Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2002, Page 45

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2002, Page 45
Indlandi með brotajárn en því var reyndar öðruvísi farið þegar Borzna, sem hefur 36 þúsund tonna burðargetu, kom til hafnar- innar Chennai á Indlandi á nýjársdag. Skipið var það fyrsta af þremur sem kom þangað með brotajárn úr Tvíburaturnunum í New York en skipið var með 33 þúsund tonna farm. Það er þó ekki allt rnagnið þvi þrjú önnur skip af svipaðri stærð eru á leið til Kína í sömu erindagjörðum. Fyrir flutninginn er borgað 120 dollara á tonnið (CIF). Tvö ný grísk farþegaskip l smíðum en nú á að leyfa ellilífeyrisþegum áð fara að sigla á ný þar í landi sðkum skorts á yfimönnum. Gamlingjar á sjóinn Nú er fokið í flest skjól. Grísk stjórnvöld hafa heimilað að skrá í skiprúm á ný yfirmenn sem þegar hafa verið settir í land sökum aldurs. Fessum öldnu sjómönnum verður boðið upp á stutta endurþjálfun og þeir muni jafnfram ekki missa niður eft- irlaunagreiðslur. Þetta er gert í kjölfar tilrauna til að fá til starfa yfirmenn á grísk kaupskip en án árangurs. Siglingamálaráð- herra Grikklands, George Anomeritis, lýsti því yfir að hér væri einungis á ferðinni skammtímalausn á málum (það skal engan undra) en framtíð grískra sjómanna væri eitl stærsta verkefni sem biði ráðuneytis hans á næstu mánuðum og árurn. Viða um heim hafa menn hlegið að þessum úrræðunt Grikkjanna og hafa skopmyndateiknarnar farið víðan völl í þeim efnum þar sem fjörgamlir og farlama rnenn eru á stjórnpöllum skipa fram- úðarinnar. Hvað gera þeir þegar þessir gömlu verða kornnir undir græna? Ætli þeim hafi nokkuð dottið í hug að þetta tengdisl hugsanlega launum manna? Rýmkun fyrir útgerðir Þrátt fyrir erfiðleika á að fá yfirmenn á gríska kaupskipaflot- ann þá eru stjórnvöld þar í landi að gera mönnum auðveldar fyrir að reka skip undir þarlendunt fána og einnig að gera flot- ann samkeppnishæfan við aðra EBE flota. Tonnaskattur á þar- knd skip var lækkaður um 70% og var það mun meira en út- gerðir höfðu vonast til að fá. Þá var og samþykkt að lækka tekjuskatt yfirmanna niður í 6% og undirmanna niður i 3%. Til að átta sig á hvaða þýðingu þetla hafði lýsti skipamálaráðherran bví yfir að 15 ára skip 18 þúsund tonn að stærð hefði greitt í ár- legan tonnaskatt 41 þúsund dollara en eftir lækkunina fór þessi [ala niður í 12 þúsund dollara. Bætti hann við að vel kæmi til greina að gera enn frekari lækkanir á gjöldum til skipa jafnvel þótt það gæti stofnað siglingafánanum í þá hættu að faíla undir þægindafána. Á síðasta ári bættust 57 skip í flota þeirra samtals 2,3 milljónir tonna og er þetta ntesta stækkun flotans til ntargra ára. Gríski skipastóllinn (skip yfir 100 BT) er nú 1959 skip, samtals 29 milljónir tonna. Netið kemur að notum Netið er stöðugt að koma að notum við að kanna hver séu réttindi sjómanna. Nú hefur Fillippínska þjálfunarráð sjó- manna (MTC) komið upp skrá á Netinu yfir alla þarlenda sjó- rnenn á slóðinni http://www.mtc.gov.ph. í skránni á að vera hægt að finna alla þá stýrimenn og vélstjóra sem hafa skírteini samkvæmt STCW samþykktinni frá 1995. Einnig undirmenn sem hafa vaktskírteini sem og loftskeytamenn sem hafa skírteini samkvæmt samþykktinni. Siðan í janúar 2001 hafa verið end- urútgefin yfir 118 þúsund atvinnuskírteini frá STCW 1978 og í 1995 samþykktina en það er meira en helmingur þeirra 200 þúsund fillippeyskra sjómanna sem eru starfandi á sjó. Að sögn formanns MTC þá á landið að geta með þessum fjölda sjó- manna uppfyllt þarfir á mönnun skipa undir erlendum fánum. Fór heldur langt í höfninni i Shanghai varð heldur betur kaos á ferðinni þegar panamískt ekjuskip, Sea Baron, var að fara úr höfninni þann 8. febrúar s.l. Eftir að vélar skipsins voru settar á ferð áfrarn virt- ist sem að bilun hefði orðið í stýrisbúnaði þess með þeim afleið- ingum að það lenti á öðru flutningaskipi, United Star, sem lá við bryggju ekki langt frá. Ekki stoppaði skipið þó þar því það lenti síðan inn í hópi 40 pramma sem lentu síðan hver á öðrum líkt og að um dontino kubba hafi verið að ræða. Sjö nianns slösuðust og einn pramminn skemmdist það rnikið að hann var talinn ónýtur. Það hafa verið margar svitaperlur sem runnu niður andlit manna í brúnni á Sea Baron þegar herlegheitin dundu yfir og þær urðu fleiri hjá útgerðinni sem varð að greiða 200 þúsund dollara tryggingu til að skipið gæti haldið ferð sinni áfram. Lélegur kostur Árlega er fjöldi skipa kyrrsettur í Bretlandi í kjölfar skoðunar hafnarríkiseftirlits þar í landi. Ástæður geta verið margvíslegar en oftast er um að ræða slæmt ástand á skipi, vanmönnun eða aðbúnaði áhafnar. Af þeim 16 skipurn sent kyrrsett voru í síð- asta mánuði var eitt þeirra, Fantom, sem er 42 þúsund tonn að stærð skráð í Grikklandi. Það var reyndar ekki aldur yfirmanna sem var vandamálið heldur kom í ljós að skipið, er var rnannað 22 skipverjum og var að fara í þriggja vikna ferð, hafði mjög litlar matarbirgðir. Það litla sem unt borð var, var einnig rneira eða minna skemmt. Þá þótti Bretunum fæðið vera heldur ein- hæft þar sem birgðir skipsins samanstóðu einungis af nauta- kjöti, kjúkklingum, kartöflum, lauk og brauði. Þá var eldhúsið mjög óhreint og kakkalakkar á hverju strái. Skipinu var leyft að sigla eftir að frekari matabirgðir höfðu verið keyptar. Sofnaði við stjórnvölinn Ákæruvaldið í Frakklandi hefur farið fram á lágmark sex rnánaða fangelsi yfir rússneska yfirstýrimanninum Chernyshov auk 15 þúsund evru sekt eftir að hann hafði sofna á vaktinni. í brúnni á gámaskipinu Melbridge Bilbao var svokallaður dauðs- mannshnappur sent stýrimaðurinn þurfti að ýta á og staðfesta að hann væri vakandi (eða lifandi) á 12 mínútna fresti en hnappurinn hafði farið í taugarnar á honum þannig að hann einfaldlega slökkti á kerfinu með fyrrgreinduin afleiðingum. Sjómannablaðið Víkingur - 45

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.