Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2002, Page 52
Þjónustusíður
Umbúðadeild SH
Allt á
einum stao
á góðu verðí
Einar Már Guðmundsson
Umbúðadeild SH, hef-
ur um árabil verið leið-
andi í sölu umbúða og
rekstrarvara til sjávarút-
vegsfyrirtækja á íslandi.
Hjá fyrirtækinu starfa
sex manns sem hafa
samanlagða starfsreynslu
hjá SH upp á 63 ár
Meðal þess sem deildin
býður upp á eru ytri
kassar, öskjur, plastpokar, hnífar, sjófatn-
aður ofl.
í dag eru í viðskiptum við umbúða-
deildina 54 frystihús, 19 íslenskir frysti-
togarar og 26 erlendir frystitogarar.
Nokkur þessara skipa landa einungis er-
lendis, í Noregi, Kanada og í Busan í
Kóreu og eru umbúðir þá ýmist sendar
að utan eða frá íslandi.
Fyrir nokkrum árum var rekstur deild-
arinnar tekinn til endurskoðunar og upp
úr því urðu nokkrar breytingar, sem hafa
Sýnishom af nokkrum vörum umbúðadeHdar SH
skilað fyrirtækinu ánægðari viðskiptavin-
um. Umbúðadeildin hætti eigin lager-
haldi og fór að kaupa þá þjónustu af öðr-
um aðila. Með því að gera lagerhaldið að
breytilegum kostnaði tókst að lækka
þann kostnað umtalsvert, sem hefur skil-
að sér beint til viðskiptavina í lægra
vöruverði.
Á undanförnum árum hefur áherslan á
þjónustuna aukist. Viðskiptamenn um-
búðadeildarinnar vilja liggja með sem
minnstan lager, en taka vörur þess í stað
oftar. Þá er mikilvægt að rétt vara berist
á réttum tíma. Er þetta sérstaklega mik-
ilvægt þegar verið er að afhenda umbúðir
um borð í skipin, en það segir sig sjálft
að þar þarf að vanda til verka, þar sem
erfitt er að bæta fyrir mistök þegar skipin
eru komin út á sjó.
“Það er mikil samkeppni í þessari
grein og þar eru góð þjónusta og gæði á
góðu verði okkar sterkasta vopn”, segir
Einar Már Guðmundsson, deildarstjóri
umbúðadeildar SH.
■ Landsbankinn
Landsbréf
52 - Sjómannablaðið Víkingur