Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1977, Blaðsíða 47

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1977, Blaðsíða 47
Hann situr niður við sjóinn. Á hálf þurrum þarabing, efst undir bökkunum, þar situr hann og horfir út á blátt, óendanlegt hafið, að því er virðist. Hann er gamall maður. Gullið sólskinið flýtur á logn- bárunum, sem strjúkast við þangivaxnar hleinarnar. Fjaran er mjúk og þvöl. Hann hlífir augunum með hendinni, því að sólin er björt og heit. Hún skín á hvítt hár hans og hrukkótt andlit og á marglit skeljabrotin í fjörunni. Það er morgunn, yndislega fag- ur morgunn. Logndökkvinn ligg- ur ennþá á sjónum, kyrr og mild- ur. Já, það var fyrir mörgum árum, já, mörgum, þarna langt, langt úti. Þarna, sem ljósgrá móða góðviðr- isins faldi bláa himinröndina út við hafið, þarna út í fjarlægðinni. Þar sem víður, fagur sjóndeildar- hringurinn rann saman í himin og haf. Þar lágu leiðir hans einu sinni. „Ójá,“ segir hann lágt. „Það var þá, en þegar að maður er orðinn gamall, þá getur maður aðeins horft og hugsað. Meðan sjónin gefur manni hlutdeild í lífinu og hugurinn á sér minningar, er maður þó enn til. Þegar maður var ungur. Ó, þau skrýtnu orð. Skyldi nokkrum detta það í hug, að maður hafi verið ungur. Gengið hraustur og glaður yfir malar- kambinn þarna og hrint gamla bátnum, sem þarna lá, út í þunga og háa ölduna, og haldið út á djúpið til að sækja björg í bú. Þarna lá hann, gamli báturinn hans, vindsoginn og skellóttur, einskisnýtur og hrörlegur, af öll- um gleymdur. Nei, björtu árin komu ekki til baka. Þau bárust burtu eins og þangið, urðu sólblettir í fjarska. Þungur, tregafullur niður hafsins heyrðist ekki framar, þó að hlust- að væri. Nú horfði maður á bless- Steinunn Þ. Guðmundsdóttir: Bát- urinn hans afa uð stráin og sá þau titra, geymdur bak við gluggagler í hlýjum bæn- um, og rölti út með stafprik, að- eins þegar best og blíðast var. En það var ekki langt niður að bátnum hans, sem betur fór. Það veitti honum stundarstyttingu að horfa á hann og hugsa um hann. Þarna kúrði hann, blessaður, eins og þreyttur, sofandi fugl í bless- uðu sólskininu, sem féll yfir hann frá öllum hliðum. Og gamli maðurinn stendur á fætur, og erfiðar sig áfram niður ójafna fjöruna. Þetta voru hálf- gerðar rökkurstundir að sitja og bíða. Sóldagar og svipmikið líf var vissulega horfið. Ævikvöldið beið eins og kyrrlátt lognið þarna. Það beið eftir hafgolunni, sem kom úr fjarlægðinni, hljóðlát og ákveðin. Ójá, menn gengu veg, tóku upp steina, en að lokum féll vegurinn saman. Víst var þetta stutt leið, hans eigin hendur höfðu gert hana greiðfærari. Báturinn hans lá í sléttri, fallegri vör, til að hlífa hon- um við aðkasti storma og sjóa. Þarna lá hann í blessaðri sólinni, sem leysti upp á honum tjörubik- ið. Það barst til hans í ljúfum ilmi með blænum og sjávarloftinu. Þarna tindraði það og glitraði, eins og táraskin í dökkum augum. Ójá, svona var hann í dag, beið eftir höndum hans, beið eftir því, að við hann væri talað. Hann þarfnaðist vinar, eins og hann sjálfur. Hann var hnípinn og ang- urvær í þessari tilgangslausu hvíld sinni. Hann bar áreiðanlega þrá í brjósti eins og hann sjálfur, lang- aði ennþá einu sinni til að finna bláan sjóinn við brjóst sitt. Láta hafgoluna lyfta sér mjúklega milli bárutoppanna með hvítt sóllitað seglið. Ójá, svona var lífið. Þeir voru báðir orðnir gamlir, en þeir voru ósáttir við þessa tilveru, sem lét þá báða vera aumari en ástæða var til. Hvaða vit var í því að fara með blessaðan gamla bátinn hans svo hátt upp í naustið, að enginn gat hreyft við honum, nema með hjálp fleiri manna. En þessi stund var þó blessuð, fá að standa við gamla bátinn og tala við hann. En hvað þeir vissu það vel báðir, að þeim væri trú- andi hvor fyrir öðrum. Eins og það væri einhver goðgá að fara út fyrir landsteinana og fá að gutla ofurlítið í logninu. „Þú gætir haft illt af því,“ sagði fólkið. Og hvað var þetta illa? Var það ekki ein- mitt það, sem hann var að bíða eftir? Onei, vilji var ekki sama og athöfn, nú gat hann ekki hjálpað honum lengur, hvað feginn sem hann vildi. Það var sama hvað hann sagði, nú virtist enginn trúa því, að hann hefði verið ungur og athafnasamur. „Hann, karlfausk- urinn, sem sat alltaf á sama stað og vann ekkert, sem gagn var í, lotinn og gamall, sem læddist niður í fjöruna á skjögrandi fótum.“ O- nei, fólkið bara hló, mundi ekki, hugsaði bara umþað, sem það mundi og þekkti úr eigin lífi. Það, sem lét það vera sterkara og valdameira í umhverfinu, allt annað mætti gleymast. VÍKINGUR 431
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.