Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2002, Side 60

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2002, Side 60
rök sem hníga að því að mikilvægt sé að vernda kynþroska hluta stofna langlífra tegunda en að minnka hrygningarstofn- inn. Þessi rök snerta þó ekki endilega mikilvægi stórra fiska fyrir hrygningu og nýliðun, enda eru algengustu viðbrögð langlífra tegunda i ferskvatni við mikilli veiði á stærri fiski þau að nýliðun eykst til muna. Þau snerta meira viðbrögð stofna við veiðum og mikilvægi stærðar einstaklings m.t.t. hvaða fæðuhluta vist- kerfisins hann getur nýtt sér til vaxtar og viðgagns. Þessum rökum verða gerð skil undir næsta lið. Áhrif stofngerðar á afrakstur Stjórnun veiða í ferskvatni miðast oft við aðra þætti en að ná hámarksnýtingu. Þar sem sportveiðar eru helsta nýtingar- formið er t.d. mikilvægara að eiga von um að veiða stóran fisk fremur en að veiða mikinn fjölda. í öðrum tilfellum er helsta markmið veiðistjórnunar að hafa áhrif á vistkerfið í heild og þá helst til að koma í veg fyrir mikinn þörungablóma. Þetta hefur orðið til þess að veiðistjórn- un í vötnum hefur oftar vistfræðilega nálgun og þá er stuðst við s.k. „top- down” hugmyndafræði, þ.e. að viðgang mismunandi þrepa í fæðupíramídanum megi skýra með því sem gerist á þrepinu fyrir ofan. Á sama tíma má segja að þau líkön sem stuðst er við í veiðiráðgjöf í sjávarveiðum einblíni meir á einstakar tegundir eða stofna, og þar er litið svo á að það séu fremur neðri þrep píramídans sem hafi áhrif á viðgang þrepana fyrir ofan, eða s.k. „bottom-up”. Sjónarmið Hafrannsóknastofnunarinnar: Það hefur ávallt verið stefna Hafrann- sóknastofnunarinnar að umfram allt beri að vernda ókynþroska fisk, því vaxtar- aukning milli ára sé svo mikil á þessum tíma, 70-80% frá 3-4 ára, 40% frá 4-5 ára og minna fyrir eldri fisk. Hófleg nýting kynþroska fisks á síðan að tryggja viðun- andi stærð hrygningarstofnsins. Þegar kemur að stofnmati og veiðiráðgjöf er hinsvegar aldrei minnst á mikilvægi stærðarsamsetningar stofnsins, hvorki fyrir nýliðun né afrakstursgetu stofnsins. Til að þessi rök standist verður að gera ráð fyrir lágri náttúrulegri dánartölu og að vöxtur einstaklinga sé óháður stærð- arsamsetningu stofnsins. Þetta eru reyndar þær forsendur sem Hafrann- sóknastofnunin gefur sér, náttúrulega dánartölu sem er 18% á ári og vöxt sem miðast við að sá þorskur sem er lifandi í dag hafi sömu forsendur til að ná ákveð- inni stærð eftir tiltekinn árafjölda og núlifandi eldri þorskar. Vöxtur miðast því ekki við neitt ákveðið vaxtarlíkan heldur við beinar athuganir á meðal- þyngd einstaklinga í hverjum árgangi. Sjónarmið gagnrýnenda: Síðastliðinn áratug eða svo hefur gagn- rýnin í auknum mæli fjallað um þær hættur sem kunni að felast í mikilli sókn í stærsta fiskinn. Aldurs- og stærðar- dreifing stofnsins sé ört að breytast og af- leiðingarnar séu slæmar, nýliðun verði ó- tryggari, kynþroskastærð minnki, það geti dregið úr vexti og heildarafraksturs- geta stofnsins minnki. í Viðauka 4 er reynt að gera grein fyrir mikilvægi stærð- ardreifingar stofns fyrir möguleika hans til að nýta þá möguleika sem vistkerfið býður