Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1983, Blaðsíða 28
Fiskur ísaður í ker úr fiskikassa, til útflutnings á ferskfiskmarkað. Kerin eru þægileg til
stöflunar inn í flutningsgáma skipaféiaganna. Fiskurinn geymist vel ísaður í viku í
þurrgámum, þ.e. ekki frystigámum.
það tekst að hanna flutningskerfi í
skipslestir, sem hægt er að nota
bæði við löndun og eins út á sjó.
Mesti vinnusparnaðurinn við
notkun þessara kerfa er við lönd-
un og er okkar mat, að hægt sé að
spara allt að helming löndunar-
kostnaðarins.
Þau fiskker sem eru mest fram-
leidd hér á landi urðu til í sam-
vinnuverkefni, sem R.f., Iðn-
tæknistofnun íslands, Normi og
Sæplast, og síðar Norm-X stóðu
að. Kerið er hugsað sem alhliða
ílát og er hægt að nota það jöfnum
höndum í vinnslu og sem
geymsluílát.
Stærsti kostur slíkra kerja er að
auðvelt verður að flokka fiskinn
eftir tegundum og jafnvel stærð-
um í hvert ker og dagmerkja þau.
Á sínum tíma þegar hafin var
notkun plastkassa í skipslestum þá
var það ákveðið þrep í þróun
hentugra flutningskerfa. Eins er
með kerin að þau eru áfangi á
þessari þróunarbraut. Það er svo
spurning hvort þau ná eins al-
mennri útbreiðslu og fiskkassarnir
hafa náð, en það veltur mikið á því
hvernig til tekst við hönnun og
smíði flutningskerfis fyrir kerin í
lestum skipa.
Hönnunarhópur
Hér lýkur skýrslu þeirra félaga.
Eins og áður sagði, er byrjað að
smíða flutningskerfi fyrir m/s
Júpiter. Sérstakur hópur tækni-
manna hefur annast hönnun
verksins, í honum eru Paul
Hansen, véltæknifræðingur sem
stjórnar verkinu og sér um hönnun
á flutningavagni, Elías Guð-
mundsson, vélaverkfræðingur sem
sér um hönnun á gámalyftu og
brautum í lest, Eyjólfur Ámundar-
son og Sævar Birgisson, skipa-
tæknifræðingar, hanna breytingar
á skipi og stálteikningar. Til al-
menns ráðuneytis og sérstaklega
með tilliti til atriða sem varða gæði
og geymslu á fiski, er Ásgeir
Matthíasson, tæknifræðingur
Rannsóknarstofnunar fiskiðn-
aðarins. Auk þess munu Sigurjón
Arason Rf og Hörður Jónsson,
Iðntæknistofnun íslands vera til
ráðuneytis.
Lest m/s Júpiters er nú miðuð
við bræðslufisk og er henni skipl í
þrjú hólf með tveim langþiljum.
Öll vinnuaðstaða miðað við fisk-
kassa er því mjög erfið. Við upp-
setningu gámaflutningskerfisins
þarf að rjúfa bæði langþilin á ein-
um stað til að koma fyrir lyftunni.
Breytingarnar verða samt sem
áður miðaðar við að skipið verði
sem fjölhæfast og geti t.d. áfram
veitt bræðslufisk er leyfi fæst fyrir
slíkar veiðar.
Útgerðarmenn — vélstjórar.
Önnumst allar raflagnir og viðgerðir í bátum, skipum og verk-
smiðjum. Áratuga þjónusta við íslenskan sjávarútveg tryggir
reynslu og öryggi frá sérþjálfuðu starfsfólki.
28
VÍKINGUR