Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1977, Side 66
O.ELUNGSEN HF
ÁNANAUSTUM
SlMI 28855
Elzta og staersta veiSarfaera-
verzlun landsins.
ingatækjum, auk sjálfstýringar.
Það vekur athygli að unnt er að
lesa vökvamagn í tönkum af
mælum.
Ágætar íbúðir eru í skipinu;
klefi skipstjóra og þrír tveggja
manna klefar, en þeir eru allir of-
anþilja.
Þá er eldhús og matsalur sam-
byggt og búið öllum þekktum
heimilistækjum.
Mjög mikil áhersla er lögð á alla
sjálfvirkni og hagræði.
Fiskilest er 164 rúmm., ein-
angruð og klædd áli.
Skipið hefur vakið gífurlega at-
hygli útgerðarmanna.
Séö frameftir þilfari Vonarinnar. Tvískipt togvindan er sitthvoru megin við opið í JG tók saman
aðgerðarrýmið. Netavindurnar aftan við stýrishúsið.
Að lokinni slægingu er fiskur-
inn þveginn í „salt“-þvottavél og
þaðan fer hann í fiskilest, þar sem
hann er hillulagður og ísaður, en
60 cm eru milli hilla.
Skipshöfn og tæki
Von er búin nýrri sjálfvirkri
vindutækni (Rapp Autotrawl
system), þannig að vindurnar
bregðast á sjálfvirkan hátt við
botnfestum og öðru sem fyrir
veiðarfærið kemur á togi. Þess-
vegna er unnt að hafa færri menn
á dekki, auk þess sem kerfið
dregur úr rifrildi.
Þetta er ekki óþekkt fyrir-
komulag á stærri skuttogurum, en
telst til nýjunga á smáskipum.
Von er búin til botnveiða, en
ekkert er því til fyrirstöðu að
skipið geti veitt með flotvörpu.
Sex manna áhöfn verður á
Voninni og verður skipið á þorsk-
veiðum og mun veiða allar al-
gengar tegundir botnfiska.
Veiðarfæri, þar á meðal hlerar
og togvírar eru af breskri gerð.
Von er 26.9 metra löng, 7.20 m á
breidd og djúpristan er 3.45 m.
Skrokklagið er líkt og á skipum
sem skipasmíðastöðin hefur
framleitt undanfarin ár, þ.e.a.s.
undir sjólínu en gaflskutur og
stafnlínur eru unnar sérstaklega
með tilliti til yfirbyggingar og
veiða.
Skipið er úr stáli, rafsoðið og
það tekur 32.000 lítra af eldsneyti í
geyma, en auk þess er daghylki í
vélarrúmi.
Botntankar eru undir fiskilest.
Unnt er að dæla olíu milli tanka
að vild.
Skipið er knúið 685 hestafla
Mirrlees Blackstone aðalvél, sem
er niðurgíruð og það er með
skiptiskrúfu í skrúfuhring.
Ganghraði er 11 hnútar.
Síðan kemur nákvæm lýsing á
vélbúnaði, þar á meðal á vökva-
knúnum vindum. Þá er það búið
vönduðum fjarskipta- og sigl-
Skipstjórinn Peter Nolsoe á efrl
myndinni, en vélstjóri Jonleif Joensen
á neðri myndinni, en sem fram kemur í
greininni er skipið í eigu skipverja.
450
VÍKINGUR