Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2006, Blaðsíða 36
Jón B. Stefánsson
Fjöltækniskóli íslands
- skóli í þróun
Fjöltækniskóli íslands varð
til 24. febrúar 2005 þegar
nöfnum Vélskóla íslands og
Stýrimannaskólans í Reykjavík
var formlega breytt í Fjöltækni-
skóla íslands.
Segja má að aflijúpun menntamála-
ráðherra á nýju nafni skólans hafi verið
endanleg sameining skólanna og lok
ferils sameiningar er hófst með yfirtöku
Menntafélagsins á rekstri skólanna 1.
ágúst 2003. Nafni Menntafélagsins var á
sama tíma breytt í Fjöltækniskóla íslands
ehf. og er með því einungis eitt nafn,
Fjöltækniskóli íslands, notað um alla
starfsemina.
Skólinn hefur með nýju nafni markað
sér braut og stefnir að þróun námsfram-
boðs og aukinna tækifæra undir nýju
nafni án þess þó að draga úr áherslunni á
skipstjórnar- og vélstjórnarnámi sem byggt
hefur verið upp í skólanum í áraraðir.
Skóli getur þróast og eflst með nýjum
áherslum samhliða því að virða gamlar
hefðir og halda því sem vel hefur verið gert
i gegnum tíðina. Nýjar áherslur geta og
eiga að stuðla að eflingu þeirra grunn-
greina sem skólinn hefur byggt á og eiga
að gefa nemendum skólans tækifæri til
menntunar i samræmi við þær kröfur
sem nútiminn gerir til þeirra starfa sem
stefnt er á.
Skipulag Fjöltækniskóla íslands
í skólanum eru 4 námssvið:
Tækni-, Vélstjórnar-, Skipstjórnar- og
Sjávarútvegssvið. Skólinn starfar eftir
áfangakerfi sem gerir honum kleifl
að meta nám frá öðrum skólum.
Námsefninu er skipt upp í áfanga sem
hver um sig tekur eina önn og lýkur
með prófi í annarlok. Áfangakerfið er
þess eðlis að það leggur nemendum
nokkrar byrðar á herðar, þeir verða
sjálfir að ákveða námshraða og velja
sér viðfangsefni fyrir hverja önn. Til að
auðvelda þetta er nauðsynlegt að þeir
geri áætlun um námsferil sinn og nið-
urröðun einstakra áfanga í námsannir
í samráði við umsjónarkennara eða
námsráðgjafa.
Rekstur og stjórnun
í atvinnulífinu
Fjöltækniskóli íslands hefur fengið
heimild menntamálaráðuneytisins til að
bjóða nám á nýrri braut; sjávarútvegsbraut.
Vandasamt var að ákveða með hvaða
hætti Fjöltækniskólinn ætti að leggja upp
nýtt nám þannig að það yrði aðlaðandi
og markvisst fyrir þá sem kynnu að hafa
hug á því.
Eftir töluverða yfirlegu varð það niður-
staða skólans að skipuleggja og bjóða nýtt
nám sent við köllum Rekstur og stjórnun
í atvinnulífinu. Petla nám er skilgreint
sem 45 eininga rekstrar- og stjórnunar-
nám. Námið hentar vel öllurn faglærðum
sem hafa reynslu úr atvinnulífinu, t.d.
sjávarútvegi, matvælaiðnaði og ýmsum
öðrum atvinnugreinum. Námskröfur eru
þær sömu og á háskólastigi.
Þetta nýja nám er hentugt fyrir þá sem
vilja auka við mennlun sína og skapa sér
ný tækifæri án þess að þurfa að sleppa
vinnu sinni og setjast að fullu á skóla-
bekk.
Námið er að þvi leytinu frábrugðið
venjulegu skólanámi að auðvelt er að
stunda það á eigin forsendum.
Skipulag námsins er blanda af fjarnámi
og staðnámi sem býður nemendum upp á
mikinn sveigjanleika í skipulagi náms og
vinnu. Námsskipulagið er þannig:
• Við upphaf annar koma nemendur í
skólann í þrjá daga og fá kynningu á
náminu og fyrirkomulagi þess, læra á
Námskjá sem er veflægt námsumsjón-
arkerfi, fara í gegn um námstækni og
kynnast hver öðrum.
• Aðeins einn áfangi er kenndur hverju
sinni, hann tekur 6 vikur og lýkur
síðan með prófi.
• í hverjunt áfanga er gert ráð fyrir
tveimur lotum í skólanum sem taka 3
daga hvor.
Stofnun þessarar nýju brautar er liður
í þeirri stefnu Fjöltækniskólans að þróa
nánt tengt atvinnulífinu til viðbótar við
það hefðbundna nám sem fram hefur
farið í skólanum.
36 - Sjómannablaðið Víkingur