Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1982, Síða 35

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1982, Síða 35
vægi réttrar hönnunar fiskiskipa. Og skipahönnuðir sem vinna með lystibáta og flutningaskip verða að viðurkenna að það krefst mikillar þekkingar á sviði veiða og fisks til þess að geta hannað fiskiskip. Það krefst líka þess að þau skip sem til eru í dag séu grandskoðuð og reynt að bæta það sem betur mætti fara. Veiðarnar í dag takmarkast af ýmsum þáttum meðal annars aflatakmörkunum, verði og fleiru. Stærð fiskiskipa í dag gerir það að verkum að hægt er að færa í land mun meiri afla en áður. En það þýðir ekki að við munum ekki smíða ný fiskiskip næsta áratug- inn. Það liggur ljóst fyrir að veiði- ferðimar í framtíðinni munu verða styttri og þess vegna er full þörf á minni skipum. Víða um heim hafa því útgerðarmenn nú þegar minnkað við sig. Þeir hafa fengið sér 60 feta bát í stað 100 feta áður. Svo stutta báta sem 60 fet er erfitt að hanna þannig að þeir nái góðri ferð með venjulegri aðalvel'. Þeir eru einnig það litlir að hætta er á því að þeir verði hinir mestu velti- dallar, í þungum sjó. Það verður heldur ekki pláss fyrir eins manns lúkara, sturtur og rúmgóðan messa svo nokkur atriði séu tekin. Auk þess eyða slíkir bátar miklu eldsneyti í mótvindi. Þess vegna hef ég trú á því að fiskiskip fram- tíðarinnar verði þetta 80-100 fet auk smábáta. En við megum ekki gleyma því að mikilvægast er að byggja fiskiskip sem eru hagkvæm í rekstri og fara vel í sjó. 110 feta bátur þarf venjulega rninni vélar- styrk en 90 feta bátur til að halda sömu ferð í mótvindi. Hinn háa skrokkkostnað má minnka með vali á minni aðalvél sem leiðir svo af sér lægri olíukostnað. Auk þess lætur stærri bátur betur í sjó og getur þess vegna veitt í hvers kyns veðri. Aðalmál, það er lengd, breidd og djúprista eru mikilvæg til að ná sem hagkvæmastri olíu- notkun. En það má ekki gleyma því að ólík skrokkalögun getur þýtt allt að 50% mun á olíunotkun, jafnvel þó aðalmál skrokksins séu hin sömu. Þess vegna er það ósk- andi að með sífelldum tilraunum og rannsóknum ætti okkur að takast að hanna sparneytnari fiskiskip en við höfum í dag. Ég hef litla trú á því að trébátar komi aftur inn í myndina. En ég hef trú á léttmálmum og glassfiber til notkunar við smíði báta og skipa. Það væri einnig óskandi að við gætum fundið upp ódýrari og ár- angursríkari botnmeðhandlanir en við þekkjum í dag. Ég hef litla trú á fjölveiðibátum. Og það er allt sem bendir til þess að vinsældir þeirra séu dvínandi. Þessir bátar eru of dýrir. En það eiga sér stað athyglisverðar breytingar á véla- sviðinu. Dieselvélarnar eru að verða meira hreinar skipsvélar og snúningshraðinn minnkar. Allt niður í 150-200 sn. Auk þess eru olíunýtnimælar að verða algeng- ari. Einnig eiga seglin æ meiri vinsældum að fagna. Til þess að nýta sem allra best hina miklu fjárfestingu sem liggur í fiskiskipum í dag er nauðsynlegt að athuga betur möguleikana á tvö eða þrefaldri áhöfn. Kemur þá til greina að skipta um áhöfn á miðunum með hraðgengum bát- um eða þyrlu. Einnig kemur til greina að nota sérstaka hótelbáta á miðunum þar sem áhafnirnar búa. Einnig að nota sérstaka báta til þess að flytja aflann í land. Mætti þá vinna aflann að hluta til eða til fulls á leiðinni í land. Nú þegar eru vökvakranar töluvert í notkun við veiðarfæra- meðhöndlun og verða slíkir kran- ar sjálfsagðir hlutir um borð innan fárra ára. Vélmenni munu einnig verða tekin í notkun. Japanir hafa reyndar nú þegar byrjað með vél- VIKINGUR 35
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.