upp á til vaxtar stofninum. Þar er einnig kynnt hvernig fræðin hafa þróast í ferskvatni, og reyndar stuðst við nokkur dæmi úr sjó, þótt það skuli tekið fram að þau eru ekki mörg. Það sem að mínu mati styður þessa gagnrýni eru þær breytingar sem hafa orðið í kynþroskastærð ýsu og þorsks við ísland, sem hefur minnkað mjög á und- anförnum áratugum. Samkvæmt tölum Hafrannsóknastofnunarinnar hefur kyn- þroskaaldur ýsunnar, þ.e. sá aldur þar sem 50% stofnsins nær kynþroska, lækk- að úr um 5 árum í upphafi níunda ára- tugarins í 3-4 ár nú, um tuttugu árum siðar (Hafrannsóknastofnunin 2001b). Þetta bendir til að dregið hafi úr vexti einnig, enda er líklegt að kynþroski sé bein afleiðing af möguleikum einstak- lingsins til vaxtar (Beverton 1992). Sama þróun hefur átt sér stað í þorsk- stofninum þar sem kynþroskaaldur hefur lækkað úr unr níu árum fyrir 1960 Qón Jónsson 1960) í sjö ár 1981, sex ár 1985, fimm ár 1992 og virðist enn fara lækk- andi (Hafrannsóknastofnunin 2001b). Hliðstæð þróun hefur átt sér stað í öðr- um þorskstofnum Qörgensen 1990). Minnkandi kynþroskastærð þorsks og ýsu við Island ýtir enn undir þær áhyggj- ur sem ýmsir, jafnt innan Hafrannsókna- stofnunarinnar sem utan, hafa af þróun stærðarsamsetningar þessara tegunda. Miðað við þær forsendur sem raktar hafa verið hér að framan má vel hugsa sér að þessi þróun endurspegli minnkandi af- rakstursgetu stofnanna og að hana megi að minnsta kosti að hluta til rekja til nýt- ingarstefnunnar þar sem dregið er úr sókn í smáfisk á kostnað aukins veiðiá- lags á stærri fisk. Þetta hefur reyndar einnig orðið til þess að umræða hefur orðið um hvort með veiðunum sé verið að breyta erfðaeiginleikum stofnsins þar sem hægvaxta fiskur sé undir minna veiðiálagi en hraðvaxta fiskur. Aðskildir stofnar Stofnahugtakið er eitt af grundvallar- hugtökum fiskifræðinnar (Cushing 1981). Stofn er skilgreindur sem hluti tegund- ar sem er tiltölulega einangraður í tímg- unarlegu tilliti. Þannig eru erfðaeigin- leikar eins stofns frábrugðnir öðrum. Stofnahugtakið hefur verið þekkt lengi og farið var að taka tillit til þess í nýt- ingu ýmissa tegunda, t.d. margra laxateg- unda, fyrir um 30 árum (Simon og Lark- in 1972). Á undanförnum árum hefur af og til komið upp umræða um hvort þetta ætti við um þorskinn umhverfis landið. Þessi umræða hefur i seinni tíð ekki síst verið á dagskrá innan Hafrannsókna- stofnunarinnar enda hafa bæði merking- ar og klakrannsóknir styrkt mjög hug- myndir manna um að svo geti verið. Sjónarmið Hafrannsóknastofnunarinnar: Veiðiráðgjöf fyrir þorsk og reyndar ílestar mikilvægustu nytjategundir okkar byggjast á því að einungis sé um einn stofn að ræða í hverju tilviki. Hvað þorskinn varðar þá telja þeir sem vinna að stofnmati og veiðiráðgjöf að þótt þorskur hrygni víða í kringum landið, þá sé mesta hrygningin fyrir Suðvesturlandi og að stórir árgangar komist upp þegar hrygning við SV land tekst vel. Því sé réttlætanlegt að meta þorsk við ísland út Skoðun og viðgerðir gúmmíbáta Einnig skoöun og viðgerð bjargbúninga Gúmmíbátaþjónustan Eyjaslóð 9, Örfirisey sími 551: 4010 Fax: 562 4010 60 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.