Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2006, Page 37

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2006, Page 37
Vélhermir. Stúdent af Náttúrufræðibraut Fjöltækniskóli íslands býður nám á nýju tæknisviði; náttúrufræðibraut sem kemur til með að gegna lykilhlulverki í þróun og vexti skólans. Nátnið er bæði verklegt og bóklegt og gagnast ncrnend- um sem starfsnánr, sem leiðir lil atvinnu. Að auki veitir það stúdentspróf af nátt- úrufræðibraut og þar með réttindi til áframhaldandi náms. í fyrstu er boðið upp á vél-, raf- eða skips- tækni innan náttúrufræðibrautar þar sem nemendur slunda nám til undirbúnings raungreinanámi 1 háskóla. Námið er sér- sniðið að þörfum háskólanna með blöndu af bóklegum greinum og tæknigreinum. Stefnt er að því að nemendur geti útskrifast með vélstjórnarpróf 2. stigs, samhliða stúd- entsprófi af náttúrufræðibraut. Sérstök áhersla verður lögð á undirbúning undir háskólanám í tækni- og verkfræði. Fram lil þessa hafa flestir nemendur úr grunnskóla valið að fara í framhaldsskóla og ljúka þaðan stúdcntsprófi, en hafa ekki gert sér grein fyrir þvi að það er líka mögulegt að fara beinl i vélstjórnarnám að loknu grunnskólanámi og halda síðan áfram í tækninátni eða fara í raungreinar í háskóla, t.d. véla- eða rafmagnsverk- fræði. Staðreyndin er sú að nemendur sem fara þessa leið í gegnum skólakerfið og í háskóla standa mjög vel að vígi og hafa ákveðið forskol á þá samnemendur í háskóla sem eru með hefðbundið stúd- entspróf. Það virðist vera orðið nokkuð gróið í þjóðarsálina að stúdentsprófið sé nauðsynlegur farmiði út í lífið. Vorið 2005 útskrifaði Fjöltækniskólinn í annað sinn 4. stigs nemendur vélstjórnar sem stúdenta samhliða hefðbundinni útskrift vélsljórnar. Gæðakerfi ISO 9000 Fjöltækniskóli íslands fékk gæðavott- un samkvæmt ISO 9001 í febrúar 2005 og er fyrsti framhaldsskólinn á land- inu til að öðlast formlega gæðavottun. Fjöltækniskólinn hefur frá upphafi reksturs skólans unnið að hönnun og innleiðingu gæðastjórnunar samkvæmt ÍSO 9001 staðli og er það gert að kröfu IMO, Alþjóða siglingamálastofnunarinn- ar. Vottað gæðakerfi er skilyrði þess að íslensk atvinnuskírteini séu viðurkennd erlendis og að Siglingastofnun hafi hcinr- ild til útgáfu alþjóðaskírteina á grundvelli Islenskrar menntunar á þessum sviðum. Áhrif vottunar á innra starf skól- ans hafa verið mjög mikil og leitt af sér töluverðar breytingar og er ljóst að starfið er mun skipulegra og gegnsærra eftir en áður. Aðrir skólar hafa sótt í smiðju Fjöltækniskólans og eru að taka upp hluta þessa sérhannaða gæðakerfis skólans. Slysavarnaskóli sjómanna hefur einnig hlotið gæðavottun ISO 9001. Aðbúnaður í skólanum Miklar breytingar hafa átt sér stað í aðbúnaði og tækjabúnaði Fjöltækni- skólans og hefur gagnger endurnýjun tölvubúnaðar og skjávarpa í skólanum átt sér stað, auk endurbóta á ýmiskonar aðstöðu og búnaði. Ber þar hæst end- urnýjun herma skólans sem fram fór sumarið 2004. Tæknimál 1 kennsluumhverfi skólans eru í stöðugri þróun og sífellt unnið að eflingu tölvutækni í kennslu bæði hvað varðar kennara og nemendur. Varðskipsbraut Á vorönn 2006 er boðið upp á kennslu á 4. stigi skipstjórnar - varðskipsdeild en útskrifaðir nemendur 4. stigs bæta við sig réttindum skipherra á varðskip. 4. stigið er í boði á nokkurra ára fresti og þá í samvinnu við Landhelgisgæsluna en allir sem lokið hafa 3. stigi skipstjórnar geta skráð sig til 4. stigs. Unnið hefur verið að aðlögun og end- urskoðun námsins á liðnum mánuðum og varð nokkur breyting á náminu frá því sem síðast var kennt. Gert er ráð fyrir að Varðskipsbrautin verði aflur í boði vorönn 2007. Viðbótarnám í rafvirkjun Nemendum skólans sem ljúka 4. stigi vélstjórnar hefur á slðustu önnum verið boðið að taka fagbóklegt nám til sveins- próf rafvirkjunar í samræmi við reglur ráðuneytisins þar um. Þetta viðbótarnám gerir nemendum kleift að þreyta sveinspróf í rafvirkjun og öðlast almenn réttindi rafvirkja að loknu slarfsnámi og sveinsprófi. Mikil verðmæti felast í því fyrir vél- stjóra að geta samhliða nárninu lokið nárni til réttinda rafvirkja ásamt því að geta einnig fengið réttindi vélfræðings að afloknum námssamningi og sveinsprófi vélvirkjunar/ eða málmiðnaðargreina. Menntun sem færir nemanda tækifæri til þrefaldra réttinda að undangengnu nárni í skóla og á vinnustað, þ.e. réttindi vélstjóra, vélfræðings og rafvirkja hlýtur að teljast verðmætt og gerir vélsljórn- arnámið einstakt í sinni röð. Endurmenntun Fjöltækniskóli íslands býður öfluga endurmenntun og hefur fjöldi nám- skeiða verið haldin undanfarin ár. Gerður var samningur við Sjómennt urn endurmenntun starfandi undirmanna á sjó og er sjóðurinn nú í umsjón Fjöltækniskólans. Nokkur ný námskeið hafa litið dagsins ljós á síðasta ári. Þar ber hæst námskeiðin um endurnýjun skipsljórnarréltinda og annað um cndurnýjun vélstjórnarrétt- inda þar sem þeir, sem ekki hafa nægjan- legan siglingatíma til að viðhalda fullurn réttindum geta sótl 3ja daga námskeið til endurnýjunar á réttindum sínum. Að lokum Það er von stjórnenda Fjöltækniskólans að skólinn sé í stöðugri þróun í samræmi við þá stefnu sem lagt var upp með og að hann sé á góðri leið með að verða öflugur starfsnámsskóli sem fullnægi þörfum atvinnulífsins til færni og þekkingar. Hlutverk skóla er að þjóna viðskipta- vinum sínum sem best; annarsvegar þeint sent verða þjónustunnar aðnjótandi, þ.e. nemendum, og hinsvegar atvinnulífinu sem ræður nemendur skólans til starfa. Sjómannablaðið Víkingur - 37

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.