Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1982, Blaðsíða 53
Bandaríkjamarkaður:
SH og Coldwater
fluttu út 1300 tonn
— af ferskum fiskflökum fyrstu 8 mánuði ársins
Nordjydsk — Skipa- og vélaeftirlit — Sjáum um slipptökur um
Besigtigelseskontor alla Danmörku — Tjóna, -hleðslu og vörueft-
skipa- og vélaeftirlit irlit
P.O. Box16. — Eftirlit með lestun og losun — Eftirlit með nýsmíði og við-
9850 Hirtshals. gerðum á skipum
Sími: 08-94 41 00 — Fylgjumst meö vörugæö-
Telex: 67756 um.
Einkaumboð fyrir
DEUTZ og CATERPILLAR
Fullkomið þjónustu og viðgeröaverkstæöi
fyrir þessar vélategundir
seijum Junio dælur
Gates Kílreimar
FAG kúlulegur.
Önnumst allskonar véla- og skipaviðgerðir
ELLING &
EJSING A/S
VÉLAVERKSTÆÐI
Nordvestkajen, 9850 Hirtshals,
sími: 08-94 23 22
Frystihús innan Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna og Coldwater
Seafood Corp. í Bandaríkjunum
hafa sem kunnugt er flutt fersk
fiskflök, aðallega karfaflök, á
markað í Bandaríkjunum frá því í
fyrra. Hafa flutningar þessir verið
reglulegir, nema hvað þeir féllu
niður á meðan togararnir lágu
bundnir við bryggju vegna stöðv-
unar L.Í.Ú.
Hinn 30. september síðastliðinn
höfðu 1300 tonn af ferskum flök-
um verið flutt út til Bandaríkjanna
með flugvélum. Eins og fyrr segir
þá eru það aðallega karfaflök sem
hafa verið flutt út á þennan hátt,
en nokkurt magn hefur einnig
verið flutt út af öðrum flakateg-
undum. Stærstu sendingamar
hafa allar farið með flugvélum
bandaríska flugfélagsins Flying
Tigers, en ennfremur er eitthvert
magn sent í viku hverri með vélum
Flugleiða.
Nýting á karfa er talin vera um
33% í flakaframleiðslu, þannig að
ef miðað er við afla úr sjó, þá
koma flökin sem flutt hafa verið
út, úr 4000 tonnum af fiski.
Þegar flökin eru send út með
vélum Flying Tigers er almennt
flogið með þau til Boston.
VÍKINGUR
53