Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2006, Blaðsíða 20
Sigurður Ágúst Sigurðsson, forstjóri
Hvað er DAS?
Framundan er væntanleg
kynning á nýju merki fyrir
Sjómannadagsráð sem fyrirtæki
á þess vegum munu nota í
framtíðinni. Margir ungir sjó-
menn spyrja eflaust; Hvað er
DAS?
Á undanförnum misserum hef ég orðið
var við að ungir sjómenn hafa litla hug-
mynd um hvað DAS stendur fyrir. Þessu
til sönnunar er nýlegt dæmi um ungan
nemanda sem óskaði eftir styrktarauglýs-
ingu í nemendablað á vegum sjómanna-
skóla. Aðspurður gat hann ekki svarað
þeirri einföldu spurningu að mér fannst,
hvað DAS stæði fyrir.
Annað dæmi var á Sjómannadaginn í
fyrra. Þar var Mustang til sýnis inn við
Broadway á hátíð Sjómannadagsins. Að
því tilefni var starfsfólk þar að selja happ-
drættismiða í andyrinu.
Ótrúlegt en satt, margir höfðu ekki
hugmynd um hvað DAS stæði fyrir og
voru frekar undrandi á hvað Happdrætti
DAS væri yfirleitt að gera þarna.
Því rennur mér blóðið til skyldunnar
og vil ég upplýsa sjómenn um hvað DAS
stendur fyrir.
DAS er skammstöfun á dvalarheimili
aldraðra sjómanna og er samnefnari yfir
þá starfsemi sem Sjómannadagsráð
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar stendur fyrir.
Þar á meðal er Happdrætti DAS,
Hrafnista DAS í Reykjavík og Hrafnista
DAS í Hafnarfirði auk reksturs hjúkrunar-
heimilanna að Vífilstöðum og Viðinesi.
Auk þess annast samtökin rekstur
þjónustumiðstöðvar að Hraunborgum í
Grimsnesi.
Laugarásbíó er einnig á vegum þessara
samtaka en það hefur þó aldrei svo ég viti
til verið nefnt DAS Laugarásbíó. Rekstur
Laugarásbíó hefur verið leigður út og
skapað samtökunum leigutekjur.
Sjómannadagsráð Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar var upphaflega stofnað af
sjómönnum árið 1937 með það að mark-
miði að halda árlega upp á
Sjómannadaginn með pomp og prakt og
til að safna fé til að reisa minnisvarða um
drukknaða sjómenn.
Sama ár kom upp sú hugmynd að
vinna jafnframt að öðrum og stærri verk-
efnum.
Hafist var handa við að byggja vistheimili
fyrir aldraða sjómenn og sjómannsekkjur.
Það voru upphaflega 10 stéttarfélög sjó-
manna og sjómannfélaga í Reykjavík og
Hafnarfirði sem voru stofnaðilar að sjó-
mannadagssamtökunum.
Hafist var handa við byggingu í
Laugarási árið 1953 og árið 1957 var
dvalarheimilið skírt Hrafnista. Fljótlega á
byggingartímanum fór fjárskortur að
hamla framkvæmdum og þá kom upp sú
hugmynd að stofna til happdrættis.
Miðasala hófst á Sjómannadaginn 1954
og fyrsti útdráttur í Happdrætti dvalar-
heimilis aldraða sjómanna var 3. júlí
1954.
Svo vel tókst til við sölu miða að
Happdrætti DAS stóð að mestu undir
öllum framkvæmdum við Hrafnistu í
Reykjavík og síðar Laugarásbíó. Árið
1963 var lögum um Happdrætti DAS
breytt og 40% af hagnaðinum varið til
uppbyggingar dvalarheimila um land allt
í heil 25 ár eða þar til hagnaðurinn hafði
dregist saman enda þá nýbúið að stofna
nýtt happdrætti undir heitinu Lottó til
stuðnings íþróttahreyfingunni, skátum og
Sjálfsbjörg.
Happdrætti DAS var þá
búið að leggja hátt í hálfan
milljarð á núvirði í uppbygg-
ingu dvalarheimila aldraðra
úti á landi.
Ég fullyrði að þessi áfornt
sjómannafélaganna og sú sam-
félagslega ábyrgð sem þau
sýndu með þessum bygg-
ingaáformum er einstök í
heiminum. Sú framtíðarsýn
sem þarna var sköpuð hefur
stjórn Sjómannadagsráðs haft
að leiðarljósi.
Sjómannadagsráð
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar
hefur áLt í viðræðum um frek-
ari uppbyggingu dvalar- og
hjúkrunarheimila auk þjón-
ustuíbúða fyrir aldraða og
mun halda áfram því mark-
miði sem upphaflega var sett
á sínum tíma. Enda þörfin
brýn.
Sjómenn geta lagt þessu
framtaki lið með því að eiga
miða í Happdrætti DAS.
Þrátt fyrir harðnandi sam-
keppni á happdrættismark-
aðnum hefur Happdrætti DAS
skilað sjómannasamtökunum
umtalsverðum tekjum og í
raun verið fjárhagslegur bak-
hjarl í þeirri uppbyggingu dvalar- og
hjúkrunarheimila sem Sjómannadagsráð
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar hefur staðið
fyrir. Á núvirði er þessi upphæð komin í
á þriðja milljarð króna.
Það má því ljóst vera hve gríðarleg
lyftistöng Happdrætti DAS var fyrir alla
þessa uppbyggingu.
Til að svo megi verða áfram er brýnt að
sjómenn styðji við bakið á sínu happ-
drætti.
Happdrætti DAS dregur vikulega og
happdrættismiðinn kostar aðeins 1.000
krónur á mánuði og því kostar þátttaka í
hverjum útdrætti aðeins 230 krónur.
Hægt er að tvöfalda vinningsupphæð-
ina með því að kaupa tvöfaldan miða. Þá
eru aðalvinningar ýmist 4 milljónir, 6
milljónir eða Hummer + 5 milljónir í
skottinu. Lægstu vinningar þá 14.000
krónur.
Sjómenn! Tökum höndum saman og
styðjum Happdrætti DAS og búum öldr-
uðum áhyggjulaust ævikvöld. Þeir fiska
sem róa.
Hrafnista i Reykjavík og Laugarásbíó fyrír miðri mynd.
Hrafnista DAS í Hafnarfirði.
20 - Sjómannablaðið Víkingur