Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1982, Blaðsíða 73

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1982, Blaðsíða 73
aldrar, og hann hafði drepið tím- ann þennan sama dag, við að sækja sínar áunnu krónur í til- heyrandi sjóði ogkerfisskrifstofur. Ellilífeyrir október greiðsla kr. 2.250.00 Lífeyrissjóður október greiðsla kr. 9.200.00 kr. 11.450.00 Magnús með 3.600,- kr. Útkoma kr. 7.850,- Jóni í „háloft- unum“ Alþingismanni í vil. En nú skulum við fara bak við alþingishúsið og fylgjast með vin- um okkar á hvíldarbekknum. Jón alþingismaður hefur orðið: Segðu mér nú fréttir af þínum högum „ljúfurinn“ það er svo andskoti langt síðan ég hef frétt af þér, eða eigum við kannski að væta kverk- arnar aðeins fyrst og Jón klappar nokkrum sinnum á stresstöskuna sína, sem liggur á hnjánum hans. Jú, ekki ætti það nú að skaða öðl- ingurinn minn, enda stendur maður nú ekki róðrum lengur, þó háloftin lofi góðu með veðurút- litið. Fallegur viskýfleygur gengur síðan á milli þeirra nokkum tíma og tóbakspontan hans Magnúsar líka, svona til að hressa upp á minnið. Já, Jón minn, það er nú lítið að segja, það eru nokkur ár síðan ég flutti hingað suður, og alltaf hefi ég nú stundað sjóinn og gengið bara þokkalega, víst af gömlum vana. En nú er ég hættur að róa, skal ég segja þér, það fæst nú orðið ekkert nema smákóð og ég hefi ekki skap í mér að drepa þetta smælki sko. Nú maður á nú líka svo mikið inni hjá „kerfinu“ Jón minn, að maður verður að gefa sér tíma til að ná í það og koma því í brúkið. Ég stóð nú í þeim stórræðum í dag, að ná þessu saman, og er nú með summuna hér í brjóstvasanum, sem ég fékk fyrir síðastliðinn mánuð, og Magnús klappar á vasann. Já, já, en ansi yljar þessi vökvi þinn manni vel að innan. Enginn hafði VÍKINGUR heyrt Magnús bölva um æfina. Já, gamli vinur við skulum þá gera þessu skil, svarar Jón. Þögn varð á nokkra hríð. En hvað er að segja af þér Jón minn, ertu ennþá að flytja ræður í þessu virðulega húsi. Nei, vinurinn, ég stóð mig ekki alveg nógu vel, og er dottinn upp- fyrir. Ég skal trúa þér fyrir því, að ég var að drepa tímann í dag, við það sama og þú, og mitt mánaðar uppgjör er nú hérna og hann klappar á „stresstöskuna“. En mikill aulabárður gat ég verið að kaupa ekki tvo fleyga fyrst ég fór í mjólkurbúðina á annað borð, en þú skilur, maður átti nú ekki von á að hitta þig „ljúfurinn". Jæja, það er nú sanngjarnt að ég bjargi því við félagi minn. Magnús seilist niður í rassvasa sinn og dregur upp koníaksfleyg, við skulum nú sjá hvernig okkur gengur að af- meyja þennan og ekki ætti inni- haldið að vera verra. Nú skál vin- ur, kannski að það losni um mál- beinið á þér á eftir, þú ert ansi fátalaður finnst mér, miðað við fyrri kynni. Þetta var þér líkt „ljúfurinn" kærar þakkir þetta er aldeilis afbragð. Já Magnús minn, ég verð nú að segja þér það í trúnaði að ég hef alltaf öfundað þig, mikið varstu snjall að velja þér þetta ævistarf, ef ég hefðihaft manndóm í mér til að gera eins og þú, væri ég ánægðari með lífs- hlaupið. Nú einhver verður nú að vinna landverkin, tuldraði í Mag- núsi, en ekki hefði ég viljað skipta við þig, nei, nei. Það er sko gott að mega setja sitt strik sjálfur, þó það sé nú kannski ekki alltaf fullur bátur hjá manni, en maður reynir þá bara að velja annað réttara strik næst. Nú svo eru þær ansi fjörmiklar ránardæturnar, þegar vel liggur á þeim, og þá er nú gaman að glíma við þær, félagi. En maður er nú víst kominn í hálfgert karlagrobb, eigum við ekki að nota tímann og bera sam- an blöðin, sem við vorum að fá hjá kerfinu í dag? Ég hlýt nú að eiga meira inni en þú, ég hefi blotnað svo ansi oft á þessu sjógösli mínu, eða er það ekki borgað eftir því kerfi? Skál vinur, og hresstu þig nú svolítið upp og líttu upp í há- loftin. Þakka ljúfurinn, þetta var nú aldeilis þér likt, segir mér til syndanna, og tekur mig glímu- tökum eins og í gamladaga. En við skulum bera saman blöðin. Það var gert, og í umslagi Jóns alþingismanns voru taldar uppúr 11.450 kr. og mismunurinn 7.850,- kom í ljós Jóni í hag. Ég get nú ekki skýrt þetta alveg nógu vel út Magnús minn. En sjáum til, ég hætti þingmennsku, þegar ég var 62ja ára, og var þá búinn að streða við þau störf í 12 ár samfelt, nú ég byrjaði að fá eftirlaun 65 ára. Þetta er víst reiknað út eftir þingfarakaupi hverju sinni, og fæ ég 40% af því. Nú, svo ég geri langt mál stutt, fékk ég núna kr. 9.200,- í eftiriaun fyrir september og svo sama elli- lífeyrir og þú 2.250,- kr. sem gerir 11.450,- kr. Nú, ef ég hrekk upp af vinur minn, þá fær konan mín hún Björg, 20% af þessu þingfara- kaupi, og helming af mínum eftirlaunum, nú ef ég ætti böm innan við 18 ára aldur, þegar ég dræpist, þá fengju þau líka líf- eyrir, fram að 18 ára aldri. Já, þetta er nú orðið mjög gott hjá okkur, en mér líkar ekki þessi mikli munur á eftirlaunum okkar, Magnús minn. Nei „ljúfurinn“ minn, þetta er ekki rétt í kerfinu. Þetta er öðruvísi heldur en ég vildi láta þetta vera, en hér vilja allir ráða í þessu húsi og þó maður komi með eitthvað gott fram, þá verður úr þessu hálfgerð vitleysa, þegar allir eru búnir að fá sitt fram, en þá eru líka allir ábyrgir fyrir endaleysunni. Nei, andskot- inn, þetta þyrfti að vera betra, skál, ljúfurinn. Já skál, Jón minn, þetta er nú eitthvað í þessum dúr 73
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.