Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2006, Side 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2006, Side 18
Hilmar Snorrason Namibía - ný heimkynni íslenskra skípa Seinni hluti Ég hafði þann sið að taka mér í morg- unsárið stutta gönguför um höfnina við skólann til að sjá hvað væri að gerast þar. í einni slíkri gönguferð tók hjarta mitt að slá örar þegar ég sá skip koma sigl- andi inn innsiglingarennuna í blankandi logni. Ég gat ekki betur séð en að það væri íslenskt. Myndavélin var með og smellt af. Þrátt fyrir að nafnið væri ekki greinilegt fór ekki neitt á milli mála að þetta var Byr VE að koma til hafnar. í hádegishléinu fór ég strax þar sem skipið hafði lagst að bryggju og urðu fagn- aðarfundir að hitta fyrir gamla nemendur og félaga sem þar voru komnir langt að. Skipstjórinn og eigandi, Sveinn Rúnar Valgeirsson, var hér kominn um langan veg. Byr hafði verið siglt frá Brasilíu þar sem nýir eigendur áttu að taka við skip- inu í höfninni i Walvis Bay. Þetta fyrsta íslenska sérbúna túnfiskveiðiskipið var um það bil að yfirgefa íslenska flotann þegar hér var komið sögu. Næsta heimahöfn skipsins skyldi vera Walvis Bay. Namibía hefur yfir tveimur höfnum að ráða. Walvis Bay er stærri og fer um hana megnið af inn- og útflutningi landsmanna. Hin höfnin er í Luteritz en þangað komu fyrstu íslendingarnir þegar þróunaraðstoð landans hófst við Namibíu. Með fyrstu skipum frá íslandi sem þangað komu var togarinn Rex sem heima hafði seinast borið nafnið Rán frá Hafnarfirði. Skipið var smíðað árið 1973 hjá At. & Ch. de La Manche í Dieppe í Frakklandi sem Bournazel fyrir franska útgerð. Árið 1978 var skip- ið selt til Patreksfjarðar og fékk nafnið Sigurey en var nokkrum árum síðar selt til Hafnarfjarðar eins og áður er getið. Nú var skipið í eigu Seaflower Whitefish en það fyrirtæki var stofnað m.a. af íslendingum sem eru þó ekki lengur eig- endur að skipinu. Síðustu fréttir herma að skipið sé á leið í brotajárn. Emanguluko var dálítið erfitt að bera fram en auðveldara að bera kennsl á. Pólska handbragðið frá Gdansk leyndi sér ekki og heldur ekki nafnið, Hópsnes, sem greina mátti á kinnungi skipsins. Árið 1995 var skipið selt til Nýja-Sjálands og hlaut þá nafn- Áhöfnin á Byr VE við komuna lil Walvis Bay. Sveinn Rúnar Valgeirsson skipstjórifyrir miðri mynd. Byr komin í hóp namibískra fiskiskipa. ið Saint Giovanni. Núverandi nafn fékk skipið þegar það var selt til Namibíu árið 1999. Er skipið í eigu Glomar Fisheries og gert út frá Walvis Bay. Þegar ég rakst á skip- ið var það að landa í Luteritz. Systurskip Rolmar Dos, Khomas, sá ég í einni af ferðum mínum til Luleritz. Upprunalega nafn þessa spánsksmíðaða togara var Aðalvík. Fleiri nöfn áttu eftir að prýða þetta fallega skip eða Drangey, 18 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.