt starf í þágu samtaka vorra. Síðan 1967 hefur Ingólfur Stef- ánsson verið framkvæmdastjóri FFSÍ en þá voru störf fyrir sam- bandið og blaðið alveg skilin að og ráðinn sérstakur fram- kvæmdastjóri fyrir FFSÍ en Guð- mundur hélt áfram með útgáfu blaðsins og ritstjórn þess. Báðir þessir menn starfa enn fyrir samtökin og eiga sérstakar þakkir skildar fyrir þeirra. Forsetar FFSÍ hafa verið þessir: Hallgrímur Jónsson vélstjóri, for- maður undirbúningsstjórnar að stofnun FFSÍ. Ásgeir Sigurðsson, skipstjóri, frá 8. júní 1937 til dauðadags 22. sept. 1961, eða alls í 24 ár, átti hann því hvað drýgstan þátt ímótun og uppbyggingu sambandsins í byrj- un. Egill Hjörvar vélstjóri, sem var varaforseti, er Ásgeir lézt, gegndi forsetastörfum fram yfir 20. þing, sem haldið var í nóvember sama ár. Kristján Aðalsteinsson skipstjóri 1961-1963 Örn Sveinsson vélstjóri 1963— 1965 Guðmundur H. Oddsson skip- stjóri 1965—1969 Guðmundur Pétursson vélstjóri 1969-1973 Guðmundur Kjærnested skip- herra 1973-1975 Jónas Þorsteinsson skipstjóri frá 1975. Þau eru mörg málin og mála- flokkarnir sem rædd hafa verið í stjórnum og á þingum samtak- anna og ályktanir gerðar um, og sambandið hefur haft áhrif á og komið til leiðar. Vil ég þar aðeins minna á örfá, sem hæst bera, eins og skólamál sjómanna og bygging Sjómannaskólans. Hraðfrystihús Patreksf jarðar hf. Forstjóri: Helgi Jónatansson. Kaupum fisk til verkunar og vinnslu. Rekum útgerð, fiskverkun, hrað- frystihús, fiskimjölsverksmióju. Seljum ís. Gleóileg jól! Farsælt komandi ár. Þökkum starfsfólki og viðskiptavin- um samvinnuna á árinu. Hraðfrystihús Patreksf jarðar hf. Patreksfirði. Símar: Skrifstofa 1308 — Frystihús 1307. VÍKINGUR 403

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.