Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2002, Side 12
Gestur Gunnarsson skrifar
irapa d íimdið
Bandaríkjamenn skera upp liðlega 120
milljónir tonna af maís á ári. Er það
heldur meira en hveitiuppskera þeirra og
þykir hún allnokkur. íslenska fiskveiði-
lögsagan er uum það bil 700 þúsund
ferkílómetrar. Árlegur vöxtur grænþör-
unga er talin nema u.þ.b. 200 grömmum
á fermetra, eða fjórfalt heimsmeðaltal.
Þessi árlegi vöxtur er heldur meiri en
framangreind maísuppskera. Grænþör-
ungarnir eru undirstaða alls lífs á ís-
landsmiðum. Næst á eftir þörungunum
er áta, svo fiskar eins og síld og loðna á-
samt skíðishvölum. Vinur okkar allra
þorskurinn er svo i fjórða þrepi. Einu
sinni var talið að nýting milli þrepa væri
u.þ.b. 1.0% þannig að 1000 tonn af
grænþörungum gæfu af sér 1 tonn af
þorski. Þetta er auðvitað breytileg stærð,
háð fæðuframboði. í hafinu er bara um
tvennt að ræða, éta eða vera étinn. Allt er
étið af einhverjum. Ef framboð fæðu er
lítið fer mikil orka í fæðuleit og þar af
Útbúum
lyfjakistur
fyrir skip og báta
Eigum ávallt tilbúna sjúkrakassa
fyrir vinnustaði, bifreiðar og heimili.
Lyf & heilsa
•Kringlan 1. hæð, sími: 568 9970
•Hafnarstræti Akureyri, sími: 460 3452
Gestur Gunnarsson
leiðandi er vöxtur hægari en þegar nóg
er um æti.
Dr. Jónas Bjarnason ritaði nýlega grein
í Morgunblaðið um meinta, dularfulla
glötun þorskstofnsins. Dr. Jónas taldi
hugsanlega skýringu vera þá að búið
væri með veiðurn að grisja burt fljót-
vaxnasta fiskinn. Þessi minnkaði vaxtar-
hraði getur allt eins stafað af því að meiri
orka fari í fæðuleit en áður. Nú er mað-
urinn í samkeppni við þorskinn um æti
hér á miðunum. Jafnhliða þessari meintu
minnkun þorskstofnsins hafa loðnuveið-
ar komið til og nema um það bil milljón
tonnum á ári. Loðnu sem breytt er í mjöl
verður ekki að þorskholdi. Nú kann ein-
hver að segja að þetta séu bara hundrað
þúsund tonn þvi nýting milli fæðuþrepa
er jú 10%. Málið er ekki svo einfalt,
fiskur sem liggur fyrir fullur af loðnu vex
mikið og hratt. Fæðunýting hugsanlega
1:3 þannig að fundin eru 300 þúsund
tonn af þessari hálfu milljón sem veiddist
áður en loðnuveiðar hófust.
Jólatíðin getur oft verið erfið hvað
varðar holdsöfnun. Hjá þorskinum hefj-
ast jólin aðeins seinna en hjá mönnunum
eða í byrjun janúar þegar loðnan fer að
þéttast norður af Vestfjörðum. Þorskur-
inn er 5-10 sinnum lengri en loðnan, ef
líkanlögmál Froudes er gildandi fyrir
þessa fiska er eðlilegur sundhraði þorsks
2-3 sinnum sundhraði loðnu, það segir
okkur að þorskurinn eyðir sáralítilli orku
við það að elta loðnuna. Dr. Gylfi Þ.
Gíslason hefir skrifað bók um fiskihag-
fræði, á blaðsíðu 86 er línurit sem sýnir
landaðan afla af íslandsmiðum á seinustu
öld. Þetta línurit sýnir að hámarksveiði á
botnfiski er um miðjan sjötta áratuginn
og fer jafnt og þétt minkandi eftir það.
Aftur á móti er veiði uppsjávarfiska sára-
lítil um miðja öldina en eykst jafnt og
þétt, er sá afli nú komin í vel á aðra
milljón tonna á ári en þorskafli hefir
minnkað úr rösklega hálfri milljón lonna
í tvö hundruð þúsund.
Þegar á allt er litið, virðist þetta aðeins
vera rekstrarfræðilegt viðfangsefni hvort
á að veiða milljón tonn af loðnu eða
þrjúhundruð þúsund tonn af þorski.
Bandaríski hagfræðingurinn J.K. Gail-
braith sagði einu sinni að kommúnismi
og kapítalismi væru kenningar sarndar af
mönnum sem ættu erfitt með að hugsa
og réðu þess vegna ekki við viðfangsefni
líðandi stundar. Þá væri ráðið að búa til
eitthvert kerfi sem leysti allt sjálfvirkt.
Þennan pytt virðast íslenskir ráðamenn
hafa dottið í þegar þeim datt í hug að
stjórna lífi í hafinu með lagaboði sem er í
raun ólöglegt ef mið er tekið af eignar-
réttar og atvinnufrelsis ákvæðum stjórn-
arskrárinnar. Bandarískir hagfræðingar
kenndir við háskólann í Chicago hafa
haft atvinnu af því að kenna ríkisstjórn-
um í rómönsku Ameríku kapítalisma og
árangurinn mjög lítill hvað varðar bætta
afkomu almennings í þessum löndum.
Allir þekkja árangurinn í Sovétríkjunum
þar sem kommúnisminn átti að færa
fólki betri kjör. Þessi Chicago kapital-
isrni hefir borist hingað til lands og er
m.a. ætlað að stýra stærð fiskistofna.
Ágætur prófessor við Háskóla íslands,
sem i eðli sínu er skemmtikraftur á
heimsmælikvarða, hefir skrifað bók um
það hvernig íslendingar geta orðið rík-
asta þjóð í heimi. Sá er þetta ritar er sam-
mála prófessornum um rikidæmið en tel-
ur að leiðin til ríkidæmisins liggi um
gróður hafsins umhverfis ísland.
T æringarvarnarefni
fyrir gufukatla
KEMHYDRO - salan
Snorrabraut 87 • 105 Reykjavík
Sími: 551 2521 • Fax: 551 2075
12 - Sjómannablaðið Víkingur