Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1982, Side 74

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1982, Side 74
hjá mínum lífeyrissjóði líka, en það er mikill munur á upphæðum hjá okkur, þær eru sko ekkert upp í „háloftunum“ tölurnar mínar, vinur minn. En eigum við ekki að labba kring um tjörnina, mér finnst þar fallegast i Reykjavík, við getum þá litið á sjólagið þar í leiðinni og virt fuglalífið fyrir okkur. Gamla góða merkið flTTRETORN Merki stígvélanna sem sjó- menn þekkja vegna gæö- anna. Fáanleg: Meö eöa án trésóla. Meö eöa án karfahlífar Stígvélin sem sérstaklega eru framleidd meö þarfir sjómanna fyrir augum. EINKAUMBOÐ JÓN BERGSSON H/F LANGHOLTSVEGI 82 REYKJAVÍK SÍMI36579 74 Nei, Magnús minn, nú er góður tími til að ég skreppi hér inn á Alþingi og tali við Gunnar Thoroddsen, vin ntinn, hann er einn af þeim fáu sem hugsar og hefur hugsjón í þessu húsi, ég ætla að benda honum á þennan mis- mun á okkur í kerfinu, og ef hann getur ekki kippt því í lag og „hækkað þig í sama skala eins og ég er í, þá getur það enginn „ljúf- urinn“. Ég segi honum eins og er, að þetta sé sanngirnismál, og ég sé hræddur um að þeir hætti að róa blessaðir, ef þessu verður ekki kippt í lag. Og hvar fást þá aurar til að borga í stóriðjuna og „kerf- ið“, og eitthvað þarf að vera til fyrir okkur „ljúfurinn“ ekki satt. Já ég vildi að ég væri orðinn tví- tugur aftur, þá skildi ég sko hafa róið með þér vinur. Já, nú líkar mér við þig Jón minn, mikið var að þar varð al- bjart í háloftunum. En megum við ekki losa okkur við þessi lík, þarna í tunnuræfilinn, það er óþarfi að vera að dragnast með þetta tómt. Jú, „ljúfurinn“ gerum það, og ég legg til að við hittumst aftur eftir næstu útborgun, hér á sama stað. Samþykkt Jón minn og skál í botn fyrir gamalli vinsemd. Skál, en þú verður samt að segja mér eitt félagi, áður en ég hleyp inn, af hverju sér aldrei á þér vín „ljúfurinn“? Ætli það sé ekki af því að ég hefi fengið svo rnikið af saltvatni í kroppinn, að alkahólið nær ekki til að verka á mig, svarar Magnús. Mér datt þetta í hug, allt er nú gott við blessaðan sjóinn, og Jón hverfur inn um bakdyrnar á gráa húsinu, virðulega. En Magnús „ljúfurinn" labbar niður að Iðnó og virðir fyrir sér tjarnarsjóinn, fuglalífið og feg- urðina. Síðasta sem ég heyrði hann tuldra fyrir munni sér: Jú, það er rétt, sem Jón vinur minn sagði um Gunnar forsætisráð- herra, hann þorir að setja sitt strik, þó að deila megi um stefnuna, en ekki hefi ég nú alltaf hitt á beztu stefnuna; Já, ég get borið virðingu fyrir mönnum, sem eru ákveðnir og þora, því óska ég honum langra lífdaga. Það gæti kannski hjálpað Jóni vini mínum til að fá einn góðan róður á lífsleiðinni, hver veit. Iss, ekki held ég, að mér hefði líkað að róa alla æfi, ef sjórinn hefði alltaf verið svona sléttur. Hvor þessara heiðursmanna skildi nú hafa skilað þjóðarbúinu og niðjum þessa ástkæra lands, meiri arði til sameiginlegrar út- gerðar á þjóðarskútunni og vel- ferðar þjóðfélaginu? Ég segi nú bara eins og Jón al- þingismaður, hvar væru peningar til framkvæmdanna, ef ekki væru til ennþá menn á borð við vin okkar Magnús skipstjóra. Er sanngjarnt að verðlauna Magnús með slíkri mismunun í ellinni? Þessu svara væntanlegir les- endur hver fyrir sig. Ég svara neitandi, og vænti þess að Jón alþingismaður hafi nú einu sinni hitt á að leggja veiðarfærin sín á rétt mið. Og hugsandi lands- föður okkar takist að leiðrétta misræmið, áður en rekum verður kastað yfir hann, því allir deyjum við ekki satt. Væri ekki áraldraðra tilvalið til að jafna málin, og láta alla bera jafnt úr býtum í ellinni? Einn úr vesturbænum með salt í kroppnum. S.Á, 0 A frfvd Fyrsti kleppsbúi: — Hvað hefur þú fyrir stafni núna? Annar kleppsbúi: — Kaupi gamla brunna, saga þá sundur og sel þá sem holur fyrir símastaura. VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.