Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2002, Page 46
Tveimur tímum fyrir strandið reyndi franska strandgæslan ít-
rekað að ná sambandi við skipið en án árangurs þar sem stýri-
maðurinn var steinsofandi. Skipið Melbridge Bilbao er okkur
íslendingum vel kunnugt en þetta var síðasta skip Eimskipafé-
lagsins undir íslenskum fána, selt úr landi árið 2000, og hét þá
Brúarfoss.
LASH skip eru brátt aðeins hluti af sagnjræðinni.
en brotajárnsverð fáist fyrir þau. Ekki mun koma til að fleiri
slík skip muni verða smíðuð þar sem slíkt svarar ekki kostnaði.
Kemur aftur upp
All sérstök staða er komin upp varðandi skip sem sökk fyrir
sex árurn síðan í Tælandi. Um var að ræða gasflutningaskip
sem sökk í Tælandsflóa og var það fulllestað. Síðar fór að bera
á gasleka frá skipinu og nú er svo komið að sökum lekans þá
hefur flak skipsins létst það mikið að nú stendur stafn skipsins
þrjá metra upp fyrir yfirborð sjávar. Tælenski sjóherinn hefur
aðvarað skip að koma ekki nærri þar sem gasið er mjög eldfimt.
Samkvæmt nýjustu fréttum hefur verið ákveðið að tælenski sjó-
herinn eigi að skjóta á flakið, sem rekur fram og til baka, og
freista þess að það sprigni í loft upp og sökkvi þar með endan-
lega..
Risa gripaflutningaskip
Stærsta gripaflutningaskip heimsins, Rodolfo Mata, í um þess-
ar mundir i jómfrúarferð sinni til Jedda. Skipið getur ílutt 135
þúsund kindur eða 26 þúsund nautgripi. Skipið, sem áður var
gámaskipið Ming Universe og gat flutt 1984 gámaeiningar, var
breytt fyrir 50 miljónir dollara. Um borð er 85 rnanna áhöfn
sem samanstendur af breskum yfirmönnumog pakistönskum
undirmönnum.
Skipategund að hverfa
Snemma á sjöunda áratugnum ruddu sér rúms skipategund
sem kölluð var LASH skip (Lighter Aboard Ship) en þetta var
skipategund sem ekki lestaði gáma heldur pramma. Farmar i
skipin komu víða að og þetta þótti sérstaklega hentugt þegar
flutningurinn var að koma langt innan úr landi. Þá voru
prammar dregnir á fljótum og síðan lestuðu LASH skipin þá í
söfnunarhöfnum og fluttu yfir Atlantshafið eða þá milli hafna
og þá sérstaklega í Bandaríkjunum þar sem þessi skipategund
náði mestum vinsældum. Nú eru dagar þessa skipa um það bil
að verða taldir en einungis þrjú slík skip eru enn i í siglingum.
Þau hafa öll verið sett á sölu og er ekki gert ráð fyrir að meira
FLJÓTANDI ÍS-GEL
Aukiö geymsluþol og
hráefnisverðmæti
Mikil vinnuhagræðing
Lægri rekstrarkostnaður
Traustur búnaóur
Bjarta frarntíð sjómenn og tagerðarrne
STG ISVELAR Sími 5876005 Fax 5876004 www.st
Þrælaskip
ITF berst nú við að koma sjómönnum á fyrrum skemmti-
ferðaskipinu Green Coast til aðstoðar en skipið liggur við akk-
eri fyrir utan höfnina í Luanda í Angóla. Verið er að breyta skip-
inu í fljótandi hótel þar sem það liggur. Áhöfnin hefur haldið
því fram að henni sé haldið nauðri um borð og að með skip-
verja sé farið sem þræla. Þá hafa þeir ekki fengið laun í heilt ár.
Ofbeldi og hótanir um að þeim verði kastað fyrir borð eru dag-
skipanirnar þar um borð. ITF fær ekki að koma um borð í
skipið en eigandi þess er um borð í því og hefur þarlend stjórn-
völd í vasanum. Aðeins hefur verið hægt að hafa samband við
skipverja bréfleiðis.
Hryðjuverkaútgerð
Við eftirgrenslan vestrænna ríkja hefur komið í ljós að 20
skip í rekstri tengjast samtökum Osama Bin Ladens, al Qa’ada.
Öll eru skipin skráð á þægindafánum og eru flest þeirra undir
fánum Panama og Líberíu. í ljós hefur einnig komið að Banda-
ríkjamenn hafa að minnsta kosti framkvæmt skoðun á einu
skipa samtakanna áður en hryðjuverkin voru framin í septem-
ber s.l.
Norski fallbyssubáturinn KNM Jo endaði upp á skeri eins og sjá má á
myndinni hér að ofan. Skipherran var svo upptekinn afbeinni útsend-
ingufrá vetrarólympíuleikunum að klettinn sá hann ekki fyrir fagnað-
arlátunum þegar gullféll í hlut Norðmanna. Þeir hafa líklegast verið
að kyrja “Heia Norge” í brúnni þegar hannflaug upp.
46 - Sjómannablaðið Víkingur