Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1982, Side 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1982, Side 6
Samstaða um veiðarnar 1983 — stöðugt þarf að leita nýrra leiða við stjórnun veiða Eftir þœr breytingar sem gerðar hafa verið á „skrapdagakerfinu“má segja að víðtœk samstaða hafi ríkt um tilhögun þorskveiða á árinu 1982. Ófyrirsjáanlegur aflabrestur setur að sjálfsögðu strik í útgerð, en segir í sjálfu sér ekki til um ágœti tilhögunar veiðanna. Sú veiðtilhögun sem verið hefur við lýði á árinu 1982 er afrakstur nokkurra ára þróunar á því hvernig haga beri stjórnun fiskveiðanna. Er vel að um þœr aðferðir hafi rikt svo víðtœk samstaða og raun ber vitni, en sam- staðan gerir stjórnunaraðferðirnar árangursrik- ari en ella. Ekki er ástœða til að œtla annað en fullt tillit verði tekið til ábendinga hagsmunaaðila við endurbœtur á veiðifyrirkomulaginu á árinu 1983 í Ijósi reynslunnar frá 1982. Þrátt fyrir svo góðan einhug um fiskveiði- stjórnun hlýtur að vera fyllilega tímabœrt fyrir sjómenn jafnt og aðra sem hagsmuna hafa að gæta í sjávarútvegi, hvort sú þróaða aðferð sem flestir hafa lýst ánœgju sinni með, skilar sjó- mönnum og útgerð því besta sem fáanlegt er með stjórnun fikveiða. Sjómenn mega ekki sofna á verðinum við leit að árangursríkustu aðferðunum við stjórnun veiða. Aðferðum sem ganga sem lengst í að sameina þá kosti sem mest eru um verðir. Þá að skipin komi með besta mögulega hráefni að landi, útgerðarkostnaður sé í lágmarki og að hœfileikar einstaklinganna við fiskveiðar nýtist sem best. Forráðamannastefna FFSÍ 1982 ályktaði um tilhögun þorskveiða á árinu 1983, á þann veg að bátum yrði úthlutað 48,89% þorskaflans er tog- urum 51,11%. Veiðitíma bátanna verði skipt íþrjú jafnlöng tímabil, janúar til vertíðaloka, vertíðar- lok til ágúst og september fram I desember. Kveðið verði á um aflahámark innan veiðitíma- bila og jafnframt sett ákvœði um veiðibann í til- tekinn tíma. Svipuð skipting verði á veiðitíma togaranna auk nánari útfœrslu á tilhögun veiða togaranna. Forráðamannaráðstefna FFSÍ gerði ráð fyrir 450 þús. tonna heidlarafla á árinu 1983 en sú ályktun var gerð áður en skýrsla Hafrannsókn- arstofnunar um ástand nytjastofna á íslandsmið- um kom út. í skýrslunni er sem kunnugt er mœlt með 350 þús. tonna hámarksafla á árinu 1983. 1. desember efndi sjávarútvegsráðherra til fundar með fulltrúum fiskvinnslu, útgerðar og sjómanna þar sem tœkifœri gafst til skoðana- skipta við sérfrœðinga Hafrannsóknarstofnunar. Þar lét sjávarútvegsráðherra upp þá skoðun sína að stefna beri að 370 þúsund tonna þorskafla á nœsta ári, að gefnum þeim forsendum er fiski- frœðingar reikna nú með. Hinsvegar geti frekari rannsóknarleiðangrar breytt þessari tölu til eða frá eftir því hverjar niðurstöður þeirra kunnu að verða. Fyrst sjávarútvegsráðherra afræðurað fara svo nœrri tillögum fiskifræðinga og raun ber vitni, þá hljóta sjómenn að vona að sem næst verði farið tillögum þeirra um tilhögun veiðanna þó svo að í öðru hlutfalli verði en þeir helst hefðu óskað. B.H. 6 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.