Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1982, Blaðsíða 25
Módel af tilraunatanknum í Hirtshals.
bjartsýnir á að þegar allt verður
komið í fullan gang, muni mið-
stöðin hafa mikið að segja fyrir
bæinn, en nú er t.d. atvinnuleysi
þar töluvert.
Framkvæmdastjóri Dansk
Fiskeriteknologisk Institut ungur
tnaður að nafni Sven Sverdrup
Jéhsen tók á móti okkur og sýndi
fyrst húsakynnin, sem eru hin
glæsilegustu. Hann sagði fyrst að
Dansk Fiskeriteknologisk Institut
væri hluti af Akademiet for de
. Tekniske Videnskaper, sem
venjulega væri skammstafað ATV
í Danmörku. Markmið stofnunar-
innar er að auka veiðiþekkingu og
tækniþekkingu þeirra sem fást við
sjávarútveg, þannig að aflatækni
og hagkvæmniskostnaður verði
sem mestur. Þá má geta þess, að
stofnunin er sjálfseignarstofnun
og fær eingöngu fé af sölu á alls-
konar þjónustu og þekkingu sem
starfsmenn búa yfir. Þó er það yf-
irleitt svo, að stofnunin fær árlega
styrk úr einhverjum sjóðnum og
frá tækniráðuneytinu danska.
Þær deildir sem falla undir
Fiskeriteknologisk Institut eru til-
raunageymurinn, tilraunastöð og
hita/kuldadeild og ennfremur
upplýsingamiðstöð.
Tilraunastöðin hefuryfir 350 m2
rými að ráða. Þar er meðal annars
verkstæði, þar sem hægt er að þróa
og reyna ýmsar tegundir véla og
tækja, sem notuð eru um borð í
fiskiskipum eða við flutning og
geymslu á fiski. Hluti af verk-
stæðinu er notaður til athugana
Finn Nielsen Skibsradioservice A/S
Sala og viðgerðir á rafeindatækjum í skipum
Umboð fyrir eftirtalin fyrirtæki: Furuno. Skanti, SRA. R &
S. AP-navigator. Robertson.
„Siemens NMT símar.“
Havnen, 9850 Hirtshals
Sími: 08-94 13 22
VÍKINGUR
25