Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2006, Qupperneq 19
Rex lcit vel út þráttfyrir háan aldur.
Fórfrá íslandi til Nýja Sjálands en hefur núfengið Walvis Bay sem hcimahöfn.
Lengstan tíman á íslandi bar þetta skip nafnið, Aðalvík KE.
Þctta skip fór mikla frœgðarför til London í tengslum við íslandskynningu
og hafði þá hið glœsta nafn Lcifur Eiiiksson.
cuutvefi
Gullver á leið í demanta.
Vcrið að skvera Gullvcr
Eyvindur Vopni, Ósey, Skúmur og Helga
II. Það var árið 2000 sem skipið var selt
Skeleton Coast Trawling í Namibíu og
nafninu breytt í Khomas.
Aðeins eitt skip rakst ég á í Namibíu
sem hafði verið í íslenskri eigu og sem
ekki var fiskiskip. Þrátt fyrir að skipið
væri smíðað sent fiskiskip hjá Richards
Ltd. í Great Yarmouth í Englandi árið
1980, sem Suffolk Champion, hafði þvi
verið breytt i gæsluskip fyrir olíuborpalla.
Árið 1989 fékk skipið nafnið, Britlania
Champion. Til íslands var skipið selt
árið 1994 og nafni þess breytt i Leifur
Eiríksson. Nú var skipið í norskri eigu
og hét Skude Pioneer og hafði greinilega
fengið smá upplyftingu.
Að lokum ætla ég að segja frá skipi sem
einn af íslendingunum, sem búsettur er
í Walvis Bay, rakst á. Fékk ég upplýs-
ingar og mynd af skipinu frá lesendum
blaðsins og færi ég þeim bestu þakkir
fyrir. Seyðfirðingurinn Björn Ásgeirsson,
starfsmaður hjá Hampiðjan Namibia í
Walvis Bay, var á ferð í Suður-Afríku
fyrir skömmu. Þar sent hann var stadd-
ur í litlum bæ, um 150 km norður af
Höfðaborg, sá hann skip sem honum
þótti kunnuglegt. Þegar betur var að
gáð kom meira að segja nafnið enn
frekar upp um skipið. Hér var á ferð-
inni gamli Gullver frá Seyðisfirði sem
var í breytingum þegar hér var við sögu
komið. Hlutverki hans sem togara var
lokið og næstu veiðar verða demantaveið-
ar þannig að ætla má að í framtíðinni
verði aflaverðmætið mun meira en var
á íslandsntiðum. Hafði skipið, eftir því
sem Björn komst að, legið i tvö ár þar í
höfninni.
Lýkur svo frásögn af skipum sem áður
klufu öldur við ísland en eru nú á fram-
andi slóðum að hefja nýjan feril eða að
kveðja þennan heim.
Sjómannablaðið Víkingur - 19