Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2006, Page 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2006, Page 8
Þór,jyrsta íslenska varðskipið, i heimsókn á Akureyri 1924. Skipið var þá í eigu Björgunarfélags Vestmannaeyja. Tveimur árum síðar, eða l.júlí 1926, tók íslenska ríkið að sér rekstur skipsins og míðast stojndagur Landhelgisgæslu íslands við þann dag. Þingeyinga, handsamaði togarann Oregon frá Hull á Skjálfanda árið 1897 og færði til hafnar á Húsavík. Tveimur árum síðar reyndi Hannes Hafstein, sýslumaður ísfirðinga, að leika afrek Þingeyinganna eftir og taka togarann Royalist á Dýrafirði. Sú för reyndist hins vegar feigðarflan og fórust tveir menn af báti sýslumanns en aðrir björguðust naumlega, þeirra á meðal Hannes sjálfur. Lærdómurinn, sem draga mátti af þessum hryggilega atburði var sá, að á árabátum sínum ættu íslendingar enga möguleika gegn togurunum. Togaramenn áttu auðvelt með að forðast handtöku, og þeir gátu hæglega sökkt árabát- unum, ef þeim bauð svo við að horfa. Vélvæðing íslenska bátaflotans hófst undir árslok 1902 og aðeins fáeinum árum síðar voru vélbátar komnir í flestar helstu verstöðvar landsins. Þá batnaði mjög öll aðstaða Islendinga til að taka þátt í vörn- um landhelginnar og fiskimiðanna. Vélbátarnir fóru miklu mun hraðar yfir en árabátarnir, þeir voru liprir í snúningum og þá mátti nota til að skjótast út að tog- urum, sem voru að ólöglegum veiðum. Bátsverjum var vitaskuld ekki ætlað að taka togarana, en þeir gátu skráð nafn þeirra og númer og komið hvorutveggja til næsta yfirvalds, sem svo kom upplýsing- unum áfram til foringja danska gæslu- skipsins. Á grundvelli þessara upplýsinga var svo hægt að kæra viðkomandi skip- stjóra og dæma, ef til hans náðist. Hugmyndir um að fara þannig að virð- ast hafa kviknað á Suðurnesjum á árun- um 1908 og 1909, en þá sóttu menn í Keflavík um styrk til Stjórnarráðs íslands til að gera út bát, er hafa ætti eftirlit með fiskveiðum útlendinga. Hugmynd þeirra var sú, að báturinn stundaði fiskveiðar, en skráði nöfn og númer skipa, er skip- verjar stæðu að ólöglegum veiðum. Umsóknin hlaut ekki náð fyrir augum stjórnvalda, en stjórnarráðið hét Keflvíkingunum þó verðlaunum, ef þeim tækist að koma upp um landhelgisbrot. Nokkrum árum síðar, eða sumarið 1913, afréðu nágrannar Keflvíkinga í Gerðahreppi að hefja eigin landhelgis- gæslu, en þeir voru orðnir langþreyttir á yfirgangi og netaskemmdum togara í Garðsjó. í „Skýrslu yfir fiskifjelag íslands 1911-1912 og Fiskiþingið 1913” birtist frásögn Þorsteins Gíslasonar á Meiðastöðum i Garði af þessu framtaki. Hún var svohljóðandi: Á síðastliðnum vetri var haldinn almennur málfundur í Gerðahreppi, til þess að ræða vandræðamál þetta [yfir- gang togara og netaskemmdirj. Hreppsbúar höfðu svo oft kvartað til landsstjórnarinnar um aukna gæslu á landhelgissvæðinu, en þar sem hún hafði ekki tök á neinni annarri aðstoð en þessu eina varðskipi, er ekki getur alstaðar verið, þá var á nefndum fundi afráðið að fá mótorbát til eftirlits á landhelgissvæð- inu þar syðra, og skyldi hann hafa hana á hendi frá 1. apríl til ársloka þetta ár. Þessu var svo komið í framkvæmd, og er reynsla sú, er menn hafa þegar fengið af þessu mjög gleðileg. Menn hafa getað haft veiðarfæri sin í besta næði á hinum fornu stöðvum sínum, og nú síðari hluta júnímánaðar hafa menn lagt þorskanet með miklum árangri. Frá 15.-26. degi mánaðarins aflaðist í Gerðahreppi á 10 skip, 9640 af netaþorski, auk þess er menn fengu þar samtímis á lóð og færi. Mótorbátur sá er fenginn var, er vel útbúinn og hefir góða ferð. Hann hefir náð númeri á 5 botnvörpungum, er hafa skotist inn fyrir landhelgislínuna og nást að líkindum til sekta fyrir brot sitt, og lítur út fyrir, að botnvörpungar hafi tölu- verðan beyg af návist bátsins, þótt lítill sje. Enda þótt reynsla sú, sem fengin er, sje stutt, þá er hún þó þess eðlis, að vjer Garðmenn viljum ráðleggja hverju því sjávarplássi, er á að sæta miklum ágangi af hálfu botnvörpunga að viðhafa slika aðferð sem íbúar Gerðahrepps, þar til önnur betri ráð eru fengin. Þessa útgerð má með réttu kalla upp- haf íslenskrar landhelgisgæslu og vélbát- inn Ágúst, sem annaðist gæsluna, fyrsta íslenska gæsluskipið. Tilraunin gafst svo vel, að á næstu árum veitti Fiskifélag íslands umtalsverðum fjármunum til hliðstæðrar útgerðar annars staðar. Þá höfðu forystumenn Fiskifélagsins einnig önnur og stærri áform á prjónunum, en þegar heimsstyrjöldin fyrri braust út árið 1914, dró mjög úr sókn útlendra veiði- skipa á íslandsmið. Þá dró úr þörfinni á gæslu og þegar styrjöldinni lauk var þess skammt að bíða, að stofnað yrði til útgerðar eiginlegs varðskips á vegum konungsríkisins íslands. 8 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.