Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1982, Blaðsíða 29
Sven Sverdup Jensen horfir inn í tilraunatankinn í Hirtshals.
og 1:20 og er hinn stærsti sem vit- Þá sagði Sverdrup, að allt frá
að er um,“ segir Sverdrup. því að framkvæmdir hefðu hafist
CALLESEN DIESEL
ÚTGERÐARMENN
Hefur þú sem útgeröarmaður efni á að
kaupa aðalvél i skip án undangenginnar
athugunnar á eftirfarandi atriöum hjá vélar-
seljendum eða notendum.
Við vonum að vlð
heyrum frá þér ef þig
vantarþessar
upplýsingar eða
hafir samband við
einhvern þeirra sem
eru með CALLESEN
aöalvél.
1. Brennsluoliunotk-
un pr. hestorku-
tíma
2. Smurolíunotkun
3. Bilanatiðni
4. Varahiutaiager
5. Þjónusta
6. Verð miöað við
hestöfl
í gamla skipiö eða
nýsmiöi —
CALLESEN
Kynnist
kostum
Callesen
andri hf.
UMBOÐS OG HEILDVERZLUN
Armúla 28, Pósthóll 1128
Símar 83066, Rvík.
við tankinn hefði fólk frá hinum
ýmsu löndum fylgst með byggingu
hans. Mætti þar nefna menn frá
Bandaríkjunum, Ástralíu, Kan-
ada, íslandi og Noregi. „Þó svo að
tankurinn hafi verið vígður nú
þegar, hefst leiga á honum ekki
fyrr en hinn 1. janúar næst kom-
andi,“ sagði Sverdrup.
„Ég vona að tilraunatankurinn
eigi eftir að reynast mikilsverður
til rannsókna á vörpum í framtíð-
inni og væntanlega eiga vísinda-
menn, útgerðarmenn og skipstjór-
ar eftir að vera mikið á ferðinni
hér. Þá munum við bjóða fyrir-
tækjum að leigja sýningarbása og
fundaraðstöðu hér í Norðursjáv-
armiðstöðinni."
Rætt hefur verið um að hvert
námskeið í tilraunatanknum muni
standa í þrjá daga og er leiga á
tanknum 20 þúsund danskar
krónur á dag.
Englendingurinn David Wil-
eman er tilraunastjóri við tankinn
í Hirtshals, en hann var áður til-
raunastjóri við veiðarfæratankinn
í Hull, sem margir íslenskir skip-
stjórnarmenn hafa sótt heim.
„Það er gífurlegur munur á að
starfa við tankinn hér eða í Hull,“
sagði Wileman þegar rætt var við
hann. „Fyrst ber að nefna að
tankurinn hér er mikið stærri en
þar og í öðru lagi hafa þeir sem
sækja hér námskeið mikið meira
svigrúm fyrir framan gluggahlið
tanksins. Þá er allur mælibúnaður
fullkomnari hér og sömuleiðis er
hægt að vera með stærri módel
hér, þar sem tankurinn er bæði
lengri og breiðari en sá sem er í
HULL.
Wileman kvaðst hafa tekið á
móti mörgum íslendingum í
HULL, en hann flutti til Hirtshals
haustið 1980 til að fylgjast með
byggingu tanksins. „Ég vona að-
eins að ég eigi eftir að sjá sem
flesta íslendinga koma hér á nám-
skeið hjá okkur.“
VÍKINGUR
29