Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1983, Blaðsíða 13
Véltak hf., Hafnarfiröi:
Álbobbingar — þaö sem koma skal?
— tilraunir gefa góöa raun
Véltak hf. í Hafnarfirði, var með
lítinn bás á sýningunni og kynnti
álbobbinga sem er ný framleiðsla.
Fyrirtækið hóf tilraunir í þessa átt
fyrir rúmu ári síðan og naut til þess
aðstoðar íslenska álfélagsins sem
lánaði um 800 kg af áli til tilraun-
arinnar, sem Véltak myndi síðan
skila til endurbræðslu ef bobbing-
amirreyndustekkinothæfir,annars
yrði það reiknisfært. Á sýningunni
mátti sjá nýjan bobbing og annan
sem notaður hefur verið í átta
mánuði og reyndist slitið ekki
mikið.
Að sögn Guðbjartar Einarsson-
ar, framkvæmdastjóra Véltaks hf.
eru helstu kostir álbobbinganna,
að þeir eru þyngri við botn en stál-
og gúmmíbobbingar en jafn
þungir á dekki. Þeir halda því
vörpunni betur við botninn og
varna því að fiskurinn sleppi undir
hana.
Álbobbingarnir sem framleidd-
ir voru í tilraunaskyni, hafa verið í
notkun síðan í desember á síðasta
ári, um borð í togaranum Ársæli
Sigurðssyni frá Hafnarfirði og
lætur skipstjóri og eigandi skipsins,
Þorleifur Björnsson, vel af þeirri
reynslu. Til að byrja með, meðan
bobbingarnir voru alveg nýir og
veitt var á slæmum botni, vildi álið
rifna og mynda hvassar brúnir og
skera eða slíta netin. Síðan voru
þeir steyptir úr harðara áli og
kantarnir afrúnnaðir og hvarf þá
þessi galli. Bobbingarnir eru allir
um 50 cm að þvermáli en mis-
þungir og misbreiðir. Þorleifur
var með sex álbobbinga um borð
og notaði aldrei minna en fjóra, á
miðju vörpunnar, og uppi í sex,
eftir dýpi og aðstæðum hverju
sinni. Þorleifur telur álbobbing-
VÍKINGUR
VÉLfAk
\
JpWfí í
WsÁ í
m
Úr sýningarbás Véltaks hf. Hér má sjá álbobbingana nýja og eftir átta mánaða notkun.
ana hentuga við þorsk- og grá-
lúðuveiðar á miklu dýpi, þar sem
bobbingalengjan þarf að liggja
fast við botninn. 50 kílóa álbobb-
ingur er 30 kíló við botn en jafn-
þungur gúmmíbobbingur er talinn
innan við tíu kíló við botn, vegna
eðlisþyngdarmunar á gúmmíi og
áli.
Veiðarnar á Ársæli gengu vel
meðan á þessari tilraun stóð og
létu mennirnir á dekkinu vel af að
vinna við þá. Sem dæmi nefnir
Þorleifur, að við veiðar á grálúðu
við Austurland, á um 350-—450 fm
dýpi, hefðu mörg skip notað
750—850 faðma af togvír, en á
Ársæli var mest hægt að hafa 675
faðma af togvír úti. Segir Þorleifur
árangur af sínum veiðum að
minnsta kosti þann sama og á
skipunum sem höfðu lengri togvír
og mun betri en á þeim sem ekki
gátu sett út nema um 675 faðma.
Enn einn kostur við álið er sá að
hægt er að skila allt að 30% af
bobbing til baka til endurvinnslu,
fyrir gott verð.
Vélatk hf. er til húsa að Hval-
eyrarbraut 3, í Hafnarfirði. Sími