Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1982, Blaðsíða 46
aralífinu. Ég var svo í þriðja túrn-
um þegarég lenti í slysi.
Þetta gerðist í sama veðri og
rækjubátarnir þrír fórust fyrir
vestan. Við höfðum verið fyrir
vestan en vorum komnir suður.
Það var búið að vera brjálað veður
um nóttina en út af Reykjanesi er
dýft í, hann ætlaði að fá sér
karfaábæti. Um hálf tólf eru hler-
arnir komnir upp og kallað á
okkur. Ég er fyrstur út á dekkið og
sé skaflinn koma á móti mér. Ég
reyndi að forða mér inn aftur því
ég vissi að ég yrði steindauður ef
ég kæmist ekki inn, myndi annað
hvort lemjast oní dekkið eða
hverfa út í buskann. Ég komst
samt ekki alveg inn því hurðin
negldist á mig og hægri hönd og
hægri fótur klemmdust milli stafs
og hurðar. Ég hálf skreið upp í
brú, þar skáru þeir utan af mér
gallann. Þeir gátu stoppað blóð-
rásina í hendinni og búið um fót-
inn. Ég komst niður í koju og fékk
deyfilyf, síðan var siglt inn til
Þorlákshafnar. Við komum ekki
þangað fyrr en hálf níu um
kvöldið því veðrið var kolvitlaust.
Læknir og lögreglubíll voru mætt
á bryggjuna og ég var keyrður
beint á Borgarspítalann.
Læknirinn minn, Rögnvaldur
Þorleifsson, var búinn að dæma
hendina ónýta en ég held að að-
gerðin hafi tekist framar vonum.
Hendin var tvíbrotin út í gegn
fyrir neðan olnboga og vöðvinn
allur tættur. Þeir gerðu að fæt-
inum á mér fyrst og um miðnætti
byrjuðu þeir á hendinni. Ég held
þeir hafi verið sex—sjö tíma að
sauma hana saman, settu járn-
stykki inn í hana þar sem mest fór
af vöðvanum.
Ég var frekar fljótur að ná mér í
fætinum en er ennþá með verk í
hendinni. Veðrabreytingar
hlaupa illa í hana, suð-vestan áttin
er t.d. voðalega leiðinleg við mig,
ég veit alltaf hvenær hún er að
koma,“ segir Ólafur brosandi.
„Lengi vel var hún alveg dauð,
hvít og máttlaus. Ég var alveg frá
vinnu i sjö mánuði en þá bauð
Landhelgisgæslan mér nætur-
varðarstöðu. Ég var í raun enginn
maður til að fara að vinna, gat
ekkert gert með hægri hendi. Ég
var í endurhæfingu lengi og er
raunar enn undir læknishendi.
Styrkurinn hefur komið mikið
síðastliðna sex mánuði t.d. er ég
ný farinn að geta kreppt fingurna
en þumalinn get ég ekki kreppt
enn. Ég þjálfaði mig í að skrifa
með vinstri hendi en er nú farinn
að geta skrifað með þeirri hægri,
verð samt að halda öðruvísi á
penna en áður.
Óvissan um afkomu-
möguleikana erfiðust
— Hvernig tilfinning er það að
VÍKINGUR
Gleðileg jói og farsælt komandi ár
þökk fyrir viflskiptin á árinu sem er afl iíða
SEXTÍU OG SEX
NORÐUR
VINYL GLÓFINN
• MEÐ HRJUFU YFIRBORÐI
• ÖRUGG HANDFESTA
• FÖDRAÐIR MEÐ 100% ÝFÐU
BÓMULLAREFNI
• ROTVARÐIR (SANITIZED)
• STERKIR EN MJÚKIR
fSLENSK FRAMLEIÐSLA
ÖRUGG HANDTÖK MEÐ
SJÓKLÆÐAGERÐIN HF/
Skúlagötu 51 - Reykjavík - Sími 1-15-20
46