Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1983, Side 35
Rússar skutu niður urn mánaðamót ágúst, september
sl. og samþykkt að fulltrúar kæmu á framfæri álykt-
unum sinna félaga, við utanríkisráðuneyti hvers lands
fyrir sig.
Boða á til aukafundar í október og ræða samræm-
ingu á réttindum og skyldum skipstjórnarmanna sem
sigla á stríðssvæðum. Hingað til hefur verið greidd
áhættuþóknun við slíkar aðstæður en nú vilja útgerð-
armenn hætta því og hækka slysa- og líftryggingar.
Ekki fer fulltrúi frá Stýrimannafélaginu á þennan
fund.
Næsti fundur samtakanna verður haldinn í Hels-
ingfors í mars á næsta ári.
Orlofshús öldunnar tvö, í Brekkuskógi nálægt
Laugarvatni, verða til leigu í haust og vetur.
Orlofshús leigö í vetur
A A
Orlofshús Öldunnar í Brekkuskógi, verða til leigu í
vetur og er félagsmönnum bent á að þangað getur
verið gott að fara yfir helgar eða í lengri tíma, ekki
síður í haust og vetur en í sumar. Brekkuskógur er um
17 km austan við Laugarvatn og standa bústaðirnir
tveir, í fögru umhverfi og eru að sjálfsögðu búnir
öllum nauðsynlegum tækjum. Svefnpláss er fyrir
fjölda manns í hverjum bústað, bæði í svefnherbergj-
um og á svefnlofti.
Þeir sem áhuga hafa á veru í bústöðunum, hafi
samband við skrifstofuna, Borgartúni 18, sími 29933.
90 ára afmæli 7. október
Eins og frá hefur verið greint í blaðinu, verður
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Aldan, 90 ára 7.
október nk. Þegar þetta er skrifað er undirbúningur
afmælisins í fullum gangi, af hálfu stjórnarmanna
Öldunnar. Ákveðið hefur verið að afhenda Þjóð-
minjasafninu elsta félagsfána félagsins, sem jafnframt
er elsti félagsfáni stéttarfélags á landinu, því Aldan er
elsta stéttarfélag landsins. Fer sú athöfn fram í Þjóð-
minjasafninu á afmælisdaginn, föstudag 7. október,
en daginn eftir, laugardaginn 8. október, verður opið
hús fyrir unga og aldna Öldufélaga, í samkomusaln-
um í kjallara Borgartúns 18, kl. 2—6 og frá kl. 20.
í tilefni afmælisins kemur út bók um sögu félagsins,
er nánar sagt frá henni annars staðar í blaðinu. Menn
eru hvattir til að hafa samband við skrifstofuna, vilji
þeir eignast bókina.
Uppstilling
til stjórnar
Vélstjórafélagsins
Eins og áður hefur komið fram, samþykkti síðasti
aðalfundur félagsins, að uppstillingu til næsta stjórn-
arkjörs yrði frestað fram á haustið, þó þannig að
uppstillingu skyldi lokið fyrir miðjan september. í
byrjun september skilaði uppstillingarnefnd tillögum
sínum og var í framhaldi af því haldinn almennur
félagsfundur þann 14. september að Borgartúni 18.
Á fundinum var gengið endanlega frá uppstilling-
unni til næsta stjórnarkjörs og er hún svona:
Til formanns:
Helgi Laxdal, (Fiskifélag íslands). Sigurður Ingi
Tómasson, (Eiginn rekstur). Sveinn Á. Sigurðsson
(b/v Ögri).
Fulltrúar vélstjóra á fiskiskipum:
Guðmundur Hafsteinsson (B.Ú.R.). Hafsteinn
Guðvarðsson, (Hraðfrystihús Eskifjarðar). Ingólfur S.
lngólfsson (Vélstjórafélag íslands). Már Gunnarsson,
(b/v Apríl). Samúel Guðmundsson (Einar Farestveit
og Co.). Þór Sævaldsson, (b/v Guðbjörg). Þórbergur
Þórhallsson (b/v Karlsefni).
Fulltrúar vélstjóra á kaupskipum:
Ásgeir Sumarliðason, (Hafskip). Hlöðver Einars-
son, (1 námi). Jón Guðmundsson, (Samband ísl.
samvinnufélaga). Magnús Smith, (Eintskipafélag ís-
lands h.f.). Þór Birgir Þórðarson, (Eimskipafélag Is-
lands h.f.).
Fulltrúar vélstjóra sem í landi vinna:
Georg Árnason, (Áburðarverksmiðjunni). Jón
Kristinsson, (Keflavíkurflugvelli). Ólafur Gunnars-
son, (B.Ú.R., Fiskiðjuver). Páll Magnússon, (Lands-
virkjun). Sveinn K. Baldursson, (Kröfluvirkjun).
Allt eru þetta valinkunnir menn hver á sínu sviði.
Það sem eflaust vekur athygli við þessa uppstillingu er
að Ingólfur Sig. Ingólfsson er ekki lengur í framboði
til formanns, en ástæðan er sú að Ingólfur gaf ekki
kost á sér af heilsufarsástæðum.
Ætlunin er að kynna þá sem eru í kjöri frekar í
„Strokknum“ fréttabréfi Vélstjórafélags íslands.
VIKINGUR
35