Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1961, Síða 20

Náttúrufræðingurinn - 1961, Síða 20
14 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN og elektrónur. Ein af hverjum 50000 ögnunr reyndist vera and- prótóna. Voru þær skildar frá hinum ögnunum með massaspektró- mæli, sem innihélt hraða veljara, (velocity selector), en hraði hinna einstöku agnategunda er misjafnlega mikill. Þannig er hraði and- prótónanna 78% af ljóshraðanum, en hraði mesónanna aftur á móti 99% af Ijóshraðanum. Hraði mesónanna er meiri vegna þess, að massi þeirra er minni en massi andprótónanna. Það hefur komið í ljós með tilraunum, að prótóna og andprótóna eyða hvor annarri, þegar þær mætast. Breytist þá massaorka þeirra að mestu leyti í jr-mesónur (sjá 13. mynd). Eins og drepið hefur verið á, eyðast mesónurnar mjög fljótt, og verður massaorkan að lokum að gammageisla fótónum. Andnevtrónan er uppgötvuð. Árið 1956 var andnevtrónan uppgötvuð af fjórum ungum vís- indamönnum við Kaliforníuháskólann í Berkeley (sjá 15. mynd). um (nevtrína er ögn, sem hefur enga rafhleðslu og engan hvíldarmassa. Hún hefur hins vegar snúningsskriðþungamættið i/2 (h/2 tt) og orku). Það kom brátt í ljós, að |j,-mesónurnar gátu ekki skýrt eðli kjarnkraftanna. Árið 1947 upp- götvuðu C. F. I’owell og samstarfsmenn lians við háskólann í Bristol svo- kallaðar jt-mesónur í geimgeislum. n-mesónurnar komu miklu betur heim við kenningu Yukawa en p-mesónurnar. Til eru jt-mesónur, sem hafa bæði pósitívar og negatívar rafhleðslur. Þær hafa massa, sem er því sem næst 273 mu, en endast aðeins að meðaltali 2,5 X 10-8 sek, þá breytast ]tær í p-mesónur og nevtrínur. p-mesónurnar breytast liins vegar í elektrónur eða pósitrónur og nevtrínur. Óhlaðnar ^-mesónur liafa einnig verið uppgötvaðar, og reyndist massi þeirra — öllum til undrunar — vera aðeins 264 mu. Meðalaldur óhlöðnu mesónunnar er minni en 10-15 sek, og verður hún að því búnu að tveim gammageisla fótónum. Þess má að lokunt geta, að uppgötvaðar hafa verið þungar mesónur (K-mesónur) með massann 966 me og ennfremur agnir með stærri massa en massa prótónanna og eru þær nefndar hyperónur. Allar mesónur og hyperónur hafa að meðaltali rnjög stutt æviskeið. Eyðast þær að því loknu sjálfkrafa og verða að einhverjum liinna þekktu atómagna. I) Gufubóluhylkið (bubble cliamber) var fundið upp 1952 af Donald A. Glaser, sem nú er prófessor við Kaliforníuháskóla. Hlaut hann Nóbelsverðlaun- in í ár fyrir þessa uppfinningu. Inni í hylkinu er yfirhitaður vökvi undir þrýstingi, svo að hann sýður ekki. Hlaðiu ögn, sem fer gegnum vökvann, myndar jónir á braut sinni. Ef þrýstingurinn á vökvanum er minnkaður ör- lítið, myndast gufubólur á jónunum. Þessar gufubólur eru ljósmyndaðar, og kemur þá fram braut hinnar hlöðnu agnar. (sjá 14. mynd).

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.