Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1977, Blaðsíða 69
Hin nýja fullkomna fiskimjölsverksmiðja í Halsa, stendur í fögru umhverfi.
Við þá framleiðslu hefir verið
gætt fyllsta hreinlætis við öflun
hráefnis og framleiðsluna og hef-
ur þetta framtak gefið svo góða
raun í viðkomandi löndum, að
tímabært þótti að byggja verk-
smiðju, sérstaklega hannaða til
framleiðslu manneldismjöls.
Fyrirtækið Stord Bartz A/S í
Bergen hefir um árabil staðið
einna fremst norskra fyrirtækja í
Noregi í hönnun og byggingu
fiskimjölsverksmiðja víða um
heim.
Hefir fyrirtækið unnið síðustu
5-6 ár að rannsóknum og próf-
unum í þeim tilgangi að byggja
verksmiðju, sem uppfyllti ströng-
ustu kröfur um hreinlæti við að
framleiða kjarnamjöl til blönd-
unar í aðrar matvælategundir,
sérstaklega úr jurtaríkinu og þá
verið um framtíðarmakmið að
ræða, til sölu á erlendum mörk-
uðum.
Þessi nýja verksmiðja er að
mestu byggð úr ryðfríum efnum,
sem auðvelt er að hreinsa og hafa
eftirlit með.
Öll tæki til hreinsunar eru mjög
nýtískuleg; svokölluð „cleaning in
place“-tæki.
Gufa og lofttegundir innan
verksmiðjunnar eru þéttuð og
þvegin burt með sjó.
Öllum úrgangsefnum er safnað
og þau hreinsuð frá, til að koma í
veg fyrir mengun frá verksmiðj-
unni.
í aðalatriðum er þessi nýja
verksmiðja byggð á hinni gömlu
hefðbundnu aðferð, sem notuð
hefir verið í síldar- og fiskimjöls-
verksmiðjum í áratugi.
Hinsvegar hafa stórkostlegar
framfarir átt sér stað hvað snertir
efni, vinnslutækni og hreinlæti
við framleiðsluna, með þeim ár-
angri, að hráefnið; loðna, makríll
og síld kemur úr verksmiðjunni
sem fyrsta flokks eggjahvítuefni
til blöndunar í önnur matvæli.
Endursagt úr Fiskaren
G.J.
Drifkeðjur og
keðjuhjól
Flestar stœrðir ávallt
fyrirliggjandi.
Verðið mjög
hagstætt.
LANDSSMIÐJAN
SlMI 20610
VÍKINGUR
453