Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1977, Side 38

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1977, Side 38
TVÆR ATHYGLISVERÐAR BÆKUR Víkingnum hefir borist tvær nýútkomnar bækur: í stillu bg stormi, eftir Jóhann J. E. Kúld og Skriftir, — „blandaðir ávextir“; fjölþætt efni, eftir Jónas Guð- mundsson. Við lestur bókanna tveggja virðist mér þessir tveir rithöfundar eiga tvennt sameiginlegt: Þeir eru báðir fyrrverandi sjómenn og þeir eiga til að bera fjögurra stjörnu ritleikni, en með svo gjörólíkum stílbrigðum að þeir eru nánast tveggja kynslóða menn, enda ald- ursmunur um fjórðungur aldar. Rithöfundarnir eru hvorugur viðvaningur á ritvellinum. Þetta er níunda bók Jóhanns, auk ótal rit- gerða og greina um sjávarútvegs- og fiskimál. Hefur sívakandi áhugi hans í þeim efnum reynst landsmönnum mikilsverður fróð- leikur. í undirtitli bókar Jóhanns stendur: „Upphaf Kúldsævin- týra.“ Er skemmst frá að segja, að með hverjum kafla bókarinnar óx áhugi minn fyrir efninu. Jóhann dregur létt og leikandi fram svipmyndir atburða og per- sóna, svo sannar og lifandi, að undirritaður, sem þekkti þær, bæði af afspurn og í reynd endur- lifir drjúgan þátt sinnar eigin æsku. Jóhann J. E. Kúld fer vel af stað með upphaf síns lífsævintýris. Ég bíð framhaldsins. Jónas Guðmundsson er, eins og áður segir rithöfundur af yngri kynslóð. „Skriftir“, er fjölbreytt að efni. Viðtöl hans við nokkra gagn- merka heiðursmenn, sem hver á sínu sviði hefir markað spor í okkar þjóðlífssögu vekur þá hugsun, að þeim hefði mátt gera frekari skil og að margvíslegir þættir úr æviskeiði þeirra bíði frekari úrvinnslu. Þrátt fyrir þetta hefir Jónasi tekist furðuvel að draga fram í leiftursýn nokkur skapeinkenni sinna viðmælenda í samþjöppuðu formi, á þann hátt, að persónurnar vekja verðskuldaða athygli. Engin tök eru á, að gera grein- um og smásögum Jónasar nein viðhlítandi skil, rúmsins vegna. Hann hefir geysilega frjótt hugmyndaflug, er ávallt skemmtilegur. Hann mun seint verða þurraus- inn sem rithöfundur og margt gefur til kynna, að hann búi yfir ótvíræðum hæfileikum, sem munu njóta sín, þegar hann gefur sér tíma frá dagsins önn til að rækta þá. En slíkt krefst sjálfsaga. G. Jensson A JQHANN J.E.KÖLD I STILLU OG STORMI Hraðfrystihús— Saltf iskverkun Kaupum og seljum sjávarafurðir Útgerð — Netagerð Seljum ís. Óskum starfsfólki okkar og við- skiptavinum gleðilegra jóla og far- sæls komandi árs. Þökkum sam- starfið á liðnu ári. FISKVINNSL A H.F. Hafnargötu 47 Seyðisfirði Símar: 97-2400 — 2401 422 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.