Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1981, Page 49

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1981, Page 49
borðsgluggann og andæfði, leit annað slagið á mig og brosti. Á slíkum augnablikum gat ég ekki betur séð en meðaumkun væri í svipnum; eins og hann vildi segja að það þýddi ekkert að æsa sig upp út af fiskiríinu, hvort sem það væri gott eða lélegt. „Helvíti er hann nú tregur!“ stundi ég. Matthías hló og sagði: „Ég segi nú eins og Kiddi Sig var vanur að segja þegar illa gekk og allir voru að moka upp síldinni í kringum okkur: Einhverntíma Hlýtur röðin að koma að okkur!“ Og svo sannarlega kom röðin að okkur. í þrjár síðustu trossurnar var ágætis fiskirí, miðað við það sem á undan var gengið. Þegar búið var að draga var giskað á að aflinn væri nálægt 8 tonnum. Síðasta trossan var lögð, drek- inn látinn fara og baujunni hent á eftir. Því næst var sett á fulla ferð og stefnan tekin fyrir Gjögur. Komið var leiðinda veður, norðaustan stinningskaldi og hríð. Það var ekki útlit fyrir sjóveður á morgun. G.A. Utan hringsins Ég geng í hring í kringum allt, sem er. Og innan þessa hrings er veröld þín Minn skuggi féll um stund á gluggans gler. Ég gengíhring í kringum allt, sem er. Og utan þessa hrings er veröld mín. Steinn Steinar. Svo var það Hafnfirðingurinn sem gerði gat á regnhlífina sína. Hann vildi fylgjast með því hvenær hætti að rigna. ★ Nokkrir sagðir af Hafnfirðingum: Hefurðu heyrt um Reykvíkinginn sem varð fyrir slysi, þegar hann var að strauja? Hann datt út um gluggann. ★ Af hverju hafa reykvískir hundar flöt trýni? Þeir elta kyrrstæða bíla. ★ Hefurðu heyrt um reykvíska sómamanninn sem aldrei fór út með konunni sinni? Móðir hans sáluga hafði varað hann við því að fara út með giftum konum. ★ Þegar ég finn hjá mér þörf til að trimma, legg ég mig þar til þörfin er liðin hjá. ★ — Einsog mig grunaði, það er nikótín- eitrun! VÍKINGUR 49

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.