Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2002, Síða 36
Menn létufara vel um sig í björgunarbátnum.
Vilhjálmur myndar atburðinn
Það að Vilhjálmur tók myndavélina
varð til þess að slysið komst i heims-
pressuna þvi myndirnar hans voru
grunnur að frásögn helstu stórblaða Evr-
ópu af þessu einkennilega slysi. Myndir
Vilhjálms birtust í að minnsta kosti 13
erlendum blöðum og tímaritum en ekki
fékk hann krónu fyrir birtingarnar.
„Ég reyndi þó að sækja rétt minn
með aðstoð lögfræðings hér heima en
þegar upp var staðið var reikningur lög-
fræðingsins hærri en sem nam greiðslum
fyrir myndirnar,” segir Vilhjálmur og
sýnir blaðamanni reikninginn. Það kem-
ur fram að greiðslurnar fyrir myndbirt-
ingu í einu sænsku blaðanna séu rúmar
fimm hunduð íslenskar krónur en lög-
fræðingnum þótti ekki rétt að rukka Vil-
hjálm um meiri greiðslu.
„Ég átti alveg ágæta Konica mynda-
vél og var nýbúinn að setja 36 mynda
Vilhjálmur iklæddist björgunarvesti í rólegheitum en aðrir gáfu sér ekki tíma til þess.
filmu í hana. Ég var þriðji síðastur frá
borði enda lá mér ekkert á. Ég var þó var
við að farþegar og sumir af áhöfninni
voru skelfingu lostnir. Það var heilmikill
asi og stress í gangi þegar fólk var að yf-
irgefa skipið. Sumir bílstjórarnir voru á
nærbuxunum einum fata þegar þeir
stukku í bátana. Enginn fórst en nokkrir
slösuðust vegna þess að þeir stukku út á
gólf úr kojunni og stöppuðu í glerbrotu-
um af flöskum og glösum. Þar sem skip-
ið haggaðist lítið sem ekkert var almennt
ekki verið að skorða brothætta hluti
niður,”segir Vilhjálmur.
Þegar hann loks kom út úr klefanum
sínum, klæddur með ferðatöskuna og
myndavélina tilbúna var búið að fara
með flesta skipsbrotsmenn um borð í
þýskt skip sem var nálægt. Klukkan
3.30 um nóttina fóru síðustu menn frá
borði í gúmmíbát, þar á meðal Vilhjálm-
ur.
„Það var upplit á mönnum þegar ég
kom í björgunarbátinn, fullklæddur með
tösku og myndavél eins og hver annar
túristi,” segir Vilhjálmur og hlær. „Ég var
allan tímann fullviss um að skipið myndi
ekki sökkva nema á löngum tíma. Það
var mjög gott veður, hiti og sólin að
koma upp. Sjórinn bærðist ekki og Mið-
jarðarhafið er nú ekki kalt á miðju
suinri. Enda kom það svo á daginn að i
þetta sinn fór skipið ekki niður.”
Þrettán erlend blöð birtu
myndir Vilhjálms
Einsog áður sagði björguðust allir urn
borð í Zenobiu og farið var með rnann-
skapinn í land í Limmasol á Kýpur. Þar
var öllum komið fyrir á hótelum.
„Ég fékk inni á glæsilegu hóteli í bæn-
um og hafði það gott á meðan ég beið
eftir því að vera kallaður um borð. Með
mér á hótelinu voru bílstjórar en enginn
úr áhöfninni. Næsta dag fór ég með
lilmuna í framköllun og fékk líka þessar
fínu myndir af skipinu. Þegar ég sýndi
félögum mínum myndirnar vildu allir fá
eintak og filman var framkölluð í tuga-
vis. Þannig fóru myndirnar á flakk um
allan heim og ég tapaði af höfundarrétt-
inum og hugsanlegum greiðslum fyrir
myndbirtinguna, “ segir Vilhjálmur.
Hann á eintök af öllum þeim blöðum
sem hann komst yfir en þau eru þrettán.
Tvö þeirra eru gefin út í Júgóslavíu, tvö í
Svíþjóð, tvö á Ítalíu, tvö þeirra eru frá
Kýpur, eitt frá Sviss, eitt frá Þýskalandi,
eitt frá Austurríki og annað frá Sviss. Af
þessum er blaðið Stern frá Þýskalandi
líklegast þekktast á alþjóðamarkaði. Á
forsíðu tölublaðsins með myndum Vil-
hjálms er mynd af sænsku tennisstjörn-
unni Birni Borg en frægð hans var í
algelymi á þessum árum. Líklega er að
myndirnar hafi birst víðar þótt Vilhjálm-
ur eigi ekki eintök af þeim blöðum.
„Ég harkaði þessi eintök út með þvi
36 - Sjómannablaðið Víkingur