Náttúrufræðingurinn - 1961, Síða 25
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
19
í nokkrum tilfellum, að tilsvarandi andagnir snúast til hægri um
stefnu brautar þeirrar, sem þær fara eftir. Því má ætla, að í and-
heimi rnundi náttúran vera rétthent.
Sé gert ráð fyrir, að andheimur sé til, fæst „symmetry" milli
efnis og andefnis, hægri og vinstri, en slíkt „symmetry" er vísinda-
mönnum mjög að skapi.
HEIMILDARIT
Emilio Segré og Clyde E. Wiegand: The Antiproton. Scientilic American, júní
1956."
liruce Cork, Glen R. Lambertson, Oreste Piccioni og William A. Wenzel:
Antineutrons Produced from Antiprotons in Charge-Exchange Collisions.
The Physical Review, Vol. 104, No. 4, bls. 1193—1197, 15 nóvember 1956.
Geoffrey fíurbidge og Fred Hoyle: Anti-Matter. Scientific American, apríl 1958.
Maurice Goldhaber: Speculations on Cosmogony. Science, 3. ágúst 1956.
T. D. Lee og C. N. Yang: Question of Parity Conservation in Weak Inter-
ations. The Pliysical Review, Vol. 104, No. 1, bls. 254—258, 1. október 1956.
C. S. Wu, E. Ambler, R. W. Hayxvard og D. D. Hoppes: Experimental Test
of Party Conservation in Beta Decay. The Physical Review, Vol. 105,
No. 4, bls. 1413-1415, 1. febrúar 1957.
Júní 1960.
Örnólfur Thorlacius:
Úr sögu erfðafræðinnar
Menn hafa snemma gert sér ljóst, að margt er líkt með skyldum:
að manna og dýrabörn líkjast foreldrum sínum frekar en óskyld-
um einstaklingum sörnu tegundar. Þetta færðu menn sér fljótlega
í nyt við húsdýrarækt, með því að velja hraustustu og beztu dýrin
til undaneldis. Til er um 6000 ára gömul tafla frá Súmerum, sem
virðist vera ættartala hesta. Þar eru myndir af hesthöfðum í röðum
og má greina af myndunum þrenns konar mismunandi höfuðlag
og þrjár faxgerðir. (1. mynd.)
Ræktun nytjajurta hefur líka snemma beinzt inn á þær brautir,
að menn veldu beztu jurtirnar til ræktar og hirtu síðan fræ þeirra