Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1982, Side 50

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1982, Side 50
Tölur um slys á sjó ekki réttar Slysatíðni sjómanna er mjög há og ég tel að í skýrslum um slys á sjó komi ekki fram réttar tölur. Það verður að ganga betur eftir því að skipstjórnarmenn skili skýrslum um þau slys sem verða um borð. Sjóslysanefnd gefur ár- lega út skýrslur um slys en þar koma ekki fram nærri öll slys sem verða. í mínu tilfelli var haldinn sjóréttur en samt er slyssins hvergi getið í skýrslu Sjóslysanefndar. Á þessu tímabili urðu sjö slys um borð í Jóni Vídalín og ekkert þeirra er skráð í skýrslu nefndar- innar. Mönnum finnst stundum að ekki þurfi að gefa skýrslu um slys því þau séu ekkert alvarleg, en þetta er rangt. Það er nauðsynlegt að allt komi fram svo hægt sé að vinna af alvöru að því að koma í veg fyrir þau slys sem hægt er að hindra. Ég hef unnið í öryggismála- nefnd á tveim síðustu Sjómanna- sambandsþingum og tek undir allar kröfur sem varða öryggi og vinnuvernd. Sjómannasambandið hefur verið mjög duglegt að vinna að þessum málum, framar öðrum Við varðskýlið á Ingólfsgarði þar sem Ólafur er oftast við vinnu sína. Mátturin í hægrí hendi hefur komið smátt og smátt en læknar óttuðust að hún væri ónýt, fyrst eftir slysið. Ægir liggur bundinn við Ingólfsgarð og Þór við hlið hans. Ólafur var á Ægi því hann kom nýr, 1968, þar til Týr kom 1975, oftast bátsmaður. Hann kann vel við sig á höfninni því þá er hann í takt við srákana, eins og hann segir. stéttum í landi enda býður starfið upp á margar hættur. Nauðsynlegt að saltbleytan hverfi ekki úr félagsmálunum — Heldurðu að menn séu al- mennt farnir að gera sér grein fyrir mikilvægi öryggisaðgerða um borð? — Já, ég held það sé að breyt- ast, menn séu farnir að taka það alvarlegar. Fyrst var hlegið að hlutum eins og hjálmum og öryggislínum en ég held það sé að minnka. Reyndar held ég að Vestfirðingarnirséu enn töluvertá eftir í þessu efni. Að vísu verður að varast að innleiða of mikið af öryggistækjum í einu, þetta verður að koma smátt og smátt. 50 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.