Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1981, Blaðsíða 66
Sýningin
BÁTUR OG BÚNAÐUR
Bátasýning í Sýningarhöllinni
á Ártúnshöfða
um páskana, 11.-20. aprfl 1081
Dagana 11 til 20 n.k. verður Bátasýning í
Sýningahöllinni við Bíldshöföa, á vegum
Snarfara, félags sportbátaeigenda. Henni
er valið heitið „BÁTUR OG BÚNAÐUR,
sem sport og atvinnutæki ’81 “. Tilgangur
sýningarinnar er að sýna báta og búnað
þeirra, og vekja áhuga fólks á bátasporti,
útivist og öórum hlutum sem til heyra.
Á sýningunni verður margt að sjá, m.a.
handfæra- og trillubáta, sportbáta, ýmsar
tegundir véla, öryggisútbúnað,
fjarskiptatæki, vióleguútbúnað,
köfunartæki, verkfæri og reiðhjól og margt
fleira.
Meðan sýningin stendur yfir verður settur
saman seglbátur sem fyrir hvern meðal
mann tekur sextíu tíma að setja saman.
Þarna verður sundlaug, þar sem börn geta
leikió sér aö meðan þeir eldri eru að skoða
sig um. Kvikmyndasýningar verða daglega,
teiknimyndir fyrir börn, ýmsar myndir um
sjósport.
Módelsamtökin hafa tekió að sér að annast
„lifandi vörukynningu” á hvers kyns vörum í
tengslum við sýninguna. Undirbúningur er
langt kominn og hafa mörg fyrirtæki og
stofnanir staófest þátttöku. Auk
verslunarfyrirtækja, munu Sjómælingar
íslands, Siglingamálastjóri, Félag
Farstöðvareigenda, Siglingasamband
íslands og björgunarsveitir kynna störf sín.
Skrifstofa sýningarstjórnar er í
Austurstræti 17, 4. hæð sími 12019.
Framkvæmdastjóri er Jörundur
Markússon.
66
VÍKINGUR