Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2006, Page 44

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2006, Page 44
ræðir eru Grikkland, Frakkland, Ítalía, Finnland og Portúgal. Evrópudómstólinn mun taka til þeirra þátta sem ríkin hafa ekki uppfyllt en það eru skyldur á mót- töku rusls sem og áætlun um meðferð og eyðingu þess í öllum höfnum ríkjanna og nær þetta einnig til fiski- og skemmti- hafna ríkjanna. Þær áætlanir sem um ræðir eru ætlaðar til að skip sem nota hafnirnar geti losnað við þann úrgang sem venjulega fellur til. Ákvæði þessarar tilskipunar tóku gildi 27. desember 2002 og hefur þvi mönnum brostið þolinmæð- in i þessum efnum. Aðvörun var send til þriggja annarra aðildarríkja, Þýskalands, Eistlands og Svíþjóðar en ekki verða þessi ríki dregin fyrir dómstóla. Ætli þeir hafi bara verið ánægðir með íslenskar hafnir? Nýtt skip Það er alltaf athyglisvert þegar ný skip yfirgefa skipasmíðastöð en aldrei hefur athyglin verið meiri í Danmörku en þegar nýjasta gámaskip A.P. Möller hélt frá Munkebo í 9 daga prufuferð áður en lokafrágangur við skipið hefst í Arhus. Skipið sem heitir Emma Mærsk er heims- ins stærsta gámaskip og engin smásmíði. Lengd skipsins eru 400 metrar og 52 metrar frá síðu til síðu. Ekki hefur skipa- félagið haft það fyrir sið að gefa upp hversu marga gáma skip þess geta borið en talið er að flutningsgeta Emmu Mærsk sé á milli 12.500 til 15.000 TEU’s. Burðargetan er 249 þúsund tonn. Talið er að um 5.000 manns hafi fylgst með þegar sjö stórir dráttarbátar héldu með skipið tveggja tíma leið út á opið haf. Sjómannablaðið Vikingur átti þar einnig fulltrúa sem léði blaðinu myndir frá þess- um atburði. í prufuferð skipsins kom ekkert óeðlilegt fram en gert er ráð fyrir að skipið haldi frá Arhus 14. september. En myndirnar sem Ruth Glerup tók við þetta tækifæri segja meira en mörg orð. Harðir dómar Alsírskir dómstólar dæmdu nýlega stjórnarformann og fjóra undirstjórnendur ríkisrekna skipafélagsins CNAN í 15 ára fangelsi fyrir hlutdeild þeirra í að sökkva skipi útgerðarinnar. Skip útgerðarinnar, Bechar, fórst i óveðri undan ströndum Alsírs 13. nóvember 2004 og engin þeirra 16 skipverja komust lífs af. Við rannsókn slyssins kom í ljós að fyrrum skipstjóri skipsins hafði tilkynnt stjórnarformannin- um og undirstjórnendunum að skipið væri „fljótandi likkista“ og i „algjöru rusli“. Skipið væri vélarvana og gæti ekki annað en rekið undan veðrum og vindum lenti það í vondum veðrum. Mikill hiti var við réttarhöldin og bentu verjendur mannanna á að það væru aðrir sem ættu frekar að sitja fyrir framan dómarana. Þegar niður- stöður dómsins voru kynntar urðu mikil uppþot í réttarsalnum. Fjölskyldur hinna Stærstur Svía Svíar hafa nú nýlega eignast 117 þúsund tonna tank- skip sem telst vera stærsta skip sænska flotans. Skipið sem er nýsmíði var gefið nafnið Stena Arctica en auk þess að vera stærsta skip Svía er það einnig stærsta olíuskip í heimi sem uppfyllir ísklassa 1A sem er hæsti ísklassi fyrir skip. Er þess- dæmdu fordæmdu dóminn og dómarana. Bentu þeir á að þeir sem hefðu átt að fá dóma væru stjórnendur strandgæslunnar sem ekki svöruðu einu einasta af þeim 7 neyðarköllum sem komu frá skipinu, veð- urfræðingum sem gáfu út stormviðvörun löngu eftir að veðrið skall á og síðast en ekki sist björgunaraðilum sem ekki fóru til hjálpar hinu nauðstadda skipi. Ryðja varð dómssalinn um klukkustund eftir að dómur var upp kveðinn enda hann þá orðinn líkari orustuvelli en dómsal. Skemmtiferðaskiparisar í nánast hverjum mánuði eru menn að slá ný met og heimsmet í stærðum ýmissa skipategunda. Hvar þetta endar er erfitt að segja en undanfarið hafa eigendur skemmtiferðaskipa varla verið búnir að sjósetja ný skip en þeir hafa tilkynnt um smíði á enn stærri skipum. Tveimur mánuðum áður en stærsta skemmtiferðaskip heimsins var sjósett, Freedom of the Seas, gerði eigandi þess RCCL samning um smíði á enn stærra skipi sem verður af svokallaðri Grenesis gerð. Skipið verður 43% stærra en Freedom gerðin sem smíðuð verða þrjú skip af. Það fyrsta fær innan árs systur- skipið, Liberty of the Seas, í samflot sem stærstu skemmtiferðaskip heims og það þriðja verður tilbúið í apríl 2008. Þá verð- ur stutt í að nýi risinn verði tilbúinn en hann á að afhendast um risa ætlað að vera í siglingum í Austursjó, i leigu hjá Sovcomflot en aðal- farmar skipsins verður hráolía frá Finnska flóanum til hafna á meginlandi Evrópu. Erfinginn Minningin um skipakónginn, Aristotele Onassis, er mjög tekin að fölna enda nokkuð umliðið síðan hann lést. Dóttir hans erfði skipafélagið en hún féll frá langt fyrir aldur fram enda hafði líf henn- ar ekki verið neinn dans á rósum. Hún hafði gifst rússneskum manni og átti með honum eina dóttur, Athina Roussel, sem tók í arf auðæfi afa síns, án þess þó að hafa til þess aldur eða getu að stjórna fyr- irtæki Onassis heitins. Var þvi afráðið að stofna félag um eigur stúlkunnar enda margir sem ásældust milljarðana hennar, þar með talinn faðir hennar. Á þessu ári náði Athina 21 árs aldri sem gerir hana að fullu forráða. Ekki er þó talið að hún taki völdin í fyrirtæki sínu og stjórni líkt og afi hennar gerði. Þykir hún ekki efni- legur skipakóngur þrátt fyrir að eiga 13 risaolíuskip og sex stórflutningaskip enda snúast áhugamál hennar eingöngu um hestamennsku og það á háu stigi að því er kunnugir segja. Ef einhverjir rúmlega tvitugir hestaáhugamenn eru að leita sér að maka þá mun hún víst vera á lausu. árið 2009. Genesis skipið verður 360 metra langt, 220 þúsund tonn að stærð og með pláss fyrir 5400 farþega. Mesta hæð skipsins verða 65 metrar en hæðin er að verða helsti hemillinn á stærð skemmti- ferðaskipa þar sem víða þarf að fara undir brýr í helstu viðkomuhöfnum þeirra. cfón Bergson eKf- Klettháls 15-110 Reykjavík Sími: 588 8881 - Fax: 588 8944 Heimasíða: simnet.is/jonbergsson - E-mail: jonbergsonehf@simnet.is B00TS BUILTT0 LAST 44 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.