Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1982, Blaðsíða 17
Bátar í slipp hjá Hans Svendsen.
sviðum eru engir fremri íslend-
ingum.“
Hirtshals Vod- og Trawlbinderi
var stofnað árið 1941 og hefur
verið í eigu sömu fjölskyldunnar
síðan. Framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins þar í april s.l. var Willy
Hansen, er hann lést.
Paul Nielsen segir, að velta fyr-
irtækisins sé í kringum 20 milljónir
d.kr. á ári og helmingur fram-
leiðslunnar sé fluttur út. 25% af
útflutningnum fari til Grænlands,
en fyrirtækið hafi ennfremur við-
skiptavini í S-Ameríku, Banda-
ríkjunum, Bangladesh, á Ind-
landi, í Ástralíu á Nýfundnalandi
og á Nýja Sjálandi, svo einhver
lönd séu nefnd.
Þar til að síldveiðar í Norðursjó
voru stöðvaðar var uppsetning á
síldarnótum stór þáttur í rekstri
Hirtshals Vod- og Trawlbinderi,
en síðan þá hefur fyrirtækið sett
upp mikið af makríl nótum.“ Það
er eitt sem ég furða mig á og það er
hversu síldar- og loðnunætur eru
dýrar á íslandi og reyndar líka í
Noregi. Okkur reiknast nú til að
nætur frá okkur séu allt að helm-
ingi ódýrari en frá aðilum á ís-
landi og í Noregi,“ segir Paul
Verið var að ljúka við þessa yfirbyggingu í skipasmíðastöð Hans Svendsen.
Nielssen og bætir við að nauðsyn-
legt sé að fylgjast að verði á efninu
á hverjum tíma, því það sé ærið
mismunandi frá framleiðenda til
framleiðenda.
Hafa einangrað lestar
margra ísl. skipa
Hirtshals Skumisolering aps
nefnist fyrirtæki í Hirtshals sem er
með framkvæmdir út um alla
Danmörku og í nokkrum nálæg-
um löndum Danmerkur. Þetta er
tiltölulega ungt fyrirtæki, en það
sérhæfir sig í að einangra lestar
báta og skipa og sér þá jafnframt
um klæðningu á lestinni. Eigandi
fyrirtækisins Ole Ejstrup sagði
þegar við ræddum við hann, að
hans fyrirtæki hefði gengið frá
lestum flestra þeirra íslenzku
skipa, sem breytt hefur verið í
Danmörku og á þessu ári myndu
þeir einangra og gang frá að öllu
leiti nokkrum lestum í íslenzkum
fiskiskipum. „Einangrunarefnið
sem við notum er Polyurethan og
hefur reynst mjög vel í alla staði,
eins og dæmin sanna. Við erum nú
búnir að vinna við einangrun á
fiskiskipalestum í 15 ár og það
hefur sýnt sig, að því betur sem
lestarnar eru einangraðar, því
betri verða gæði fisksins," segir
Ole Ejstrup.
Ole segir ennfremur, að það sé
ekki aðeins á Norðurlöndunum,
sem þeir hafi átt við að einangra
lestar fiskiskipa, það hafi þeir
ennfremur gert í Miðjarðarhags-
löndum, Afríku og meira að segja í
Asíu.
VIKINGUR
17