Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2002, Side 6
Frumvarp á Alþingi
Sökkvum skípunum
Á Alþingi hefur verið lagt fram frum-
varp til laga um breytingu á lögum um
varnir gegn mengun sjávar. Nái frum-
varpið fram að ganga verður heimilt að
farga úr sér gengnum skipum með því að
sökkva þeim hér við land allt til ársloka
2004. Með þessu verði unnt að leysa ill-
viðráðanlegt vandamál á hagkvæman
hátt.
Flutningsmenn frumvarpsins eru Einar
K. Guðfinnsson og Kristján Pálsson. í
greinargerð með frumvarpinu segir að
mikill vandi steðji nú að í höfnum lands-
ins. Úrelt skip og úr sér gengin liggi þar í
stórum stíl, taki pláss í höfnunum, valdi
eigendum skipanna og höfnunum fjár-
hagstjóni og geti jafnvel verið hættuleg.
Engin úrræði hafi fundist til þess að
farga þessum skipum samkvæmt heim-
ildum í gildandi lögum. Fjárhagslegar
forsendur hafi ekki verið fyrir hendi svo
hægt væri að búta skipin niður og koma
þeim í brotajárn.
Fram kemur í greinargerðinni að við
athugun umhverfisnefndar Hafnarsam-
bands sveitarfélaga í desember 2000 hafi
komið í ljós að í höfnum landsins voru
158 verkefnalaus skip, þar af 88 fiskibát-
ar, 14 skuttogarar, 38 smábátar og 20
önnur skip. Talið var að i þessum skip-
um væru um 70 þúsund tonn af járni.
Kostnaður við förgun stálskipa væri nú
talinn vera um 15 kr. á hvert tonn. Ef
þessi skip og bátar lægju hver fram af
öðrum tækju þeir upp um 5 km af við-
legurými. Nauðsynlegt sé að taka fram
að ekki séu öll þessi skip i reiðileysi.
Mörg hafi bara ekki verkefni og eigendur
að kanna sölumöguleika. Eigi að síður sé
ljóst að ýmis þeirra bíði förgunar, en lög
komi i veg fyrir að henni verði komið við
nema með gríðarlegum kostnaði. Valdi-
marsdómurinn hafi enn aukið á vand-
ann.
Samkvæmt hinum svokallaða OSPAR-
samningi um verndun Norðaustur-Atl-
antshafsins frá 1992 og tók gildi 25.
mars 1998 sé varp skipa í hafið heimilað
til 31. desemer 2004. Pegar flutt hafi ver-
ið stjórnarfrumvarp árið 1996 um breyt-
ingu á lögum um varnir gegn mengun
sjávar hafi ætlunin verið að styðjast við
þessa heimild úr OSPAR-samningnum og
gert ráð fyrir að Hollustuvernd gæti leyft
til ársloka 2004 að farga skipum á þenn-
an hátt. Alþingi hafi hins vegar ákveðið
að fella brott heimildina án þes að það
væri í raun rökstutt 1 nefndaráliti. Hér sé
lagt til að tekið verið upp það fyrirkomu-
lag sem stjórnarfrumvarpið frá 1998
gerði ráð fyrir og OSPAR-samningurinn
heimili. í reglugerð verði kveðið á út-
færslu þessa ákvæðis. Öll mengandi efni
verði fjarlægð áður en skipum og bátum
verði sökkt i sæ og fyrirfram séu ákveðin
þau svæði þar sem bátarnir megi liggja
og þess gætt að þeir séu utan hefðbund-
innar veiðislóðar.
Lífeyríssjóður sjó-
mannafer í hart
Dregur íslenska
ríkiö fyrir
Mannréttinda-
nefnd Evrópu
„Við unum ekki dómi Hæstaréttar
og því var ákveðið að fara með mál
sjóðsins gegn ríkinu til Mannréttinda-
nefndar Evrópu sem ákveður hvort
það fari síðan til Mannréttindadóm-
stólsins,” sagði Árni Guðmundsson
framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs sjó-
manna i samtali við blaðið. Seint á
síðasta ári sýknaði Hæstiréttur ríkið af
kröfum sjóðsins um greiðslu kostnað-
ar sem hlaust af lækkun á ellilífeyris-
aldri sjómanna sem Alþingi ákvað á
sínum tíma án þess að taka á sig
nokkrar skuldbindingar varðandi þau
útgjöld sem lögin sköpuðu fyrir sjóð-
inn. Með samþykkt Alþingis árið
1981 var elliífeyrisaldur sjómanna
lækkaður úr 65 árum í 60 og stóð svo
til ársins 1994 án þess að sjóðurinn
fengi nokkuð á móti frá ríkinu til að
mæta auknum útgjöldum sem fylgdu
lögunum. Þar með voru auknar álög-
ur lagðar á þá sjóðfélaga sem ekki
nutu þess að fá þennan lífeyri.
t
Jónas Sigurðsson
Þann 7. mars
síðastliðinn lést Jónas
Sigurðsson fyrrverandi
skólastjóri Stýrimanna-
skólans í Reykjavík í hárri
elli. Jónas var fæddur 13.
mars 1911. Hann lauk
stúdentsprófi frá MR
1930, fyrrihlutaprófi í
vélaverkfrræði frá
Technische Hochschule
Darmstad 1933,
fiskimannaprófi hinu
meira 1940 og farman-
naprófi 1941. Hann var
kennari um áratugaskeið við Stýriman-
naskólann í Reykjavík og skólastjóri
hans frá 1962 til 1981. Jónas var
heiðursfélagi Félags
islenskra skipstjórnar-
manna. Eiginkona
Jónasar var Pálína
Árnasóttir, en hún lést
1993. Börn þeirra eru
Árni Björn,
verkfræðingur, Baldur
verkfræðingur og Ebba
Sigurbjörg bankastarfs-
maður. Fyrir átti Jónas
soninn Sigurð Rúnar
bifvélavirkja.
Útför Jónasar
Sigurðssonar fór fram frá
Hallgrímskirkju 14. mars. Sjómanna-
blaðið Víkingur sendir ástvinum hans
samúðarkveðjur.
6 - Sjómannablaðið Víkingur