Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1983, Blaðsíða 8
Sævar Svavarsson, franikvæmdastjöri heldur hér á línubala sem Norm-x er nýlega farinn
að framleiða og bút sem sýnir frauðplastið inn í framleiðsluvörum fyrirtækisins. Fyrir
aftan hann er síló en bráðlega verður hafin framleiðsla á laxeldisköruin hjá Norm-x.
verið framleidd með sérstöku loki
og vélsmiðjan hannað búnað sem
settur er á lyftara svo hægt er að
hvolfa saltfiski úr kari á lokið með
lyftara, sbr. mynd.
Körin hafa einnig verið notuð í
frystihúsum, til geymslu á fiski í
móttöku og reynst mjög vel.
Eins og allir vita sem reynslu
hafa af stálkörum, þarf að halda
þeim við og mála árlega en með
notkun plastkaranna sparast sá
kostnaður.
Hjá Norm-x er hafin fram-
leiðsla á línubölum úr plasti og
hefur þeim verið vel tekið af út-
gerðarmönnum. Balarnir eru úr
efni sem þolir sama högg við 40°
frost og stofuhita en það er þver-
bundið POLYETHY LENE (XL),
sama efni og flestar framleiðslu-
vörur fyrirtækisins. Kostir plasts-
ins umfram járnið eru líka aug-
ljósir hvað varðar hávaða og þrif
og mun þægilegra er fyrir útgerð-
armenn að skipta við innlendan
framleiðanda en járnbalarnir hafa
ekki verið framleiddir innanlands.
Léttir vinnu sjómannsins
Þeir Guðmundur Þormóðsson,
stjórnarformaður Norm-x og
Sævar Svavarsson forstöðumaður
beggja fyrirtækjanna, voru staddir
í básnum á Iðnsýningunni og voru
ósparir að kynna framleiðslu sína.
í básnum voru körin góðu, en þau
eru framleidd í þrem stærðum,
440, 750 og 1000 lítra. Einnig síló
sem fyrirtækið framleiðir og rot-
þró, auk ýmissa tegunda íláta sem
hentug eru fyrir landbúnað og
fiskvinnslu.
Sævar Svavarsson stundaði sjó-
inn þar til fyrir tólf árum og er því
öllum hlutum kunnugur í sjávar-
útvegi. Honum hefur lengi verið
það kappsmál að vinna að hag-
ræðingu á vinnu sjómannsins um
borð, við frágang á afla í lest eða
eins og hann segir: „Uppi í brú er
allt orðið tölvuvætt en niðri í lest
hefur nær engin þróun átt sér stað.
8
Þar eru vinnuaðstæður enn mjög
erfiðar." Til að auðvelda þessa
vinnu og jafnframt að vanda
meðferð aflans, eins og svo mikið
er rætt um núna, er verið að hanna
gámaflutningskerfi um borð í
fiskiskipum og hafa fyrirtæki
Sævars unnið að því í samráði við
Rannsóknastofnun fiskiðnaðar-
ins. Við kerfið eru körin frá
Norm-x notuð, en þar sem þau eru
of þung til að hægt sé að lyfta þeim
með handafli, ætla þeir að smíða
nokkurs konar lyftukerfi í lestarn-
ar þar sem körin eru færð til með
lyftum og leika á brautum. Vél-
smiðjan Normi er að hefja smíðar
á fyrsta kerfinu um þessar mundir.
Það kerfi er miðað við m/s Júpi-
ter, en sérstakur hópur tækni-
manna, undir stjórn Paul Hansen,
véltæknifræðings hefur séð um
hönnun kerfisins. Nánar er sagt
fra því annars staðar í blaðinu.
Að sögn þeirra félaga, skapast
ýmsir möguleikar með notkun
karanna um borð í fiskiskipum.
T.d. er möguleiki að flokka í þau
strax þann fisk sem senda á fersk-
an á erlendan markað og þarf þá
ekki að handfjatla hann neitt, frá
því hann er settur í körin þar til
hann kemur á markaðinn. Þegar
er hafinn útflutningur á ferskum
fiski á þennan hátt. Körunum er
þá raðað inn í gáma og þeir settir í
flugvél eða flutningaskip.
Fyrirtækið Sæplast hf. hefur
framleitt svipuð kör og Norm-x og
selt þau til Færeyja fyrir um þrjár
milljónir. Nú er verið að sameina
það fyrirtæki Norm-x og er ætl-
unin að gera átak í útflutningi til
fleiri landa.
Hjá fyrirtækjunum vinna nú
20—25 manns. Þau eru staðsett í
verksmiðjuhverfinu í Garðabæ,
að Lyngási 8, sími 53822.
VÍKINGUR