Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1977, Síða 21
Skúli Guðbrandsson, Daníel Guðmundsson, Guðni Magnússon og Sigurður
Óskarsson.
hafist handa um framkvæmdir.
Það er svo í des. 1975 að leitað er
tilboða í byggingarframkvæmdir.
Samið var við Guðna Þ. Sigurðs-
son byggingarmeistara um fram-
kvæmdirnar. Byrjað var að grafa
fyrir húsinu í maí 1976 og hefur
verkið allt gengið vel síðan. Að
vísu var það lengi von okkar að
geta verið með þessa athöfn í hinu
nýja húsi, en því miður tókst það
ekki, þótt litlu munaði.
Ég vil nota þetta tækifæri og
þakka borgaryfirvöldum Reykja-
víkurborgar fyrir þeirra ágætu
fyrirgreiðslu og skilning á málinu,
er eftir lóð var leitað handa sam-
tökum vorum svo og við alla af-
greiðslu málsins. Ég vil einnig
þakka öllum þeim aðilum sem
veitt hafa okkur fyrirgreiðslu í
einu eða öðru formi varðandi
þessar yggingarframkvæmdir.
Síðast en ekki síst vil ég einnig
þakka framkvæmdastjórn bygg-
inganefndarinnar fyrir þeirra
mikla starf við að koma bygging-
unni upp. í framkvæmdastjórn-
inni eru Ingólfur Stefánsson
framkvæmdastjóri FFSÍ, Guð-
laugur Gíslason formaður Stýri-
mannafélags Islands og Ingólfur
S. Ingólfsson formaður Vélstjóra-
félags íslands.
Við bindum að sjálfsögðu
miklar framtíðarvonir við þá
bættu starfsaðstöðu, sem þarna
skapast fyrir Farmannasamband-
ið og blaðaútgáfu þess, svo og
fyrir aðildarfélögin hér í Reykja-
vík, þegar allir eru komnir undir
sama þak.
Á undanförnum áratugum hefir
starfsemi Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands stöðugt
aukist og sambandið orðið virkari
áhrifaaðili að fjölmörgum nefnd-
um og stjórnum stofnana, sem
allar hafa beint eða óbeint áhrif á
hagsmuna og/eða öryggismál sjó-
mannastéttarinnar. Þannig hefur
þvi tekist að fá betri aðstöðu til að
vinna gagn málefnum stéttarinn-
ar.
Held ég því að þegar á heildar-
starfið er litið megi vel við una
með árangur þessa 40 ára tíma-
bils.
En hvað um framtíðina?
Auk þeirra sígildu verkefna,
sem verið hafa á dagskrá frá upp-
hafi og verða um ókomna framtíð,
og ég hefi áður nefnt, held ég að
eitt brýnasta verkefni framtíðar-
innar sé innbyrðis uppbygging,
það er að segja að vinna að stór-
auknu starfi sambandsfélaganna
og styrkja þannig sambandið og
ennfremur og um leið að vinna að
auknu samstarfi sjómannasam-
takanna í heild.
Það er von mín að það aukna
samstarf sem hafið var í vor milli
Sjómannasambands íslands og
Farmannasambandsins við und-
irbúning og gerð kjarasamning-
anna í sumar hafi náð að skjóta
þeim rótum að ekki verði upp rif-
ið, en nái að vaxa öllum til hags-
bóta. Ég veit að samböndin uxu í
augum félagsmanna sinna af
þessu samstarfi og ég veit líka að
margir binda miklar vonir við
405
Skoðun og viðgerðir
gúmmfbáta allt árið.
Kókosdreglar og ódýr
teppi fyrirliggjandi.
gúmmIbAtaþjónustan
Grandagarði 13 • Sfmi 14010
VÍKINGUR