Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1982, Blaðsíða 45

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1982, Blaðsíða 45
Skipshöfnin á Ægi í lok fyrra þorskastríðsins. Stór hluti áhafnarinnar fór yfir á Tý þegar hann kom nýr 1975. Ólafur er sjötti frá vinstri, fjórði frá vinstri er Sigurður Bergsson og fimmti Elías Sveinbjörnsson, fyrir framan Ólaf situr Friðgeir Ólafsson, stýrimaður og næstu Guðmundur Kæmested, skipstjóri. Þessirfimm voru lengi saman á varðskipunum. Þorskastríðin ólík hvort öðru — Var ekki oft mikið um að vera í þorskastríðunum tveim? — Jú, en þau voru ólík. í stríð- inu um 50 mílurnar var meira um hreinar klippingar og þær gátu oft verið spennandi. Klippurnar voru á vír og ég stjórnaði spilinu sem bátsmaður. Maður fylgdi fyrir- mælum skipstjórans um að slaka út t.d. 200 föðmum og setti svo spilið fast og bremsurnar á. Það þurfli stundum að fara ansi ná- lægt togurunum. Við beittum byssunum tvisvar í fyrra þorska- stríðinu. Einu sinni var dráttar- bátur búinn að elta okkur lengi, var alltaf í rassinum á okkur svo við gátum ekki hægt á okkur eins og þurfti til að klippa. Guðmund- ur gaf okkur þá fyrirmæli um að skjóta á hann með byssunni sem er aftur í skut. Það var bara púðurskot en gaf frá sér ógurlegan hvell. Þeir hentu sér allir niður á dráttarbátnum þegar þeir heyrðu hávaðann. Við skutum svo alvöru skotum að honum Everton í lok fyrra stríðsins. Það var reyndar loka- punktur þeirra átaka. VÍKINGUR Þegar Týr kom ný, 1975, fór nær öll áhöfnin af Ægi með Guð- mundi á hann. Þá var baráttan um 200 mílurnar að hefjast og má segja að þau átök hafi likst hreinni geðveiki. Mér finnst mesta rnildi að ekki urðu stórslys á mönnum, ég veit ekki hverju það er að þakka. Þá var herskipafloti Bret- anna svo stór og sífelldar ásigl- ingar. Það var alveg með ólíkind- um hvað skip eins og Týr, Þór, Ver og Baldur vöru illa farin eftir átökin. Siglt inn í Tý Ég var með þegar siglt var inn í Tý síðast. Stýrimaður var veikur svo ég var uppi í brú þegar þetta gerðist. Það var búið að vera hálf- gert tríðsástand á svæðinu, margir togarar, mörg herskip og nokkur varðskip. Við vorum nýbúnir að klippa af einum þegar herskipið sigldi á 35 mílna ferð inn í hliðina á okkur. Skipið lagðist á hliðina en herskipið festist við okkur og keyrði okkur upp úr kafinu á ferðinni. Guðmundur bað mig strax að athuga hvort strákarnir sem voru á spilinu væru á lífi og sem betur fer gátu þeir haldið sér meðan skipið lá á hliðinni. Þeir voru auðvitað hundblautir og kaldir. Við vorum að reyna að ausa það mesta þegar herskipið kom aftur á fleygiferð og Guð- mundur kallar til okkar að koma okkur í skjól. Við komum okkur fyrir inn í þyrluskýli og þeir sigldu á nákvæmlega sama stað á okkur aftur. Við kíktum út úr skýlinu og okkur sýndist þá eins og búið væri að sigla aftasta hlutann á Tý í kaf því við sáum bara stefnið á her- skipinu en ekki aftasta hlutann. Það var vegna þess að stór hluti stefnisins brotnaði af herskipinu þess vegna leit þetta svona út. Skömmu seinna var keyrt illa inn í Ver, síðan hjöðnuðu átökin enda voru allir búnir að fá nóg. Ég held að Bretarnir hafi verið að sýna okkur mátt sinn, þeir vissu að þeir voru búnir að tapa stríðinu. Ég er á Tý þar til um áramót '19 og ’80. 1979 gifti ég migogflutti til Þorlákshafnar. Ég er tvígiftur, fyrri giftingin var 1974. Ég fékk ársleyfi frá Gæslunni og pláss á Jóni Vídalín frá Þorlákshöfn. Mig langaði að rifja upp togara- ntennskuna og kynnast skuttog- 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.