Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2006, Page 50

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2006, Page 50
Kólumbus, af hverju? í stórskemmtilegri og fróðlegri grein í seinasta tölublaði Víkings er sagt frá risum hafsins, kínverskum skipasmiðum og Bretanum Brunel. Þar er líka minnst á Kólumbus og landafundi hans. En mig langar einmitt til að forvitnast í sambandi við það sem þar er haft eftir Kólumbusi, að hann hafi kvartað yfir að Santa Maria væri heldur stórt til landkönnunar. Þó var skipið ekki nema 80 tonn. Sjómaður Ég þakka sjómanni fyrir góð orð og er honum hjartanlega sammála um grein Þórdísar. Svarið er að Kólumbus þurfti að leggja víða að og þá var betra að vera á smærra skipi enda hafnir þá ekki eins og gerist í dag. Og vestan hafs voru þær eingöngu náttúrulegar, flóar og firðir, þar sem aðdýpið og fjaran ákvörðuðu ágæti hafnarlægis. Rýnt í dagblöðin Halli skrifar: Ég get ekki á mér setið að senda Víkingnum örfá sýnishorn blaðalesturs á frívaktinni. Það hefur oft hvarflað að mér að halda til haga ýmsum svona perl- um sem maður rekst á í blöðunum. Hér koma þrjár. í Morgunblaðinu föstudaginn 4. ágúst (bls. 47) var fjallað um tölvuleik byggð- an á kvikmyndinni Reservoir Dogs eftir Tarantino (sem ég hef reyndar aldrei kunnað að meta, en það er annað mál). í fréttinni segir að leikurinn sé sérlega blóðugur og hryllilegur og að hann sé bannaður i bæði Ástralíu og Nýja- Sjálandi. Svo segir að leikurinn hafi verið leyfður í Bretlandi „ ... en þar má ekki selja hann einstaklingum eldri en 18 ára.“ Loksins er viðkvæmni okkar fullorðna fólksins viðurkennd I sama blaði segir frá formúlunni (sem við erum húkt á hér um borð). Kappaksturinn í Búdapest var þá fram- undan og blaðamaður er að segja frá því að Alonso eigi þaðan góðar minningar. Þar hafi hann unnið fyrsta sigur sinn í formúlunni (2003). í beinu framhaldi af þessu segir blaðamaðurinn um Alonso: „I það skipti varð hann meira en hring á eftir manninum sem helst stendur í vegi þess að hann vinni heimsmeistaratitilinn í ár.“ I hvaða sæti ætli Alonso hefði lenl hefði hann orðið þremur hringjum á eftir? Því fyrsta líka? Svo í lokin þá var ég að lesa um norsk- an fótboltakappa, í Fréttablaðinu minnir mig, sem fékk félaga sinn ofan á sig og fótbrotnaði illa. Og fékk þá ótal heillaósk- ir sendar, skrifaði íþróttablaðamaðurinn. Það var gott að maðurinn var ekki að gifta sig, hann hefði þá líklega drukknað í samúðarskeytum. Ég þakka Halla skrifin og skora á sjó- menn að vera vakandi fyrir blaðaskrifum í þessum dúr og netja þau á Víkinginn. Ólafur í Norðursjónum Ólafur Ragnarsson hafði samband en við hann var rætt í seinasta tölublaði Víkings. Mynd og texti hafði ekki hitt saman á bls. 8 en þar segir að Iris Borg sé á siglingu inn á Felixstowe. Ekki þarf glöggt auga (sem segir sína sögu um ritstjórann) til að sjá að hér ræðir um skipið Haváng sem er að koma inn á Málmeyjarhöfn, eins og kemur glöggt í ljós á bls. 10. Annað er að í inngangi greinar er Ólafur lengdur við dönsk og norsk skip en átti að vera dönsk og sænsk. Annars var hljóðið gott í Ólafi sem er nú i Norðursjónum að verja ljósleiðara fyrir ágangi fiskimanna. Þetta þótti mér for- vitnilegt og bað hann endilega að deila þess- ari lífsreynslu með lesendum Víkings. Hann tók vel í þá bón og megum við því vænta frétta úr Norðursjónum innan skamms. Ekki salt heldur brimsalt Sjómaður hringdi og sagðist hafa séð Sjómannadags-auglýsingu frá Víkingnum, í Mogganum að hann minnti, þar sem blaðið var sagt „eilítið salt“. „Ég hefði sagt brimsalt,11 sagði sjómað- urinn og bætti við að blaðið væri helvíti gott og þar væru alltaf fleiri eða færri greinar sem honum þættu stórskemmli- legar og fróðlegar. Lausn á síðustu krossgátu O Atstiiin ipautt tras V*qtf Kopac tvkto K/aka 'oþnf- if;r- S/takk Ftnqur Vickjun Tpnn Lancl- romur Ekki UL £ld- 5 taíi tfaidab' /efur (ef) V £ F J A R i 1, 0 S K tílifo k'eéja E l R A -■ F E S T 1 Hd/sr k/iit Frauc T R E F L I * K 'o L OcciÁu 5 úpa \ t Tima- bilii R.'*i/ Sout/- Snttiif U K R A / N A Tate, Turtui HUotin- injunt 1 ui- nttnnú* '0 'Þ V E R R A S K A P U R Hce6 Tr6 PúkOn n L E 1 T I ^ A S K ■ 'A R A N N Gtpitst- /rlrt \lortt(ur iíryii E K K l N N '0 'A 3r fvatHijn Trcgi <r D 1 E Saur- (ViM S K f) R N I Trúar- "sib' A T f ? J í? R fUÍMur r l N WJr Stour N A P-- SH R A K 1 Eins R R Tölu- E I N Aulane iit, Á N A N A Mfot /í'nnu- Samuf 1 2) 1 N N Leiju RáncUfr Vff-U F P y U Ú L F Htitf• D U 5 T A '0 S A> 0 D N 'D fí Samkl' R Sknmsli M 1 G Útlaqa h K k I Jfl uittl 1 R D YC'- ftngir /Fpa E F A R bö S K R A Bincii- efni HeiÁsli L '1 M TÍTZT K Æ N A T E I A R M A U L T'Tlilt- uiu Sivola- itigénnt K L U fF u- K £ F L A N *N A Sart Svallar Timabil U M T R f\ L L A R D A G 50 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.