Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2006, Blaðsíða 41

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2006, Blaðsíða 41
Lýður Guðmundsson lojtskeytamaður með afadrengina sína, Lýð og Ágúst, um borð i Þór drið 1972. Guðjón Ármann sestur við skrifborð en hann var lengi starfsmannastjóri hjá Gœslunni. þegar kom upp undir ísland. Eina nótlina rumskuðu rnenn við helvíti mikinn hvell, líkastan byssuskoti úr öflugu vopni. Dráttarvírinn hafði þá skorið pollann í sundur og hann rokið upp i loft eins og fallbyssukúla. Við gerðum ekkert frekar í þessu. Treystum þvi að spilið myndi halda sem það og gerði. Heldurðu að þú finnir skipið aftur? Eitt af skemmtilegri verkefnum okkar var að flækjast með pólitíkusa á milli staða. Það var oft eins og einn allsherjar kabarett að hafa þá um borð, Eystein Jónsson, Sverri Hermannsson, Lúðvik Jósepsson, Vilhjálmur Hjálmarsson og fleiri. Eysteinn kunni sögur í hundraðavís, Sverrir líka og ótrúlega gaman að hlusta á þá þegar þeir komu upp í brú og reiltu af sér brandarana. Stundum gátum við notfært okkur þessa aðstöðu líkt og þegar við kusum eitt sinn utankjörstaðar á Borgarfirði eystri. Hreppstjórinn á staðnum átli heima í gömlu timburhúsi og þangað fórum við að kjósa og mér er það minnis- stætt að allir veggir voru þar þaktir Kjarvalsmálverkum. Málið vandaðist hins vegar þegar við ætluðum að skila kjör- seðlinum af okkur. Pað stóð nefnilega upp á kjósendur að koma þeim á réttan stað. Yfir þessu kvörtuðum við sáran við þingmennina, sem með okkur voru, og á endanum vildu þeir allir taka af okkur atkvæðin og koma þeim í réttar hendur. Þeim datt hins vegar ekki í hug að láta breyta fyrirkomulaginu. Eitt sinn sem fór Bjarni Benediktsson forsætisráðherra með okkur og kona bans, Sigríður Björnsdóttir og einnig Ellert B. Schram og frú. Þetta var eflaust í sambandi við eitthvað pólitískt vafstur. Bjarni vildi ekki láta hafa neitl fyrir sér en orðaði það samt við Guðmund Kjærnested að sig hefði alltaf langað í Hornvik. Þegar við sigldum þar hjá var Guðmundur ekkerl að tvínóna við hlut- ina en lagði skipinu við festar. Ég var settur á gúmnn'tuðruna og farþegunum hjálpað um borð. Svo var brunað í land þar sem hjónin létu langþráðan draum rætast unt að ganga innan um fimm metra háa hvönnina og skoða eyðibýli. Þegar þau kornu ofan í fjöruna aftur var komin svarta þoka svo sá ekki handa sinna skil. Ég lét strákana ýta frá, set mót- orinn í gang og keyri rólega af stað. Þá segir Bjarni á sinn hægláta hátt: Heldurðu að þú finnir nokkuð skipið aftur? En þá byrjuðu þeir að flauta á Ægi og við keyrðum á hljóðið. Svo var ferðinni haldið áfram en Bjarni sýndi öllu áhuga um borð og kom oft í brúna og var þá að skoða tæki og tól. Hann hafði sérstakan áhuga á radarnum og vildi fá að vita hversu langt við gætum séð í honum. Á Siglufirði fóru farþegarnir i land. Við vorum enn í þessunr sama túr þegar kall- að var eftir þyrlunni, sem þá var um borð hjá okkur, vegna eldsvoða sem hafði orðið á Þingvöllum. Bjarni, Sigríður, eig- inkona hans, og dóttursonur höfðu farist í þeim eldi. Fréttin kom sem reiðarslag fyrir okkur sem vorum svo nýlega búnir að umgangast þau hjón og hæla þeim á hvert reipi fyrir hversu góðir og þægilegir farþegar þau höfðu verið. F æðingarlæknir Ég get þakkað það sambandslausum loftskeytamanni að ég varð ekki fæðing- arlæknir. Við lágum inni á Berufirði á Þór og höfðum eytt deginum í að skrapa og mála. Þegar liðið er á daginn heyrum við dauft píp i græjunum og köllum í loft- skeytanranninn, sem var Lýður Guðmunds- son, afi þeirra Bakkavararbræðra Lýðs og Ágústs sem gera það gott í fjármálaheim- inum í dag. Þegar Lýður hyggur að þessu kemur í ljós að Nesradíó er að kalla og loflskeytamenn- irnir þar orðnir alveg arfavitlausir: Hvar í andskotanum hafið þið verið, við erum búnir að kalla á ykkur síðan tvö í dag? Það er kona í bamsnauð á Fáskrúðsfirði. Við rjúkum til og setjum allt á fullt og kapteinninn segir mér að gera sjúkrastof- una klára en það fylgdi stýrimannsstöð- unni að vera einnig skipslæknir. Þegar við komum að bryggju á Fáskrúðsfirði kemur þar rússajeppi. Ökumaðurinn snarast út og spyr hvort við séum ekki með sjúkrabörur. Jú, við hendum þeim inn í jeppann og hann brunar af stað upp hlíðina en við fylgjumst með ljósunum frá bílnum. I miðri hliðinni stoppar hann. Svo gerist ekkert í svolitla stund en þá er jeppanum snúið við og hann kernur á blússandi ferð niður brekkuna. Ekki keyra þeir svona með konuna, komna á steypirinn, hugsa ég. En þá hafði konan verið að eiga og ég því rétt sloppið við að gerast fæðingarlæknir. Þá fór ég til Lýðs vinar mins og þakkaði honum kærlega fyrir að vera með græj- urnar svona illa stilllar. Stundum á vorin brugðum við okkur á skytterí. Einhverju sinni lágum við undir Látrabjargi þegar Gunnari Ólafssyni skip- herra datt í hug að fara á skytterí. Gúmmíbáturinn er gerður klár og Guðni Skúlason loftskeytamaður fer með honum. Gunnar, sem var feitur og þungur á sér, tekur aðra árina sem var í bátnum, leggur hana þvert yfir lil að sitja á. Þannig ætlar hann að gera sig stöðugri til miðunar. Svo sigla þeir rólega áfram og Gunnar gefur fyrirmæli í gríð og erg og verður sífellt æstari en hann var örgeðja að upplagi. Svo eru þeir að kom- ast í færi og kallinn er farinn að hossa sér á árinni í æsingnum. Þá skyndi-lega brotnar hún og hann steypist aftur fyrir sig. Skotið ríður af og fer rétt yfir haus- inn á Guðna sem situr i skutnum við utanborðsvélina. Með þessurn rnanni fer ég aldrei á skyt- terí aftur, er það fyrsta sem loftskeyta- nraðurinn segir þegar hann kemur aftur um borð þungur á brún. Sjómannablaðið Víkingur - 41

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.