Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1977, Blaðsíða 70
Ný gerð björgunarbáts
í norskt skip
Um borð í hið nýbyggða skip
Wilh. Wilhelmsens, m/s „Tar-
coola“, hefur verið komið fyrir
algjörlega nýrri gerð björgunar-
báts og er þetta fyrsta skipið í
heiminum, sem fær þessa ný-
lundu. Báturinn, sem er yfir-
byggður, hefur þann kost framyfir
hina hefðbundnu björgunarbáta,
að hægt er að sjósetja hann frá
skipinu á marga mismunandi
vegu.
Aðalatriðið er, að í neyðartil-
fellum fara skipverjar í bátinn áð-
ur en hann er sjósettur, þar sem
hann er staðsettur á öruggum stað
um borð. Síðan losnar hann frá
skipinu á eftirfarandi þrjá vegu:
— Hann flýtur sjálfkrafa ef
skipið sekkur.
— Rennur niður eftir hallandi
sleða.
— Hangir í einfaldri bómu.
Hvaða aðferð við sjósetninguna
er notuð, fer eftir aðstæðum í
hverju einstaka tilfelli. Að öðru
leyti er báturinn útbúinn tveim
lúgum, annarri ofan á yfirbygg-
ingunni, hinni á hlið, til björgunar
þeim, sem lenda í sjónum.
Báturinn hefur verið reyndur
við ýmis tækifæri á sl. ári og með-
fylgjandi myndir sýna eina slíka,
sem fram fór við Eyrarsunds-
skipasmíðastöðina í Landskrona
hinn 15. júní sl., þar sem hann
rennur óhindrað frá skipinu.
Hingað til, hafa allar tilraunir
með bátinn reynst vel heppnaðar.
Eins og áður er sagt, er báturinn
nú kominn um borð í m/s „Tar-
coola“, þar sem hann verður
reyndur áfram, við ýmsar og
breytilegar aðstæður, áður en
endanleg afstaða verður tekin um
ágæti hans í framtíðinni, en það
skal tekið fram, nú þegar, að allt
bendir til þess að þessi björgunar-
bátur auki verulega öryggi sjófar-
enda. M/s. „Tarcoola“, hefur
siglingar í júlímánuði, er auk
bátsins, að sjálfsögðu, útbúin öll-
um venjulegum öryggisbúnaði.
Úr Norsk Sjomannsforbund,
júlí/ágúst 1977.
(
\
454
VÍKINGUR