Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2006, Síða 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2006, Síða 6
Jón Þ. Þór UPPHAF ISLENSKRAR LANDHELGISGÆSLU Enginn mun lengur mæla þvi í mót, að fiskurinn í sjónum umhverfis landið sé - eða hafi a.m.k. verið - mesta og verðmæt- asta náttúruauðlind íslendinga. Af sjálfu leiðir, að átök hafa löngum staðið um nýtingu þessarar auðlindar. Þau stóðu lengst á milli Islendinga og útlendinga, sem öldum saman sóttu hingað til veiða á stórum flotum fiskiskipa, tíðum einnig á milli útlendinganna innbyrðis og á síð- ustu árum einna helst á milli íslendinga sjálfra. Nýtingarréttur er þekkt hugtak í póli- tiskri og hagfræðilegri orðræðu, en sjaldnar er fjallað um annað hugtak, sem kalla mætti nýtingargetu. Það snýst um getu eða hæfni þjóðar, eða einhvers til- tekins hóps einstaklinga, til að nýta þær auðlindir, sem þeir hafa aðgang að, og telja sig eiga með réttu. Nátengd nýting- argetunni er svo getan til að helga sér afnot af auðlindinni og verja hana fyrir ágangi annarra. Um það hefur landhelgis- gæsla við Island jafnan snúist, en hún hefur tekið á sig ýmsar myndir í tímans rás. Þegar útlendingar (Englendingar) stefndu fiskiskipum fyrst á íslandsmið á öndverðri 15. öld, var íslenskur sjávarútvegur þegar orðinn umtalsverður atvinnuvegur og íslensk skreið vel þekkt og eftirsótt vara á evrópskum mörkuðum. Islenskir sjó- menn og útvegsbændur höfðu fram til þessa setið einir að nýtingu fiskimiðanna við landið og þeir hvorki vildu né gátu meinað útlendingunum aðgang að auðlind- inni. Eina ráð þeirra til þess var að neita Englendingunum um aðstöðu í landi, en það gerðu þeir sjaldan. Viðskiptin við þá voru landsmönnum hallkvæm, fiskurinn í sjónum var almennt talinn guðs gjöf, sem allir ættu rétt á, og menn vissu ekki betur en að nóg væri af honum. Tilraunir Danakonunga á miðöldum til að koma í veg fyrir veiðar og fiskkaup Englendinga hér á landi stöfuðu ekki af deilum um nýtingu á auðlindinni. Þær miðuðu öðru fremur að því að koma í veg fyrir að utanríkisverslun íslendinga kæmist að mestu í hendur Englendinga og að hindra að þeir yrðu of áhrifaríkir hér á landi. Líku máli gegndi er aðrar erlendar þjóðir, einkum Hollendingar og Frakkar, hófu veiðar að marki hér við land á 17. Franskar skútur á Fáskrúðsjirði. öld. Þeir stunduðu handfæraveiðar á þil- skipum og sjaldan skarst i odda með þeim og íslendingum. Þvert á móti voru samskipti franskra og hollenskra sjómanna við landsmenn yfirleitt góð og sjaldan eða aldrei kom til árekstra vegna nýtingarrétt- ar á auðlindinni. Hollendingar og Frakkar voru að veiðum mun dýpra en Islendingar, sem höfðu ekki getu til að nýta nema grynnstu mið. Á 17. og 18. öld reyndu Danir öðru hvoru að halda uppi gæslu við strendur landsins, en hún var öll í skötulíki og miðaði öðru fremur að því að koma í veg fyrir að útlendingar versluðu við landsmenn og drægju þannig burst úr nefi danskra kaupmanna. Af fiskinum í sjónum höfðu stjórnvöld litlar áhyggjur, enda urðu veiðar íslendinga ekki fyrir sjáanlegum skaða af völdum útlendinganna. Hélst svo allt fram undir lok 19. aldar. Á siðasta áratug 19. aldar gjörbreyttust aðstæður á íslandsmiðum nánast í einu vetfangi, og þá kom í fyrsta skipti til veru- legra átaka um nýtingarréttinn á miðun- um. Árið 1889 reyndu bresk gufuskip fyrst botnvörpuveiðar hér við land og á næstu árum fjölgaði togurum, sem hér stunduðu veiðar, ár frá ári. Ólíkt holl- ensku og frönsku skútunum, voru togar- arnir að veiðum inni á flóum og fjörðum, oft uppi í harða landi, og fyrir kom að þeir strönduðu með trollið úti. Togaramenn stund- uð veiðar á sömu bleyðum og íslensk- ir árabátasjómenn höfðu sótt á um aldir og skirrðust ekki við að toga yfir veiðarfæri þeirra. Þá var þess skammt að bíða, að í odda skærist og kröfur um gæslu landhelg- innar urðu æ háværari. Dönsk stjórnvöld brugðust við með því að senda til gæslu stærri, hraðskreiðari og betur búin skip en áður, en það stoðaði lítt. Gæsluskipin voru of fá og gátu með engu móti haft hemil á hinum stóra tog- araflola, þótt alltaf tækist þeim öðru hverju að handsama einn og einn land- helgisbrjót og færa til hafnar. íslendingar höfðu fá úrræði lil að verja sjálfir auðlindina fyrir ágangi togaranna og fyrstu tilraunir þeirra í þá átt gáfust misjafnlega. Frægt varð að vísu er Steingrímur Jónsson, sýslumaður Jóhann Pétur Jónsson, fyrsti skipherra Landhelgisgæslunnar, varfæddur í maí 1887 að Lundi í Lundareykjardal. 6 - Sjómannablaið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.