Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2006, Síða 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2006, Síða 11
Gámaskip framtíðarínnar egar framtíð gámaskipanna er til umræðu, leikur enginn vafi á því, að þau munu verða stærri, burðarmeiri og hraðskreiðari en þau sem sigla um heimshöfin 1 dag. Hyundai í Austurlöndum fjær eru risaskipin smíðuð sem á færibandi. Að vísu hefur engin skipasmíðastöð gefið út tilkynn- ingu um smíði skipa, sem bera rneir en 10.000 gámaeiningar, sem virðist vera stærðarmark, sem erfitt er að yfirstíga. Það skip, sem væntanlega er næst þessu marki er „Pamela", sem byggð var hjá Samsung skipasmiðjunum. Pamela er 337 m. á lengd og ber 9.200 gámaeiningar. Peir hafa sem sagt ekki stigið skrefið til fulls. Það vill Hyundai, sem er aðalkeppi- nauturinn, hins vegar gera. Þeir hafa til- kynnt, að þeir séu tilbúnir til að taka við pöntunum á að allt að 13.000 gámaein- inga skipi. Hugmyndin er unnin í sam- vinnu við þýska ilokkunarfélagið Germanischer Lloyd og ýmis önnur þar- lend fyrirtæki, sem átt hafa þátt í smíði ófárra stórra gámaskipa. Vélbúnaður Svona stórt skip kallar á ýmsar nýjar hugmyndir um útfærslu vélbúnaðar. Hátt olíuverð gerir það að verkum, að risaskip með eina aðalvél verður afar dýrt i rekstri. Ef einnig er lekið lillit til siglinga- hraðans, sem áætlaður er 25-26 sjómílur/ klst, kemur ein aðalvél vart til greina. Auðvitað er mikið rekstraröryggi fólgið í því að hafa vélarnar tvær, ekki bara ef til óhapps kemur, heldur einnig vegna þess, að til eru nú þegar minni vélar, sem eru margreyndar. Því hefur Hyundai á prjón- unum tvær 14 strokka vélar. Það er ekki mögulegt, að sögn verksmiðjanna, að ná 25-26 sjómílna siglingahraða með 14 strokka vél, en þeim hraða nær hins vegar 16 slrokka vélin. Hún er hins vegar miklu rúmfrekari með tilliti til þess rýmis, sem má nota fyrir vélbúnaðinn. Annað vandamál þessu tengt er stærð skrúfunnar. Hyundaimenn fullyrða, að hámarksstærðinni sé náð með skrúfu, sem er 9,5 m í þvermál og vegur um 110 tonn. Þar við bætist hætta á skennndum, þegar svo miklu afli er beint á aðeins einn skrúfuöxul. Tvær yfirbyggingar Hugmyndin er því að aðskilja brú og vélarrúm. Til þess eru fleiri en ein ástæða. Þilfarið, sem verður 382 m. langt, nýtist betur. Þar þarf að konra fyrir allt að 7.210 gámaeiningum, 21 á breiddina og 8 á hæðina. Skipið verður 54,2 m. á breidd og djúpristan 13,5 metrar. Um 6.200 gámaeiningar verða svo neðan þilja, 19 á breiddina og 10 á hæðina. Samkvæmt öllum reglurn verður brúin að vera þannig, að skipstjórnarmenn hafi gott útsýni til verka sinna. Því verður brúin annað hvort að vera mjög há eða framarlega á skipinu svo hægt sé að sjá fram yfir fremstu gámastæðuna. Væri brú og vélarrúm í sömu einingu framarlega í skipinu yrði skrúfuöxullinn að vera óhóf- lega langur. Það eykur heldur á burðar- getu skipsins, ef vélarrúm og brú eru aðskilin og minnkar þörfina á botngeym- um fyrir ballest. Auk þess er skipið hannað samkvæmt nýjustu umhverfiskröfum, t.d eru allir eldsneytisgeymar tvöfaldir, sem einnig styrkir skrokkinn. Germainscher Lloyd og Hyundai hafa nú unnið nærfellt tvö ár að hönnun skipsins og prófað módel á alla enda og kanta án þess að pöntun sé enn í sjón- máli. Þeim er greinilega alvara og binda miklar vonir við að fá slíka pöntun innan skamms og hönnunarkostnaðinn greidd- an. Það verður þó líklega ekki alveg á næstunni, því Hyundai er með svo marg- ar pantanir, að það getur ekki snúið sér í alvöru að smíði risaskipsins fyrr en árið 2009. Þar við bætist, að smíðatíminn verður líklega 9-10 mánuðir, en algengur smíðatími raðsmíðaðra skipa er 9- 10 vikur. Rydfríir stálbarkar Barhasuda Gudmundar ehf. Hvaleyrarbraut 27 • 220 Hafnarfjörður Sími: 564 3338 • Fax: 554 4220 GSM: 896 4964 • 898 2773 Kt. 621297 2529 fyrir_______________________ Hitaveitur • Pústkerfi • Vatnslagnir Olíulagnir • Frystikerfi • Loftlagnir Viðgerðir og smíði á þenslumúffum Sjómannablaðið Víkingur - 11

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.