Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1977, Síða 35
tannlækni í mörg ár, en hafa þó
algjörlega heilar og fallegar tenn-
ur. En hvað sem því líður, þá er
það með sjómenn eins og aðra, að
þeir vilja helst leita til síns eigin
læknis, eða að minnsta kosti ein-
hvers í heimalandinu. Ekki þarf
orsökin að vera sú, að þeir van-
treysti fagkunnáttu þessara suð-
rænu lækna, heldur getur verið
um sálrænt fyrirbrigði að ræða og
svo síðast, en ekki síst, vankunn-
átta í máli, sem veldur því að hið
nauðsynlega samband milli sjúkl-
ings og læknis, er ekki til að dreifa,
svo ekki sé talað um hreinan mis-
skilning.
Annar sjómaður segir farir sínar
ekki sléttar: — Við vorum staddir
í bæ einum í Suðurameríku, þar
sem ég þurfti á tannlækni að
halda. Stofa hans var staðsett rétt
fyrir utan bæinn og orsökina taldi
ég þá að bæjarbúar vildu gjarnan
hlífa sér við öskur fórnardýranna.
Þar var ekkert rafmagn til að snúa
tannbornum, svo að notaður var
annar aflgjafi, sem sé annar fótur
læknisins, sem steig á fótfjöl í
sambandi við tannhjól með reim.
Þetta aðaltannhjól sneri svo öðru
tannhjóli, sem var í sambandi við
tannhjól, sem sneri bornum.
Þarna hamaðist maðurinn á fót-
fjölinni, en borinn á tönninni. Ég
varð svo yfir mig undrandi og
hrifinn af þessari snjöllu tækni að
ég öskraði ekkert af sársauka,
hafði bara ekki tíma til þess fyrir
hlátri. Aðgerðin tókst með ágæt-
um og dugði vel og lengi.
Tungumála-
flækja
Ensk kona, nokkuð við aldur,
hafði fengið hjá vinkonu sinni
heimilisfang kennara í smábæ í
Þýskalandi. Hana langaði til að
fara þangað í sumarfríinu og
skrifaði honum því og bað hann
að útvega sér herbergi á rólegum
stað.
Skömmu eftir að hún sendi
bréfið fékk hún eftirþanka, skrif-
aði annað bréf og óskaði nánari
upplýsinga um WC á staðnum.
Kennarinn, sem ekki var sterk-
ur í enskunni og hafði aldrei heyrt
þessa styttingu fyrr, sneri sér til
prestsins og bað hann hjálpar.
Eftir að presturinn fékk að vita,
að sú enska var við aldur, fróm og
vel kristin, var hann sannfærður
um, að orðið þýddi Wood Chapel,
eða skógarkirkjan. Hann skrifaði
því þeirri ensku eftirfarandi:
WC, er þér spyrjið um, liggur
um 2 kílómetra frá húsinu, sem
þér eigið að búa í, staðsett í fögr-
um barrskógarlundi; opið þriðju-
daga og föstudaga. Þetta er
kannski óþægilegt fyrir yður, ef
þér ráðgerið reglulegar eða dag-
legar heimsóknir. Það mun þó
gleðja yður að vita, að margt fólk
tekur með sér mat og dvelst þar
allan daginn til að njóta hins fagra
umhverfis, en þar sem svo margir
koma, sérstaklega á sumrin, ráð-
legg ég yður að mæta í tæka tíð.
Venjulega er nóg pláss. Þarna
eru um áttatíu sæti... og kvenfólk
gengur auðvitað fyrir. Klukka
hringir tíu mínútum áður en WC
er opnað.
Ég mæli með því, að þér mætið
tímanlega á föstudögum, þá er
orgelundirleikur og hljómburður-
inn er svo góður, hið veikasta
hljóð eða stuna frá gestunum
endurómar um staðinn . ..“
NyK Viny I
SJÓMENN
Þetta merki bregst-ykkur aldrei
Veljið það,- Nótið VINYL-vettl-
inga í ykkar erfiða starfi.
Starf ykkar krefst sterkustu og
endingarbeztu vetflinganna.
SJÓKLÆÐAGERÐIN HF.
Skúlagötu 51 - Reykjavlk
Slmar: 12063 og 14085.
VÍKINGUR
419